07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (2366)
238. mál, útvarp
Frsm. meiri hl. (Hannes Jónsson):
Ég vil vona, að eftir þessa inngöngubæn megi nú takast skaplegar umr. um málið.
Aðalatriði þessa frv. er að sameina stj. útvarpsins undir eina yfirstjórn, í stað þess að nú er hún í tvennu lagi, undir útvarpsstjóra og landssímastjóra. Má vænta þess, að stj. þessa mála verði tekin fastari tökum, ef hún er öll á einum stað. Hinsvegar álítum við í meiri hl. ekkert því til fyrirstöðu, að samningar geti tekizt milli símastjóra og útvarpsstjóra um samvinnu um ýms „teknisk“ atriði, eins og vélgæzlu o. fl. Annars þykist ég ekki þurfa að fara langt út í þetta atriði. Ég vænti, að hv. þdm. hafi kynnt sér þau fylgiskjöl, sem prentuð eru með nál., en þar mun koma fram flest, bæði með og móti. Sérstaklega finnst mér rík ástæða til að taka það til greina, sem símaverkfræðingurinn segir. Hann mundi í raun og veru verða yfirmaður þessarar teknisku starfsemi, ef lögunum verður ekki breytt.
Annað atriði, sem skiptir miklu máli, er heimildin til einkasölu á útvarpstækjum. Ég vona, að hv. þd. athugi, að hér er aðeins um heimild að ræða, og útvarpsráðið hefir áskilið sér rétt til að fá þetta atriði aftur til athugunar, áður en í nokkrar framkvæmdir væri ráðizt.
Þá er brtt. út af verðinu á útvarpstækjum, sem er í 14. gr., en ekki 15., eins og misprentazt hefir í nál. Það var þessi brtt., sem hv. þm. Barð. var að tala um, og ég skal viðurkenna, að ég fór að leita í þskj. og aðgæta þetta, þegar hann nefndi það. Ég hefi svo mikið álit á þessum hv. þm., að ég trúði honum næstum betur en sjálfum mér, og hélt því um stund, að brtt. ætti kannske að vera við 15. gr. En þetta reyndist nú allt rangt hjá honum. — Brtt. þessi er flutt samkv. ábendingu útvarpsráðsins, og það sýnist vera sanngjarnt, þegar verðið er ákveðið, að leggja áherzlu á það, að tækin verði ekki höfð svo dýr, að það dragi úr almennri notkun þess. En að sjálfsögu fær útvarpið þann hagnað, sem annars mundi lenda í höndum þeirra manna, sem verzluðu með þessi tæki.
Aðrar brtt. n. eru eiginlega ekki annað en orðabreyt. Við 1. gr. er sú breyt., að í staðinn fyrir „útvarpsstöð“ komi „skipulag og rekstur útvarps“. Er það samkv. till. landssímastjóra og af ástæðum, sem fram eru færðar með brtt. Og af sömu ástæðum eru aðrar orðabreyt., sem felast í brtt., sem fyrir liggja.
Ég finn svo ekki ástæðu til að ræða frekar um þetta mál. Ég geri ráð fyrir, að heppilegast væri að lofa því að ganga gegnum þessa umr. með þeim breyt., sem meiri hl. n. leggur til, og að við 3. umr. komi svo hv. minni hl. fram með þær aths. og brtt., sem hann að öðru leyti vildi gera við frv.
Ég álít, að málið græði ekki á því, að farið sé að karpa verulega um einstök atriði. Því að svo framarlega sem höfuðatriðið, sem ég minntist á, nái ekki hylli hv. þd., þá er yfirleitt svo lítið unnið með því að breyta frv. í smærri atriðum, að varla er þess vert að vera að halda því til streitu.