07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)
238. mál, útvarp
Sigurður Eggerz:
Ég vildi aðeins leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að þetta mál yrði tekið út af dagskrá, svo að það gæti komið fram nál. frá minni hl. Vil ég lofa því, að nál. skal verða lokið í kvöld, svo að það geti farið strax í prentun. Þetta mál er umfangsmikið og hefir lítill tími verið til að athuga það, en ég hygg, að þetta geti ekki valdið verulegri töf fyrir málið.