27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1682 í B-deild Alþingistíðinda. (2284)

86. mál, kosningar til Alþingis

Magnús Guðmundsson:

Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. á þskj. 186 um það, að kjördagur til landskjörs í ár verði ákveðinn laugardagur 14. júní.

Það hefir verið vikið að því áður, hvort ekki væri rétt að hafa hann 9. júní, sem er 2. í hvítasunnu, og kom það til athugunar í allshn., en ég hygg, að flestum hafi þótt það of snemmt. Hinsvegar var ágreiningur í n. um það, hvor dagurinn skyldi valinn, laugard. 14. eða sunnud. 15. júní.

Ég vil halda mér við þá reglu, sem gilt hefir, að kjördagur skuli vera á virkum degi, og þá helzt laugardegi, því að þá á fólk hægast með að sækja á kjörstað. Hvað því viðvíkur að hafa kjördag á sunnudegi, þá er það að segja, að þeir dagar eru ekki hentugir til kosninga, í það minnsta ekki fyrir þá, sem eiga langt að sækja á kjörstað.

Ef kjördagur yrði ákveðinn 9. júní, væri gripið til hins óheppilegasta ráðs, því að þá eru annir miklar og sauðburður ekki búinn, en hinsvegar mun hann úti um 14. júní. Það er nauðsynlegt að ákveða alllöngu fyrirfram, á hvaða degi eigi að kjósa, og þá er eðlilegast að ákveða það með lögum nú þegar, en ef það verður eigi gert, verður hæstv. stj. að ákveða daginn bráðlega.