17.02.1930
Neðri deild: 29. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1672 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)
57. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
Sigurður Eggerz:
Ef ég væri ekki sérstaklega hugaður, myndi ég ekki kasta mér inn í þennan eld, sem kviknað hefir í þessu stóra máli.
Hv. þm. Borgf. reyndi að gera 5. gr. frv. gyslega, og þær ráðstafanir, sem þar eru gerðar, en þær eru gerðar til þess, að vissu fólki verði kleift að sækja hátíðina. Ef skrifstofum og sölubúðum er haldið opnum, þá getur þetta fólk ekki tekið þátt í hátíðinni, og þess vegna er gripið til þessara ráðstafana.
Að því er snertir það, að farið skuli gætilega á bílvegum, þá álít ég sjálfsagt að setja um það ákvæði, vegna hinnar miklu umferðar, til þess að slysum verði afstýrt. Hv. 2. þm. G.-K. talaði um bílslys í London, en ef hann hefði kynnt sér það mál, þá myndi hann, þó karlmenni sé, fara þar upp í bifreið með hálfum huga vegna hinna tíðu slysa. Ég hefi athugað það mál og komst að þeirri niðurstöðu, að slysatalan þar er mikil. Af þessu hygg ég, að óhætt sé að álykta, að aths. við 4. og 5. gr. séu ástæðulausar.