07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (2370)
238. mál, útvarp
Ólafur Thors:
Ég hefði að vísu heldur óskað að geta gert grein fyrir skoðun minni í stuttu nál., en þar sem málið var tekið á dagskrá nú í dag, verð ég að skýra frá mínu áliti í ræðu.
Það er fyrir ofurkapp hæstv. atvmrh., að málið var tekið á dagskrá í dag. Þess vegna var ekki hægt að koma með nál., og er að því mikil tímatöf og óþörf, og hefði verið miklu betra að láta málið hafa þann gang, sem venja er til. Nefndarálit eru hvort sem er til þess að gefa mönnum kost á að skýra frá, á hverju þeir byggi þá niðurstöðu, sem þeir hafa komizt að í málinu, og þá þarf varla að ræða málið eins mikið. Ef menn sannfærast ekki af þeim rökum, sem eru í nál., þá sannfærast þeir varla við umr. Ennfremur mæla þingsköp svo fyrir, að nefndir eða nefndarhlutar skuli skila sérstöku áliti, og er það byggt á þeirri staðreynd, að það greiði fyrir málinu.
Ég get tekið undir það með hv. þm. Vestm., að útvarpsmálið sé eitthvert mesta menningarmál Íslands. Það er álit allra þeirra, sem bera glöggt skyn á þetta mál, að rétt sé að leggja ýmsar kvaðir á ríkissjóð til að greiða fyrir því mikla þrifamáli þjóðarinnar. Hinu dettur mér ekki í hug að neita, að þessu menningarmáli hefir verið stofnað í voða með vali útvarpsstjórans. Annars hefi ég áður gert grein fyrir skoðun minni f því efni og fer því ekki frekar út í það, að öðru leyti en því, að sú veiting er þeim mun verri, sem sannanlegt er, að hæstv. atvmrh. gekk vitandi vits að verki í því efni. Það hefir öllum verið ljóst frá upphafi þessa máls, að mest af öllu reið á, að útvarpsstjórinn væri vel valinn og óhlutdrægur í öllum efnum. Á hinn bóginn er það öllum vitanlegt, að sá, sem hlaut stöðuna, hlaut hana vegna þess, hvað hann var hlutdrægur. Fyrst og fremst vegna þess hlaut hann stöðuna. Hann var svo hlutdrægur í garð forsrh. sem ritstjóri við aðalblað Framsóknarflokksins, að ráðh. gat ekki unað við að hafa hann þar. Þess vegna setti hann hann í þessa stöðu. Hann gat ekki losnað við ritstjórann með öðru móti en að kaupa hann burt með því að veita honum stöðuna.
Ég skal ekkert um það dæma, hversu mikla hæfileika hann hefir sem útvarpsstjóri. Hann hefir sjálfsagt suma af þeim kostum, sem útvarpsstjórinn þarf að hafa, en vantar aðra. Þessi veiting er því vítaverðari, sem vitanlegt var, að um stöðuna sóttu menn, sem voru lausir við þá ókosti, sem sá maður mátti sízt hafa, sem stöðuna fengi, en höfðu marga þá kosti, sem þarf til þess, að starfið sé vel af hendi leyst.
Þegar nú annarsvegar með veitingu útvarpsstjóraembættisins hefir í aðalefninu verið vikið frá því, sem útvarpsmálinu er fyrir beztu, en hinsvegar með frv. þessu er mjög aukið á vald útvarpsstjóra frá því, er lögin frá 1928 gera ráð fyrir, þá er ekki nema eðlilegt, að frv. mæti nokkurri andúð. Mótstaða manna gegn frv. er, eins og eðlilegt er meiri fyrir það, að menn eiga erfitt með að tengja vonir við nýja útvarpsstjórann, svo þjóðfræg sem hlutdrægni hans og óhlutvendni er orðin.
Eins og drepið hefir verið á hér í deildinni, hefir verið leitað umsagnar nokkurra manna um þessa lagabreyt., og ég verð að segja það, að mér finnst það broslegt að fara að leita umsagnar símaverkfræðings, þegar búið er að fá álit landssímastjóra. Mér dettur ekki í hug að fara dult með þann grun, að það hafi verið leitað álits símaverkfræðings af því, að landssímastjóri lagði á móti frv., og umsögn undirmannsins hefir þannig átt að rýra álit yfirmannsins. Ég get tekið undir það, sem hv. þm. Dal. sagði, að það mætti þá alveg eins vel leita umsagnar fleiri starfsmanna símans, úr því umsögn yfirmanns landssímans er ekki látin nægja í málinu.
Mér þykir undarlegt, að hv. meiri hl. n. skyldi sjá sér fært að mæla með frv. í höfuðdráttunum, eftir að sá maður, sem dómbærastur var í þessu efni, landssímastjórinn, hefir skilað áliti um málið, sem mælir jafneindregið á móti frv. og álit landssímastjóra.
Landssímastjórinn telur rekstur útvarpsins aðallega í 4 liðum: Í fyrsta lagi það, sem lýtur að hinu útvarpaða efni. — Í öðru lagi fjárhagsstjórn. — Í þriðja lagi innheimtur, greiðslur, reikningshald o. s. frv. — Í fjórða lagi stjórn útvarpstækja og tilheyrandi véla.
Nú segir svo í lögunum frá 1928, að þessi fyrsti og annar liður skuli lagður undir útvarpsráðið, en þriðji og fjórði liður undir landssímastjóra. Nú er farið fram á, að þau störf, sem áður var ákveðið, að lægju undir landssímastjóra, verði tekin undan hans yfirstjórn og lögð undir útvarpsráð og útvarpsstjóra. Ég hygg því, að mönnum þyki full ástæða til að athuga gaumgæfilega, hvað landssímastjóri segir um þessa breyt. og á hverju hann byggir það. Mér hefir ekki þótt það koma nógu skýrt fram í þessum umr., enda þótt á það hafi verið drepið.
Landssímastjóri bendir á, að innheimtu, greiðslur og reikningshald hafi upprunalega verið ákveðið að leggja undir landssímastjóra í sparnaðarskyni, og ég efast ekki um, að þeir menn, sem töldu þá sparnað að þessu, áliti það ennþá, a. m. k. þangað til þeir hafa lýst því yfir, að þeir hafi skipt um skoðun og fært fram ástæður fyrir því, hvers vegna þeir telji það nú ekki lengur sparnað, sem þá var talinn sparnaður. Ég vil ekki trúa því að óreyndu, að stjórnarsinnar séu orðnir svo gerspilltir, að þeir að öðru jöfnu vilji ekki heldur spara fé ríkissjóðs en eyða því í óhófi. Ég vænti því þess, að hæstv. atvmrh. eða hv. frsm. meiri hl. geri einhverja grein fyrir því, hvað því valdi, að það, sem talinn var sparnaður þegar lögin um útvarpið voru samþ. 1928, sé nú ekki sparnaður lengur, og í öðru lagi, hvort nauðsyn beri til að gera þessa breyt., enda þótt henni fylgi aukinn kostnaður, og þá hver sú nauðsyn er og hvort hún sé svo mikil, að hún samsvari kostnaðaraukanum, sem af breyt. kynni að leiða. Þar til ég heyri þau rök, mun ég trúa því, sem hinn fróðasti maður í þessum efnum, landssímastjóri, segir.
Um hinn þátt málsins, þann, að flytja umsjón útvarpstækjanna frá landssímastjóra og undir útvarpsstjóra, segir landssímastjóri: „— er það skoðun mín, að ekki sé mögulegt, ef vel á að fara, að aðskilja verkfræðilega yfirstjórn loftskeytastöðva og útvarpsstöðva“.
Ég játa, að ég tel mig ekki dómbæran um þetta atriði. Ég er líklega viðlíka dómbær um það og útvarpsstjórinn okkar, jafnvel þó hann hafi farið í mánaðar utanför og ætlist svo til, að hans umsögn sé talin jafngild umsögn landssímastjóra. Ég tel hvorugan okkar færan um að dæma um þetta á við landssímastjóra. Ég get ekki neitað því, að umsögn landssímastjóra veldur miklu um mína afstöðu til málsins. Ég tel það eðlilegt og sjálfsagt, að þingmenn láti orð jafnkunnugs og hæfs fagmanns hafa áhrif á afstöðu sína.
En landssímastjóri segir meira: Hann bætir við: „— mun það fyrirkomulag hvergi þekkjast í heiminum, ekki einu sinni þar, sem útvarpið er rekið af einkafélögum, því jafnvel þar, sem lengst er gengið, er verkfræðileg yfirstjórn útvarps- og loftskeytatækja í landinu undir sama embættismanni, þótt þeir starfsmenn, er annast daglega reksturinn, séu ráðnir og launaðir af einkafélögum“. Hér á því að leggja inn á alveg nýja braut. Því er enn meiri ástæða til að spyrja, hver nauðsyn reki til þess, enn meiri ástæða til að líta á umsögn sérfræðingsins, landssímastjóra, enn meiri ástæða til að gjalda varhuga við frv.
Landssímastjóri bendir á ýms rök áliti sínu til stuðnings, t. d. það, að útvarps- og loftskeytastöðvar eru að mestu leyti byggðar eins og senda frá sér samskonar sveiflur og trufla hver aðra, ef þess er ekki gætt af sérstakri varfærni. En það liggur í hlutarins eðli, að mest trygging er fyrir því, að þess sé gætt, ef ein stjórn ræður báðum stöðvunum. Enn segir landssímastjóri, að ætlazt sé til, að útvarpsstöðin annist jafnframt skeytasendingar, fyrst og fremst veðurskeytin og svo önnur skeyti, er önnur sambönd bila. Ennfremur megi vel vera, að hætt verði að nota sæsímann og loftskeytastöð verði að öllu leyti látin annast skeytaviðskiptin. Það er höfuðatriði málsins, og þá er sjálfsagt að hafa stöðvarnar báðar í sama húsi og undir sömu stjórn.
Annars er það margt í umsögn landssímastjóra, sem ég skal ekki fara út í. Verð ég að játa, að ég ber ekki fullt skyn á það. En hún er það plagg, sem ekki verður komizt hjá að taka fyllilega til greina.
Ég skal aðeins benda á það í viðbót, að sá maður, sem, að landssímastjóra frágengnum, á að vera máli þessu kunnastur, maður sá, er hefir undirbúið stofnun útvarpsstöðvarinnar, Gunnlaugur Briem símaverkfræðingur, tekur það fram, að hann telji ekki fært að aðskilja verkfræðilega yfirstjórn útvarps- og loftskeytatækja í landinu.
Ég tel það undarlegt, þegar bæði sá maður, er hefir undirbúið stofnun útvarpsstöðvarinnar, og landssímastjóri leggjast á eina sveif, að þá skuli hinir spöku þm. hver um annan þveran risa upp og látast vita betur. Það eru sannarlega orðnir fleiri en hæstv. dómsmrh., sem farnir eru að fyrirlíta sérfræðinga. Alltaf eru hv. stjórnarflokkar að látast bera fyrir brjósti menntunina. Það þarf að mennta þjóðina, segja þeir. En strax og menntuninni er teflt fram gegn flokkshagsmunum og ofstæki, þá er ekkert tillit til hennar tekið. Það er eins og þessir hv. þm. álíti sig hafa komizt í himnaríki, hafi þeir hlotið ofurlitla gutlmenntun, en strax og menn, er hlotið hafa reglulega menntun, staðgóða sérfræðimenntun, láta álit sitt í ljós, þá fá þeir ekki hljóð, hinir gutlmenntuðu þm. þykjast þá vita betur.
Ég verð að segja, að ef ætlunin er að ganga á snið við yfirlýsingar landssímastjóra og þess manns, er undirbúið hefir stofnun útvarpsstöðvarinnar, þá á þjóðin heimtingu á, að fyrir því séu færð rök, sterk rök. Þau hefi ég ekki heyrt enn.
Um hin tvö atriði máls þessa skal ég ekki fjölyrða. Ég er heldur andvígur því að fjölga í útvarpsráðinu. Ég tel það að vísu ekki stórvægilegt. Því fylgir sjálfsagt nokkur kostnaðarauki. Það gæti og leitt til þess, að fleiri aðilar kæmu og vildu einnig fá fulltrúa í ráðið. Gæti orðið örðugt að neita þeim um það.
Þriðju breyt., einkasölu á útvarpstækjum, er ég algerlega mótfallinn. Hér hafa aðrir á undan mér gert grein fyrir því, hvílíkar tálvonir menn geri sér yfirleitt í slíkum efnum. Það hefir lengi ríkt sú skoðun, að ef tryggja ætti notendum góðar vörur og ódýrar, þá væri eina ráðið einkasala, einokun. Hv. þm. er vorkunnarlaust að dæma um þetta. Þeir hafa reynsluna fyrir sér og geta því séð, hvílíkir ókostir eru ávallt fylgjandi einokun.
Einnig í þessu efni gefur landssímastjóri mikilsverðar upplýsingar. Hann hefir athugað verðlag á útvarpstækjum þeim, er mest seljast hér á landi, og borið saman við verð samskonar tækja í Danmörku. Niðurstaðan var sú, að tækin voru að meðaltali 30% dýrari þar en hér. Ég verð að segja það, að þegar þær upplýsingar liggja fyrir, að tækin séu seld hér við sérstaklega lágu verði, þá hlýtur það að draga nokkuð úr þeim mönnum, er vilja seilast í einokun í þeim tilgangi að lækka verðlagið. Ef það þýðir yfirleitt að tala við þessa menn með rökum, þá hlýtur slík staðreynd að hnekkja ákvörðun þeirra.
Ég ætla ekki að ræða hér um umsögn útvarpsstjórans. Það er aðallega vegna þess, að ég tel hann ennþá svo ókunnan þessum málum, að engin ástæða sé til að gefa orðum hans um þessi efni nokkurn gaum. Ég veit að vísu, að hann sigldi sér til hressingar og skemmtunar, mánaðartíma. En ég tel það hafa verið gert meir til málamynda og til að geta talað öllu digurbarkalegar um þessi mál á eftir. Enda tíðkast það nú mjög með stjórnarliðum að fara utan á kostnað ríkissjóðs til að „kynna“ sér hitt og þetta, t. d. kvikmyndir, eins og Gísli Guðmundsson gerði, og er ekki hægt að taka slíkt alvarlega. Reynslan hefir kennt okkur að fyrirlíta slíkar aðferðir stjórnarinnar, og þm. vita vel, að þessar „kynnisfarir“ er aðeins form, sem stj. notar til að koma bitlingagráðugum, glaumsjúkum taglhnýtingum á ríkissjóð, að þeir megi fyrir almennings fé svala skemmtanafýsn sinni.
Ég ætla þó að trúa einu atriði í umsögn útvarpsstjórans, af því að mér finnst svo ósennilegt, að hann segi þar rangt frá. Er þó ekki svo að skilja, að ég beri yfirleitt nokkurt traust til þess manns. En hann segir nefnilega, að fyrir einkasölu á útvarpstækjum finnist hvergi fordæmi. Ég geri ráð fyrir því, að ríki, þar sem jafnaðarmannastjórnir hafa setið að völdum, t. d. Svíþjóð og Danmörk, myndu hafa tekið þetta heillaráð, ef það er eins ágætt og útvarpsstjóri telur. Ég efa ekki, að vitrir jafnaðarmenn í nágrannalöndunum hafi athugað þetta mál og haft betri aðstöðu til þess og þekkingu en við hér, en í reyndinni hefir enginn talið þessa leið færa. Um tvö höfuðatr.frv. gildir hið sama: Engin önnur þjóð hefir gengið inn á þá braut, er hér á að fara.
Það er stundum sagt, að bændastjórnin okkar gangi lengra inn á brautir jafnaðarstefnunnar en jafnaðarmannastjórnir í nágrannaríkjunum. Þetta er hárrétt. Vald hæstv. dómsmrh. er svo ríkt, að bændastj. hérna gengur lengra í því að lögfesta skipulag jafnaðarmanna en stjórnir nágrannalandanna, sem skipaðar eru jafnaðarmönnum. Þetta frv. er eitt af afsprengjum þeirrar stefnu. Það undrar mig ekki, að það er fram komið. Það er hreint framhald af annari starfsemi þingsins.
Ég verð að segja það, að enn ber ég það traust til ýmsra hv. þm. úr andstöðuflokknum, að hefði minni hl. n. veitzt tækifæri til að gefa út nál. og þeir hefðu kynnt sér það, að þá hefðu þeir fylgt hér réttu máli. Þó mér detti ekki í hug að leyna þeirri skoðun minni, að ýmsir úr stjórnarliðinu gera það, sem þeim er sagt að gera, þá eru þó ýmsir innan flokksins, er vilja gera og gera það, sem þeir álíta sannast og réttast. Í svona máli, þar sem annar þátturinn er ópólitískur, þá hefði ég haft von um að geta haft áhrif á afstöðu sumra hv. þm. með prentuðu nál. En núna á síðari hluta þingsins eru menn ekki mjög þaulsætnir undir ræðum, og er því aðgengilegra að bera fram rök sín í nál. Sumir kunna að segja, að það séu sjálfskaparvíti að hafa ekki haft nál. tilbúið í tæka tíð. En nál. meiri hl. er dagsett hinn 4. apríl, í dag er sá 7. Ég hygg, að það sé venja, þegar ekki er lengra umliðið frá því að meiri hl. skilar áliti og minni hl. óskar að málinu sé frestað, að taka þá ósk til greina. Enda er ég viss um, að ef hæstv. forsrh. hefði ekki sótt það fast, að málið yrði tekið á dagskrá nú, þá hefði hæstv. forseti gefið þetta eftir. Ég vil vekja athygli á því, að með þessu hefir aðstaða okkar verið gerð erfið.
Að þessu sinni skal ég ekki orðlengja frekar. En ég geri fastlega ráð fyrir því, að hv. þdm. taki fyllilega til greina umsögn hinna tveggja fróðustu manna um þessi efni, sem prentuð er í nál. En þeir mæla báðir móti frv.