07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1713 í B-deild Alþingistíðinda. (2356)
238. mál, útvarp
Frsm. meiri hl. (Hannes Jónason):
Til viðbótar því, sem ég sagði um athugun þessa máls í n., skal ég geta þess, að 1. apríl var málið afgr. frá n. Hv. minni hl. hefir því haft heila viku til þess að semja nál., og ætti það að vera nægur tími, ef hann á annað borð kærði sig um að skila nál. Eigi nokkuð að gera til þess að greiða fyrir málum í þinginu, mega slík vinnubrögð sem þessi ekki líðast.