12.02.1930
Efri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1677 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)
86. mál, kosningar til Alþingis
Jóhannes Jóhannesson:
Það var ekki af því, að ég hefði nokkuð á móti frv., að ég færðist undan því að gerast meðflm. þess. Ég játa, að ef alþingishátíðin verður haldin, þá verður að breyta kjördeginum, og sú till., sem fyrir liggur, er þá ekki óheppileg. En hitt held ég að sé vafasamt, að það verði mikið um hátíðahöld í júnímánuði næstk., eftir því sem útlitið bendir til nú. (JBald: Ætla íhaldsmenn ekki að koma á alþingishátíðina?).