08.04.1930
Neðri deild: 74. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1591 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)

3. mál, landsreikningar 1928

Hákon Kristófersson:

Ég vona, að hæstv. forseti sýni mér þá sanngirni að leyfa mér að tala um annað en það, sem fyrir liggur, þegar svona stendur á. Ég ætlaði ekki að taka til máls nú, en ég verð að svara hinni ágætu ræðu hv. þm. Dal.

Það hefir oft verið sagt um vin minn, hv. þm. Dal., að hann sé góðar að tala fyrir eyrum lýðsins. Því miður voru þau heldur fá, sem ræðu hans heyrðu, en ég vona, að sá sannfæringarkraftur, sem var í orðum hans, hafa ekki farið framhjá eyrum þeirra, sem heyrðu.

Ég vona, að hv. þm. taki mér það ekki illa upp, þó að ég sé ekki svo uppfullur af hræsni og skriðdýrshætti, að ég segi ekki fulla meiningu mína, hver sem í hlut á. Ég verð að tala um þessar persónu, frá almennu sjónarmiði, því að þær hafa nú einu sinni lagt það á sig að sjá um þessa stofnun, og væri full ástæða til, að það væri ósk manna, að það væri með sem mestum sóma fyrir héraðið. Ég sagði ekkert um það, að skólinn væri héraðsskömm, og veit ekki, hversu dómbær hv. þm. er til að segja um það, en hv. þm. var með í þeirri krýningu í fyrra, þegar hann tók höndum saman við þá menn, sem að mínu áliti gerðust engu betri en líkræningjar, svo að það er ekki nema eðlilegt, að hverjum þyki sinn fugl fagur. (SE: Tölum ekki í líkingum). Það verða ekki líkingar hjá mér, en hv. þm. verður að finna sig í því, að ég svari honum, þótt svörum mínum verði mjög í hóf stillt og ólíkt kurteislegri en hans ræða var. Hv. þm. sagði, að öll stjórn þarna hefði verið fyrirmynd. Jú, jú. Bjó eitt ár, eitt ár með o. s. frv. Búið eftir eitt ár að selja allan fénaðinn, svo er komið til stj. og sagt: Fyrir guðs skuld, takið af mér jörðina, ég er ekki fær um að stjórna henni. Þetta er nú á íslenzku kallað að flosna upp. Getur verið, að stjórnin hafi verið sæmileg innanbæjar, ég segi ekkert um það, ég tala aðeins um þetta frá almennu sjónarmiði, og þegar ég tala um skólann, þá á ég vitanlega við afkomuna á Staðarfelli yfirleitt. Því skal ekki neitað, að skólinn hefir til þessa verið fjölsóttur, en við skulum sjá, hvernig það verður eftir ein 2—3 ár, hvort sömu stúlkur þegar tímar liða koma þar oftar en einu sinni.

Það má vel vera, að skólastýran hafi lagt allt sitt mikla þrek fram. Ég skal ekkert um það segja. En það eitt er víst, að hún hefir gersamlega gefizt upp við búskap á jörðinni. Viðkomandi því, er sagt var um missi ráðsmannsins, þá má um það segja, að bústýran hefði átt að þekkja bróður sinn, svo að henni kæmi ekki á óvart, þó að hann hlypi frá henni. Ég sagði ekkert um það, að hver fengi ekki sitt. En úr því að hv. þm. Dal. fullyrðir, að allir fái sitt, þá verð ég draga í efa, að ríkissjóður fái sitt af því framlagi, sem til skólans hefir gengið, því kunnugt er mér um það, að fénaður sá, er seldur var á uppboði síðastl. vor, seldist undir því verði, er fyrir hann var upprunalega gefið. Ekki datt mér í hug að segja, að jörðin væri komin í niðurníðslu. Það hefði orðið að vera bætandi hönd eða hitt þó heldur, sem komið hefði því í verk á 2 árum. Það var ástæðulaust af hv. þm. að eigna mér þau orð. Byggingarnar á jörðinni skulum við ekki tala um. Þennan mann, sem hann sagði, að nú ætti að taka við jörðinni, vil ég hvorki lofa né lasta, ég þekki hann ekkert. Aftur á móti vænti ég þess, að viðkomandi manni verði byggð jörðin með fullkomnum heiðarlegheitum, en ekki verði notuð t. d. einfeldni nokkurs manns eða aðrar ástæður til að taka Staðarfell fyrir 1.500 kr. árl. eftirgjald.

Það er engin furða, þó ég finni ástæðu til að fjölyrða dálítið um þetta mál, og þá um leið víta hina mjög svo ómannlegu framkomu, sem höfð hefir verið í frammi gagnvart síðasta vilja hinnar göfugu konu Herdísar Benediktsen, þá er hún gaf fé sitt til skólastofnunar á Vesturlandi. En á það vil ég benda, eins og ég hefi oft áður gert, að fyrirmæli hennar hafa verið að engu virt. Ef hv. þm. Dal. finnur ástæðu til að gera frekari aths. við mín orð, vona ég, að hæstv. forseti gefi mér leyfi til