17.02.1930
Efri deild: 27. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1679 í B-deild Alþingistíðinda. (2272)

86. mál, kosningar til Alþingis

Jón Jónsson:

Ég þakka hv. frsm. skýringuna. Eftir meiningu hans er það tilætlunin að taka þá ekki á aðalkjörskrá, sem kosningarrétt öðlast frá 10. júní til 1. júlí. En þetta kemur ekki glöggt fram í brtt., því þar er ekki gert ráð fyrir neinum breyt. á kjörskránum. Það þarf að setja ákvæði um þetta. Ella er 1. og 58. gr. kosningalaganna brotin, að því er mér skilst. Annars sætti ég mig við þetta í bili, en mun athuga það til 3. umr., hvort ástæða er til þess að koma með brtt. við þetta.