16.04.1930
Efri deild: 79. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1601 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

3. mál, landsreikningar 1928

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Fjhn. hefir haft nauman tíma til þess að athuga þetta frv. að þessu sinni, en fjhn. Nd. hafði aftur á móti sæmilegan tíma til þess og lét frá sér allítarlegt nál.

Þó að tíminn sé stuttur, sem n. hefir haft til umráða til athugunar á þessu frv., þá taldi n. ekki neitt sérstakt liggja fyrir, sem gerði það að verkum, að ástæða væri til annars en leggja til, að frv. verði samþ., sérstaklega með skírskotun til þess, sem tekið er fram í nál. fjhn. Nd. Tel ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða um málið.