09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

2. mál, fjáraukalög 1928

Magnús Guðmundsson:

Hv. þm. Mýr. vildi afsanna, að stj. hefði áhrif á upphæð jarðræktarstyrksins með því að ákveða, hversu mikið væri í hverju dagsverki. Hann hefir nú sjálfur í sinni ræðu viðurkennt, að það er stj., sem á að meta dagsverkið: En hann segir: Það á að vera eins og dagsverkið er í raun og veru. Náttúrlega á svo að vera, en hv. þm. veit vel, að þegar verið er að setja ákvæði um, hvað teljast skuli margir ferfaðmar í dagsverki við þúfnasléttun um allt land, þá er það ekkert annað en mat og ágizkun. Útreikningar geta ekki komizt að, þar sem staðhættir eru svo mismunandi, því það getur verið eins gott að slétta 15 faðma á einni jörð eins og 10 faðma á annari. Þetta verður því ekkert annað en mat. Þetta var það, sem ég var að sýna fram á, og þetta er rétt.

En auk þess er annað atriði, sem stj. á að meta, og það er, hvenær jarðabætur séu fullgerðar. Stj. er ekki settur stóllinn fyrir dyrnar með það; hún getur breytt því, ef henni sýnist svo.

Um að matið verki ekki aftur fyrir sig, það hefi ég ekkert um sagt, en það hefir sín áhrif fyrir því, þótt það komi ekki fram fyrr en síðar.

Annars geri ég ráð fyrir, að svo geti farið, að við leiðum síðar saman hesta okkar út af þessu, við hv. þm. Mýr., sem ég býst við, að verði aðstoðarmaður hæstv. ráðh. (TrÞ) í þessu máli. Get ég því fallizt á, að við slíðrum sverðin þangað til, en þá skulum við líka bregða þeim, og það vel og rækilega. Þá mun ég sýna fram á, að núv. stj. hefir stórlækkað jarðræktarstyrkinn með því að breyta til um, hvað teljist í dagsverkinu. Með þessu er það sýnt, að það er rétt, sem ég hefi haldið fram, að stj. getur haft áhrif á upphæð jarðræktarstyrksins.