11.04.1930
Neðri deild: 77. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (2137)

361. mál, fjáraukalög 1929

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég skal aðeins leyfa mér að benda á, að í 6. lið 9. gr. hefir misprentazt kr. 39.567,47 í stað kr. 39.576,47. Geri ég ráð fyrir, að þetta megi leiðrétta við uppprentun.