17.02.1930
Neðri deild: 29. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1670 í B-deild Alþingistíðinda. (2241)
57. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
2241Ólafur Thors:
Mér þykir þetta mál allt of ómerkilegt til að fara að svara öllu, sem fram hefir komið, bæði frá hv. 1. þm. Reykv. og öðrum. Ég held ég hafi hermt rétt frá, þegar ég sagði, að það eina merkilega væri ákvæði 1, greinar, sem hv. 1. þm. Reykv. minntist á. Það er alveg rétt, að þetta verður tekjustofn fyrir ríkissjóð, og hann meiri en þm. virtist gera sér grein fyrir. Sjálfsagt verður flutt inn eitthvað af leirvöru og postulíni og ýmsum gripum, sem þetta merki verður notað á. Ég get ímyndað mér, að af þessu fáist tugir þúsunda í tekjur fyrir ríkissjóð. En svo er upp talið það, sem merkilegt er í þessu frv.
Hv. þm. Borgf. sagði um 5. gr., að hún væri að vísu slæm, en þó bæði meinlaus og gagnslaus, en 3. og 4. gr. heldur til óþrifa. Annars bað hann mig að skila til hv. 1. þm. Reykv., að sér þætti hláleg ákvæði 5. gr., að þegar menn væru búnir að svelta 3 daga, þá ættu þeir ekki að ganga í guðshús, heldur í bakaríið. Þetta þykir óprestslega hugsað af hv. 1. þm. Reykv. (MJ: Miklu betra fyrir svangan að borða en fara í kirkju).
Að loka sölubúðum álít ég sjálfsagt, og ég hygg, að ekki þurfi nein lagafyrirmæli til þess. Enn vildi ég andmæla, að 3. og 4. gr. nái fram að ganga. Það er ekki sanngirni að taka af mönnum þann rétt, sem þeir hafa. Og það er mesti misskilningur hjá mönnum, að það verði nokkuð meiri hætta af umferð þessa daga en aðra. Ég er gamall bílstjóri og veit, að þegar margir aka saman í lest, er ekki nokkur hætta á árekstri, enda fara þá allir hægt. En mér var langmest hætta búin, þegar enginn var nálægt mér, því að þá hætti mér til að aka hart. Í Reykjavík eru víst hundrað sinnum fleiri bílslys en í London að tiltölu miðað við umferð. Menn aka hér með of miklum hraða, en í London er bílalestin víða óslitin og hraðinn því takmarkaður.
Það eru engin rök í þessu máli, að bílstjórar muni flýta sér að ná prófi til að geta ekið bíl þessa daga. Þá mætti semja svo um, að prófdómendur afhendi ekki skírteini þeirra manna fyrir hátíð, ef þeim þykir ástæða til vegna skorts á æfingu. Þetta væri í lófa lagið. En annars er lítil ástæða til að halda, að mjög margir keppist við að ná í skírteini, af því að þeir, sem hafa eldri réttindi, sitja aðallega fyrir bílunum, sem í notkun verða.
Ég skal ekki hallmæla n. fyrir ráðstafanir hennar til að tryggja mönnum sæti til Þingvalla þessa daga við ákveðnu verði. En ég er henni ekki sammála um, að það sé nauðsynlegt. Það er rétt, að gera má ráð fyrir, að þegar menn fara heim, verði lítið um farþega austur. En fyrst, þegar verið er að flytja menn austur, þá fara margir heim á kvöldin. Svo að það er ástæðulaust, að bifreiðastöðvarnar megi taka helmingi hærra gjald. Ég hygg, að þeir, sem samþykktu þessi lög í fyrra, um að heimila n. yfirráð yfir bifreiðum, hafi ekki ætlazt til þessa hjá henni, – og ég vil a. m. k. þvo hendur mínar. Ég hélt ekki, að hún mundi gera svo óhagstæða samninga.