04.02.1930
Efri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1658 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)
57. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
Björn Kristjánsson:
Ég vildi gjarnan fá upplýsingar viðvíkjandi 1. gr. frv., sem fjallar um einkarétt á merki hátíðarinnar. Þar segir, að engum sé heimilt að nota merkið á „verzlunarvöru“ án leyfis stj. Ég get varla skilið, að hér sé í rauninni átt við það, sem orðalagið bendir til. Ég hefi helzt skilið þetta á þann veg, að hér sé átt við smíðisgripi eða gripi, sem gerðir hafa verið í sambandi við hátíðahöldin, til þess að eiga þá til minja um hátíð þessa. Verðu slíkir hlutir dýrari og dýrari eftir því sem lengra líður frá. Ef ég hefi skilið þetta rétt, þá er orðalag gr. mjög óheppilegt, og þarf að breyta því, ef vel á að vera.
Loks er annað atriði, sem ég vil beina athygli manna að. Í gr. stendur, að lögreglustjóri skuli innheimta gjald fyrir merkið eftir innkaupsreikningi. Nú getur vel staðið svo á, að gjaldgreiðandi hafi búið hlutinn til sjálfur. Hvernig fer þá? Hvernig á lögreglustjóri að innheimta gjaldið eftir innkaupsreikningi, ef enginn slíkur er til? Það þarf að taka eitthvað fram um þetta, og vænti ég þess, að hv. n. taki þetta til athugunar.
Annars skal ég taka það fram, að mér er næsta óljúft að tala um alþingishátíðina meðan svo stendur á á þingi, sem nú er raun á.