08.04.1930
Neðri deild: 74. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1580 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)
3. mál, landsreikningar 1928
Fjmrh. (Einar Árnason):
Því er ekki að leyna, að menn líta nokkuð ólíkum augum á það, hvernig færa eigi á landsreikningnum innskotsfé ríkisins í Landsbankann. Í landsreikningnum, sem hér er um að ræða, er þetta fé, 1.500.000,00, talið ríkinu til eignar.
Nú er vitanlegt, að búið er að afskrifa þetta fé af reikningum bankans og að það er ekki til þar nú, en hinsvegar hefir ríkið greitt þessa fjárhæð til Landsbankans og er hún færð á landsreikninginn sem krafa, er ríkið eigi á hendur Landsbankanum. Vitanlega er hér ekki um kröfu að ræða í venjulegum skilningi, þannig að Landsbankanum beri skylda til að greiða þetta fé, heldur ber að líta á þetta sem eign, sem er sérstaks eðlis, á sinn hátt eins og Landsbankinn í heild sinni er eign ríkisins, þó að ekki sé hann talinn ríkinu til eignar á landsreikningnum, enda er aldrei hægt neitt um það að segja, hversu mikils virði hann er. Ég áleit ekki rétt að strika þetta út, eins og hér væri um upphæð að ræða, sem aldrei sæist framar, og því er það fært á landsreikningnum sem nokkurskonar krafa. Hvort sú krafa er mikils eða lítils virði í sjálfu sér, skiptir minna máli.
Mér skilst, að hv. n. vilji láta færa þessa kröfu innanstriks. Þar sem gera má nú ráð fyrir, að Landsbankinn muni af aflafé sínu smátt og smátt geta safnað þessu stofnfé, þætti mér fróðlegt að vita, hvernig n. hugsar sér, að þessari færslu varði hagað, þegar bankinn fer að safna. Það er náttúrlega hægt að færa þetta utanstriks eða innan, eftir því sem bankinn safnar þessu, en það verður hálfálappaleg bókfærsla. Annars held ég engu ákveðnu til streitu um það, hvernig færslu þessa liðs skuli hagað. Hér er um upphæð að ræða, sem ríkið hefir enga kröfu á að fá sér greidda, og ef eignir ríkissjóðs yrðu gerðar upp, veit enginn, hversu mikið hann á, þar sem Landsbankinn er. Ef Alþingi óskar eftir, að þessi upphæð verði færð eftir till. n., verður það að sjálfsögðu gert, en eins og málið liggur nú fyrir, getur vilji Alþingis í þessu efni ekki komið fram. Þó að n. mælist til þess, að þessari færslu verði fremur hagað á einn veg en annan, verður slíkt ekki bindandi á neinn hátt, þar sem það kemur aðeins fram sem tilmæli í nál.
Ég get verið sammála n. um, að það sé í raun og veru rétt að færa enska lánið með hinu núverandi gengi pundsins, en í landsreikningnum, sem hér um ræðir, var haldið þeirra venju, sem verið hefir undanfarið, hvað færslu þessa liðs snertir. Þar sem n. telur réttara að færa þennan lið með genginu 22,15, verð ég að skilja það svo, að n. líti svo á, að þetta sé það fasta gengi nú og í framtíðinni.