04.02.1930
Efri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1652 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)
57. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):
Þetta frv. er flutt af allshn. eftir tilmælum frá alþingishátíðarnefndinni í samráði við stj. Frv. fer fram á heimild fyrir stj. til ýmsra ráðstafana vegna hátíðarinnar.
Í fyrsta lagi er henni heimilað að hafa einkarétt á merki alþingishátíðarinnar; sem mynd er af í 1. gr. frv. — Það er kunnugt, að verzlanir vilja nota þetta merki, einkum til þess að selja útlendingum muni til minningar um hátíðina. Slíkir munir yrðu seldir dýru verði. Nefndinni finnst eðlilegt, að stj. veiti leyfi til þess að nota þetta merki og að ríkissjóður fái tekjur af merkjasölunni. Þegar um verzlunarvörur er að ræða, skal gjaldið vera hundraðsgjald af verði vörunnar samkv. innkaupsreikningi, en þó aldrei yfir 15%. — Gjaldi því, sem inn kemur fyrir söluleyfi á merkinu, skal varið upp í kostnað við alþingishátíðina.
Í öðru lagi skal stj. heimilt að ákveða, að undangenginni skoðun, hverjar bifreiðar megi vera í notkun á vegunum milli Reykjavíkur og Þingvalla dagana 25.–29. júní þ. á., að báðum meðtöldum. Búast má við, að straumurinn verði mikill til og frá Þingvöllum þessa daga og að það geti hindrað umferðina, ef bifreiðar bíla. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa ekki aðrar bifreiðar í umferð en þær, sem reynzt hafa traustar við skoðun. Samkv. heimild frá síðasta þingi getur stj. takmarkað umráð bifreiðaeigenda; en ég get upplýst, að þessa heimild þarf ekki að nota, vegna þess að samkomulag hefir orðið á milli nefndarinnar og bifreiðaeigenda um að setja alla bifreiðaumferð á milli Rvíkur og Þingvalla undir eina stjórn. En það var gott að styðjast við heimildarlögin meðan á samningunum stóð.
Ef eftirlitsmenn bifreiða telja varhugavert, að einhver bílstjóri fari með bifreið á Þingvallaveginum þá daga, er um ræðir í 3. gr., sökum óvana eða af öðrum líkum ástæðum, þá skal stj. heimilt að banna þeim manni að stýra bifreið þá daga.
Loks skal stj. heimilað að kveða á um lokunartíma sölubúða í Reykjavík hátíðardagana 26.–28. júní, og einnig að setja ákvæði um, að sölubúðir í Rvík verði opnað að einhverju leyti sunnud. 29. júní. Gert er ráð fyrir, að stj. verði að setja reglur um þetta, að fengnum till. verzlunarmanna- og kaupmannafélaga í Reykjavík, svo og bæjarstjórnarinnar. –Búast má við því, að verzlunarfólk vilji sækja hátíðina og verði óánægt, ef það er ekki leyft. Þess vegna er nauðsynlegt, að fullt samkomulag sé um þetta á milli verzlana í bænum. Einnig má gera ráð fyrir, að ýmsir þurfi að komast í búðir á sunnud. 29. júní, en það er ekki heimilt vegna helgidagalöggjafarinnar, og þess vegna er farið fram á þessa undanþágu.
Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.