14.03.1930
Neðri deild: 53. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (2340)
238. mál, útvarp
Sigurður Eggerz:
Ég verð að játa, að ég hefi lítið kynnt mér frv. þetta. En við fljótan yfirlestur virðist mér þó svo, að ef frv. verður gert að lögum, þá muni það leiða til aukins kostnaðar um rekstur útvarpsins. Ég hefi ekki heyrt þau rök færð fyrir því að taka hina teknisku yfirstjórn frá landssímastjóra, sem fullnægi mér. Ef hann er tekinn út úr því starfi, þarf annan kraft í staðinn. Ég skal ekki segja mikið um samsetningu útvarpsnefndarinnar. En mér finnst þó ástæðulaust að fara að búa til stærra bákn en þörfin krefur. Eftir frv. á útvarpsstjóri að hafa á hendi fjárreiður allar og reikningshald vegna stöðvarinnar og útvarpsins, auk umsjónar með rekstri stöðvarinnar. Verður þetta nú ekki til þess, að útvarpsstjórinn fær ekki nægan tíma til að gæta aðalstarfsins, sem til er ætlazt að hann leysi af hendi? Mér sýnist því í fljótu bragði athugavert að kippa þessu starfi af landssímastjóra, og setja það á útvarpsstjóra, sem virðist hafa nóg starf fyrir.