03.04.1930
Efri deild: 68. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (212)
1. mál, fjárlög 1931
Jón Baldvinsson:
Ég sé, að íhaldið er nú orðið svo dasað, að það treystir sér nú ekki í eldhúsið lengur, svo það erum við jafnaðarmenn einir, sem eigum nú við stj.; enda ber okkur nú meira á milli en íhaldinu og stj. Þetta kom fram, þegar hæstv. forsrh. byrjaði ræðu sína, því þá lýsti hann yfir því meðal annars, að hann mundi ekki geta veitt þjóðnýtingarstefnu okkar jafnaðarmanna fylgi sitt. Hæstv. stj. er því á móti aðalmálum okkar.
Hæstv. ráðh. vildi láta þetta líta svo út, að það væri bara í stóru málunum, sem stj. og jafnaðarmönnum bæri á milli. Í öllum mannúðarmálum og málum frjálslynda flokksins væri stj. samfara jafnaðarmönnum svo langt, sem þeir ganga í því efni.
Mér þykir það leiðinlegt, að hæstv. fórsrh. skuli vera óbeinlínis að óska eftir því, að ég telji upp málin. Ég ætla ekki að nefna nema smáu málin til að sýna, hvað tregðan er mikil hjá íhaldinu og Framsókn. Því það er ekki annað en íhaldið, sem gerir það að verkum, að Framsókn er ekki með ýmsum minni háttar málum, sem ekkert kostar hana annað en að hún fengi ekki eins gott umtal í íhaldsblöðunum.
Ég get farið í registrið og séð, hvaða mál það eru, önnur en þjóðnýtingarmál, sem frjálslyndi flokkurinn hefir ekki talið sér skylt að fylgja. Ég get talið upp aragrúa af slíkum málum, sem alls ekki eru þjóðnýtingarmál, heldur mál, sem frjálslyndum flokkum í hverju landi er skylt að sinna.
Ég get byrjað á einkasölu á tóbaki, einkasölu á lyfjum — þau mál eru ekki þjóðnýtingarmál, þar sem þau snerta ekki atvinnuvegi landsmanna —, breytingar á fátækralögunum, breyting á lögum um hlutafélög frá 1928, um verðtoll á vörum frá 1928, heimild fyrir ríkisstj. til að setja á stofn hvalveiðistöðvar, sem þó kannske gæti kallazt þjóðnýtingarmál. Þá get ég talið forkaupsréttinn, breytingar á kosningalögunum, sem stj. samþ. að vísu á þinginu 1929. En það undarlega var, að sömu ákvæðin voru felld 1928 af því að þá voru það jafnaðarmenn, sem báru þau fram. Næst get ég nefnt frv. um stofnun nýbýla. Það hefir oft verið fellt fyrir okkur, og er það þó eitt af því nauðsynlegasta, sem þarf að vera í búnaðarmálum. Allir framsóknarmenn voru á móti frv. um að banna næturvinnu við uppskipun o. fl. Þó er þetta ekki annað en allir sjá, að verkamannafélögin geta sjálf gert með samþykktum. Hinsvegar hefði verið miklu eðlilegra, að löggjöfin hefði tekið í taumana. Frá 1928 er enn á döfinni mál um verkakaupsveð, opinber reikningsskil hlutafélaga, einkasala tóbaks, forkaupsrétturinn og atvinnuleysistryggingar, — en öll felld.
Ég hefi nú talið upp fjölda mála, — sum þeirra eru afar þýðingarmikil, — sem framsóknarmenn hafa fellt fyrir okkur jafnaðarmönnum, mál, sem varða verkalýðinn miklu, en kosta ríkissjóðinn ekkert. Við jafnaðarmenn höfum þess vegna sannarlega ástæðu til að finna að við hæstv. stj. En ég verð þó að segja, að við höfum veitt stj. stuðning til að koma fram mjög merkum landbúnaðarmálum. Ég er ekki að telja það eftir; við höfum gert það, af því að við höfum álitið þau vera til gagns, þó að teflt væri á fremsta hlunn með fjárframlög til landbúnaðarins. Hæstv. ráðh. veit, að lög um Búnaðarbankann, sem bændur vænta sér svo mikils af, eru aðeins komin fram fyrir stuðning jafnaðarmanna, því að Íhaldið var alltaf tilbúið að fella þau. Hæstv. ráðh. var að hæla sér af því, að hann gæti nefnt hvert stórmálið á fætur öðru, sem hann hefði stutt fyrir okkur. Já, ég skal játa, að framsóknarmenn hafa hjálpað okkur í ýmsum merkum málum, en hinsvegar gæti stj. kannazt við sín eigin frv., í stað þess að gefa okkur þau, eins og t. d. frv. til sjómannalaga. Það er stjfrv.
Hæstv. ráðh. hélt, að við værum hræddir um, að framsóknarmenn mundu taka frá okkur atkv. við komandi landskjör. Nú, það var ekki svo ýkja mikill munur á jafnaðarmönnum og framsóknarmönnum við síðasta landskjör. Ef ég man rétt, höfðu jafnaðarmenn 3200 atkv., en framsóknarmenn 3500 atkv. Þetta gefur manni ekki mikla ástæðu til að óttast það, að verkalýður landsins fari að styðja Framsókn. Upp á síðkastið hefir andað mjög kalt frá framsóknarmönnum í garð ýmissa mála jafnaðarmanna. Ég get nefnt sem dæmi frv. um bæjarstjóra á Siglufirði. Þar þverbraut stj. sína eigin stefnu.
Hæstv. ráðh. sagði út af því, að sama vegavinnukaup ætti að vera um land allt, að hann hefði látið rannsaka kaup hjá ýmsum félögum, en það væri ákaflega misjafnt. Það veit ég, en við höfum í hyggju að koma á meira samræmi en nú er. Vegavinnukaup á að vera það sama um land allt. Það er sama vinnan, sem unnin er, undir sömu ástæðum. Þetta er líka vilji verklýsfélaganna. Hæstv. ráðh. má ekki álykta sem svo, að af því að kaupgjaldið sé misjafnt hjá hinum ýmsu félögum, sé það að vilja verklýðsfélaganna. Hið mismunandi kaupgjald sýnir einmitt, að sumsstaðar hafa verklýðsfélögin komið fram samningum um bætt kjör við atvinnurekendur.
Þá kom hæstv. ráðh. að því að tala um viðskipti, sem báðir aðiljar hefðu hag af. Þetta er nú ekki neitt nýtt eða frumlegt, þetta er eldgamalt slagorð prangaranna; þegar þeir voru að hafa hrossakaup og sviku hvern annan sem allra mest, þá var þetta orðtakið: „að báðir hefðu hag af skiptunum“. Þetta akkorð, sem hæstv. ráðh. heldur að báðir hafi hag af, er í eðli sínu svo, að báðir hafa bölvun af. Verkið yrði undantekningarlítið svo illa unnið, að skaði ríkissjóðs yrði meiri en hann kann að spara í kaupgjaldi. Vegirnir sýna, að kastað hefir verið til þeirra höndunum. Enda er það í rauninni ekki óeðlilegt, þegar ákveðið er, að svo og svo mikið skuli borga fyrir fermetrann, en eftirlitið venjulega illt. Einhver hvíslaði því að hæstv. ráðh., að vegavinnumenn í Borgarfirði hefðu haft upp undir 30 krónur á dag í ákvæðisvinnu. Þetta getur satt verið. En þó að fáeinir menn hafi haft þetta einhvern einstakan dag, er ekki þar með sagt, að þeir hafi haft gott kaup um sumarið yfirleitt. Það geta komið fyrir vegarkaflar, sem er ákaflega auðvelt að vinna að. En ákvæðisvinnan er áreiðanlega ekki miðuð við þá kaflana.
Hæstv. ráðh. féllst á það, að það hefði verið illa unnið að brúnni yfir Ferjukotssíki. En þar er verkfræðingnum mest um að kenna. Vegurinn hefir margsinnis bilað, og er alveg óforsvaranlegt að hafa veginn þarna. Ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvort hann geti ekki látið einhvern annan en Geir Zoëga rannsaka þetta mál. Á hverjum vetri eyðileggur Hvítá allt, sem Geir Zoëga hefir gert sumarið áður. Hann er nú búinn að hlaða í skarðið mörg ár. Honum finnst víst ekkert við það að athuga. Hann er orðinn svo vanur þessu og telur það heyra til embætti sínu. Og hvað kostar þetta? Við getum gert ráð fyrir 15 þús. kr. í 10 ár. Það er ekkert smáræðis fé. Hæstv. ráðh. sagðist ekki treysta sér til að taka fram fyrir hendurnar á vegamálastjóra. Mér finnst samt, að hann ætti að gera það í þessu máli.
Þá kom hæstv. ráðh. að vatnsveitunni á Hvammstanga og kvaðst ekki vita, hvort verkið hefði verið framkvæmt eða ekki. En hæstv. ráðh. skopaðist að því, að ég skyldi ekki vera fróðari en hann. Það er nú ekki eðlilegt, að ég sé það, en ég hefi grun um, að verkið sé óunnið: verkfræðingurinn hafi vanrækt rannsóknina, og hæstv. ráðh. ekki ýtt á eftir. Heldur hæstv. ráðh. ekki, að hann hefði séð betur um þetta, ef það hefði verið hv. þm. V.-Húnv., sem hefði flutt þál. um vatnsveitu á Hvammstanga? Ég vænti þess fastlega, að hæstv. stj. láti nú gera þetta í sumar og vonast til að heyra skýlausa yfirlýsing frá hæstv. ráðh. í þá átt.
Hæstv. ráðh. minntist á lóðarkaupin til handa landssimanum og sagði, að lóðin væri helmingi stærri en sú, sem hefði átt að kaupa 1925. Ég sagði það líka. En hún er á verri stað og í alla staði óhentugra fyrir almenning að hafa simann þarna.
— Hæstv. ráðh. játaði, að afgreiðsla á miðstöð væri léleg, þar sem stúlkurnar væru of fáar. En mér þótti leitt að heyra. að hæstv. ráðh. vildi ekkert úr þessu bæta. Ég álít sjálfsagt að bæta við stúlkum, þó að það fyrirkomulag, sem nú er, standi ekki lengur en eitt ár.
Ég get þá snúið mér að hæstv. fjmrh. Hæstv. fjmrh. misskildi mig algerlega. Ég var ekki að spyrja um, hvernig háttaði veðdeildarflokkum Landsbankans. Ég vissi, að 8. flokkurinn er búinn. En ég spurði, hvað liði þeirri lántöku, sem stj. er heimiluð til veðdeildarflokkanna. Hvenær verður það lán tekið?
Hæstv. fjmrh. minntist dálítið á vegavinnuna og hélt, að það væri af ókunnugleika hjá mér, að ég væri á móti ákvæðisvinnu. Ráðh. sagði nefnilega, að verkamenn sæktust eftir ákvæðisvinnu. Já, það gera þeir, af því tímakaupað er svo lágt. Og þó að kaupið sé pínt niður við ákvæðisvinnu, eins og gert er, neyðast þeir til að taka hana, þó að strangari sé, ef kaupið með meiri vinnu verður eitthvað hærra en fyrir tímavinnu. Af tvennu illu kjósa þeir ákvæðisvinnuna.
Þá kem ég að hæstv. dómsmrh. Hann lýsti fagurlega áhuga sínum fyrir spítölum. Hann ætti þá að vinna með meiri áhuga en hann gerir að því að koma landsspítalanum áleiðis, sem stj. hefir heimild til þess að ljúka við, í stað þess að vinna að framkvæmdum, sem stj. hefir enga heimild til að vinna að. Hvað líður landsspilalamálinu hjá hæstv. ráðh.? Það var það, sem ég spurði um, en ekki um hinn almenna áhuga ráðh. fyrir spítölum.