07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)

238. mál, útvarp

Frsm. meiri hl. (Hannes Jónsson):

Ég held, að það sé alveg óþarft að vera að fresta þessu máli vegna nál. frá hv. minni hl. n., því að ég held, að það sé ekki annað, sem hann leggur til, en að frv. verði fellt, og mun það álit þeirra rökstutt með þeim ástæðum, sem landssímastjóri færir gegn sumum ákvæðum frv. og birtar eru í bréfi landssímastjóra, sem prentað er með nál. meiri hl.