09.04.1930
Efri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (235)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (GÓ):

Ég held, að hv. fjvn. hafi talað nóg um þessar brtt., og þó að einhverjar smátill. hafi komið síðan, held ég að menn geti vel áttað sig á þeim án sérstaks nefndarfundar. Ég vildi, að menn notuðu sér tímann til umræðna fyrir háttatíma, því að það er að minnsta kosti einn hv. þdm., sem ekki segist geta verið við atkvgr. hér eftir kl. 12.