14.02.1930
Neðri deild: 25. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)
116. mál, ábyrgð rekstrarláns til útgerðar
Héðinn Valdimarsson:
Hv. þm. V.-Ísf. hefir hlotið að misskilja orð mín viljandi, því að ég sagði alls ekki, að Íslandsbanki hefði haft nægilegt fé til þess að koma útgerðinni af stað, enda er slíkt hin mesta firra. En hitt voru mín orð, að ef skilanefnd hefði strax verið sett á laggirnar, þá hefði hún getað látið Landsbankann fá nóg veð, og þannig útvegað útgerðarfyrirtækjunum fé til þess að halda út yfir vetrarvertíðina. Ef þannig hefði verið farið að, hefði það orðið til hagnaðar bæði bankanum og fyrirtækjunum, því ef ekki græðist fé á vetrarvertíðinni, þá veit ég ekki hvenær. (ÁÁ: Hvað á skilanefndin að gera hinn tíma ársins?). Um það er ekki verið að tala hér. Ríkisábyrgðin fyrir útgerðarlánin er aðeins ætluð til vertíðarinnar. Annars skal ég geta þess, að rannsóknin gæti verið búin nú, ef þingið hefði þegar í upphafi snúizt skynsamlega í þetta mál. (ÁÁ: Það get ég tekið undir).