12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (24)
1. mál, fjárlög 1931
Pétur Ottesen:
Ég á hér eina litla brtt. á þskj. 260, undir VII. lið; það er styrkur til Þorsteins Þorsteinssonar, til þess að reisa gistihús á Húsafelli, 4.000 kr.
Það hefir nú um alllangt skeið, þar sem svo stendur á, að umferð er mikil á afskekktum stöðum í sveitum, verið veittur nokkur styrkur, fyrst og fremst til þess að koma upp þeim húsakynnum, að hægt væri að taka á móti gestum. Í öðru lagi hefir ennfremur um nokkurt skeið verið veittur nokkur rekstrarstyrkur til slíkra staða, til þess að gera bændum á þessum stöðum það kleifara en ella að geta veitt mönnum sæmilegan beina.
Það var á þinginu 1928, að veittur var styrkur til þess að byggja og stækka hús á Ásólfsstöðum í Gnúpverjahreppi í, Árnessýslu, til þess að geta tekið á móti ferðafólki. Það var 4.000 kr. styrkur og auk þess var stj. heimilað að ganga í ábyrgð fyrir bóndann á Ásólfsstöðum fyrir 10.000 kr. láni, og ætla ég, að sú heimild hafi verið notuð.
Það stendur svo á á Húsafelli, að þar hefir um langt skeið verið mikill gestagangur af ferðafólki, sem lagt hefir leið sína um Kaldadal. Áður fyrr lá þar um leiðin frá Norðurlandi um Kaldadal og Arnarvatnsheiði til Suðurlandsins; var það bæði kaupafólk og skólapiltar, sem þá áttu leið þar um. En við það, að strandferðir komu og samgöngur bættust að öðru leyti, lagðist sá ferðamannastraumur mjög niður. Nú hefir aftur á síðari árum aukizt þar mjög umferð að sumarlagi af fólki, sem mest ferðast sér til hressingar og skemmtunar. Á síðastl. sumri var vegurinn um Kaldadal ruddur og að öðru leyti lagður vegur á milli Borgarfjarðarhéraðs og Þingvalla, svo að bílfært varð þar á milli. Við þetta óx umferðin geysilega mikið og Húsafell er fyrsti bærinn, sem komið er að, þegar farið er frá Þingvöllum norður eftir, en vegalengdin á milli Þingvalla og Húsafells er um 70 km. Það er nú svo komið á þessum stað, að ekki er mögulegt að taka á móti öllum þeim fjölda af gestum, sem þangað kemur, með þeim húsakynnum, sem þar eru fyrir hendi. En til þess að upplýsa dálítið um ferðamannastraum þar á síðastl. sumri, skal ég geta þess, að yfir Kaldadal fóru 140 bílar, en í hverjum bíl var frá 2–14 manns. Auk þess fara margir bílar þangað upp eftir úr sjálfu héraðinu. Flestir bílar koma við á Húsafelli, og menn stanza þar og fá sér hressingu.
Flestir næturgestir hafa verið þar 28 í senn. Eins og eðlilegt er, þá er ekki hægt með þeim húsakynnum, sem þar eru nú, að taka svo vel á móti öllum þessum gestum eins og þyrfti, og verða því sumir að notast við verri aðbúnað en æskilegt væri. Flestir hafa komið á dag 70 menn, sem hafa fengið þar greiða. Þetta gefur fullkomlega upplýsingar um, hvernig er ástatt þarna og hver nauðsyn er á rýmri húsakynnum, svo að hægt sé að taka sæmilega á móti gestum. Þetta er því nauðsynlegra, sem þetta er fyrsti áfanginn, þegar komið er leiðina frá Þingvöllum til Borgarfjarðar, en það er, svo sem áður er frá skýrt, löng leið og liggur um fjöll og því eru illviðri þar tíð, og þó að fólk ferðist í bílum, getur það orðið þar fyrir hrakningum. Því er mikil nauðsyn, að hægt sé að taka á móti því á viðunandi hátt, þegar það kemur af fjallveginum. Það má líka gera ráð fyrir, að umbætur haldi áfram á Kaldadalsveginum, og er því líklegt, að umferð aukist fremur en dragi úr henni.
Það er alkunnugt, að Húsafell er á einhverjum fegursta staðnum hér á landi, svo að fólk úr kaupstöðunum, sem vill skemmta sér, óskar mjög eftir því að geta komið þangað og notið þar sumarsins í þeirri fögru náttúru, sem þar breiðir faðminn á móti gestunum.
Bóndinn á Húsafelli hefir látið Jóhann Kristjánsson húsameistara gera uppdrátt af húsi, sem væri viðbót við íbúðarhúsið á Húsafelli. Hann gerir ráð fyrir því, að í þessu húsi, sem eingöngu yrði notað fyrir gesti, væru svefnherbergi fyrir 20 menn og borðsalur fyrir jafnmarga menn. Með þessu fyrirhugaða gistihúsi á að stuðla að því, að allir gestir, sem að Húsafelli koma, geti fengið þær viðtökur og þann beina, sem þeir þurfa nauðsynlega með í hvert skipti. Kostnaður er áætlaður 13–14 þús. kr. Ég hefi nú ekki tekið dýpra í árinni en það, að ég fer fram á, að bóndanum séu veittar 4 þús. kr. til þessarar byggingar. Reyndar var fjárhæðin, sem farið var fram á, miklu meiri, en ég treysti mér ekki til að bera fram hærri styrkbeiðni en þetta, því að meiri líkur eru til, að hv. deild verði fús á að samþ. þessa fjárhæð en hina. Fyrst á annað borð hefir verið gengið inn á það að veita styrk í slíkum tilfellum, jafnvel þar, sem um minni umferð er að ræða en hér, vænti ég, að deildin, bæði samræmis vegna og eins vegna þeirrar nauðsynjar, sem hér er fyrir hendi, verði vel við þessari till.
Þá vil ég aðeins út af nál. hv. samgmn. um till. hennar viðvíkjandi bátastyrknum taka það fram, að í nál. segir, að nefndinni hafi ekki borizt skýrsla eða bréf um ferðir og áætlanir nema tveggja flóabáta, bátsins, sem er á Ísafjarðardjúpi, og Flateyjarbátsins. (SÁÓ: Það var gert í framsögu). En ég vil geta þess, að það var send skýrsla um ferðir og áætlanir Hvalfjarðarbátsins í bréfi frá mér til samgmn. Þar var einnig lagt til, að bátnum væri veittur sami styrkur og áður. Ég bað hv. þm. V.-Húnv. fyrir þetta bréf, en það lítur út fyrir, að það hafi ekki komizt til skila, en ég vona samt, að það sé einhversstaðar í fórum nefndarinnar.
Um leið og ég þakka n. fyrir það, að hún vill láta styrkinn til Hvalfjarðarbátsins halda sér óbreyttan, vil ég geta þess, að mér kom undarlega fyrir sjónir, þegar ég sá, að n. leggur til að fjölga ferðum Suðurlandsins vestur til Breiðafjarðar og vill jafnframt því, að styrkurinn til félagsins verði lækkaður. Þetta er því undarlegra, sem n. leggur til, að margir milliferðabátar hafi sama styrk og þeir hafa haft, án þess að af þeim sé krafizt fleiri ferða en áður. Ég geri ráð fyrir, að Suðurland fari 3 ferðum fleira vestur til Breiðafjarðar en verið hefir áður. Og jafnframt því, sem stjórn Suðurlands tekur þessar ferðir að sér, verður hún að sjá um, að áætlunarferðir til Borgarness falli ekki niður. Þess vegna verður félagið að leigja báta til þeirra áætlunarferða, þegar Suðurlandið fer vestur til Breiðafjarðar. Af þessu geta allir séð, hvort rétt muni vera að lækka þennan styrk.
Hv. 1. þm. S.-M. fann ástæðu til að vara þdm. við því að samþ. þær fjáraukatill., sem hér liggja fyrir nú, þar sem þær mundu baka ríkissjóði mikil útgjöld. Það er fjarri mér að ámæla hv. þm. fyrir slíkar aðvaranir, þær hafa alltaf rétt á sér. Hinsvegar geng ég ekki dulinn þess, að hv. þm. hefði eins vel þurft að aðvara þá hæstv. stj., sem hann styður, og áminna hana um að vera varfærnari í fjárframlögum en raun ber vitni um, að hún hafi verið. Það getur náttúrlega verið, að hv. þm. hafi gert þetta, en ef svo er, hefir það lítinn árangur borið. Annars skal ég ekki fara frekar út í það mál nú; það gefst síðar tækifæri til þess.
Út af því, sem hv. þm. sagði, að samþykkt sú, sem nýlega hefði verið gerð um Íslandsbanka, mundi leggja ríkissjóði mikil útgjöld á herðar, vil ég benda honum á ummæli, sem komu frá einum flokksbróður hans, hv. þm. V.-Ísf., sem sagði, að þar væri ekki um nein útgjöld fyrir ríkissjóð að ræða. Hann hélt því fram, að þessi nýi banki mundi eftir því sem lengra liði verða betur og betur fær um að standa undir sínum byrðum sjálfur.