25.02.1930
Neðri deild: 36. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (2280)
86. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Magnús Torfason):
N. hefir lagt til, að frv. verði samþ. óbreytt, þó með fyrirvara um að bera fram till. um ákveðinn kjördag, ef svo sýnist. Ástæða þessa fyrirvara er sú, að í 1. gr. frv. segir, að þingkosning skuli fara fram í júnímánuði, þó ekki fyrr en 10. dag mánaðarins.
Nefndinni kom saman um, að það gæti ekki náð nokkurri átt að hafa kjördag eftir þann 20. júní. Það væri þá of nærri hinni fyrirhuguðu alþingishátíð. Af því leiddi aftur, að margir, sem vildu sækja hátíðina, gætu ekki sótt kjördag. Hinsvegar er sjálfsagt að hafa kosninguna annaðhvort á laugardag eða sunnudag. Hér er þá aðeins um eina helgi að ræða, þ. e. laugard. 14. júní eða sunnud. 15. júní. Með því að n. leggur áherzlu á, að kjördagur verði annanhvorn þennan dag, vildi hún leita upplýsinga hjá hæstv. ráðh. um það, hvorn daginn hæstv. stj. hefir hugsað sér að leggja til að yrði kjördagur.