08.04.1930
Neðri deild: 74. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (2095)
3. mál, landsreikningar 1928
Frsm. (Sigurður Eggerz):
Mín aths. getur, að því er snertir hv. 1. þm. Reykv., verið ennþá styttri, eftir að hv. 1. þm. Skagf. hefir tekið fram það, sem ég vildi segja.
Það liggur í hlutarins eðli, að ég sé ekki, að menn geti séð nokkra veilu hjá hv. n. í þessu. Hv. n. vill láta þetta sjást og standa þarna, eins og hv. 1. þm. Skagf. segir. Samlíking hv. 1. þm. Reykv. um sökkvandi skip getur ekki átt við hér, af því að Landsbanki Íslands er ekkert sökkvandi skip. En því má trúa, að Landsbankinn muni eignast þetta fé síðar, og þá er rétt að minna á þessa upphæð, með því að láta hana standa þarna, en ekki hafa áhrif á eignahliðina, áður en hún er komin inn.
Ég veit, að hæstv. forseti muni ekki geta fengið sig til að meina mér að gera örstutta aths. um Staðarfellsskólann. Hann er til sóma fyrir héraðið og er rekinn af miklum dugnaði og við mikla aðsókn. Allir, sem til þekkja, vita, að það er fyrirmyndarstjórn á skólanum. Það er mjög svo óheppilegt, að það skuli hafa verið farið svo hörðum orðum sem hér hefir gert verið um forstöðukonu skólans. Ég hefi oft komið að Staðarfelli; ég er ekki sjálfur bær að dæma um það, sem þar er kennt, en ég heyri, að almenningur álítur, að skólinn sé rekinn af miklum dugnaði, og gott sýnishorn þess er það, hve mikla aðsókn hann hefir. Það, sem hv. þm. Barð. sagði um búið, get ég ekki dæmt um, af því að ég þekki ekki nóg til þess, en þessi skólastýra, sem hefir lagt allt sitt þrek í að stjórna skólanum, hefir ekki samtímis annað því að reka búskapinn, og bróðir hennar, sem hafði á hendi stjórn búsins, fór frá henni síðastl. vor. Ég veit ekki til annars en að búið hafi verið selt og að hver hafi fengið sitt, sem þar hafi átti til skuldar að telja, svo að ég mótmæli algerlega þeim hörðu ummælum, sem komið hafa frá hv. þm. Barð. Þessi skóli hefir verið til fyrirmyndar, en hvað það snertir, að enginn ábúandi hafi fengizt á þessa fyrirmyndarjörð, þá get ég mótmælt því líka, vegna þess að orðlagður dugnaðarmaður, Þórður frá Breiðabólsstað, hefir fengið ábúð á jörðinni; það er því naumast hægt að fá betri mann til að sitja hana. En um það, hvort jörðin er komin í niðurníðslu fyrir þann stutta tíma, sem skólinn hefir haft þar bú, má bezt dæma með því að athuga það, hvort Þórður frá Breiðabólsstað myndi þá sækja til jarðarinnar, frá sinni góðu jörð. Ég vil því mótmæla þeim áburði algerlega.