10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1778 í B-deild Alþingistíðinda. (2413)

68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Magnús Guðmundsson:

Það er rétt, sem hæstv. forsrh. sagði, að ég kæri mig ekki um að draga þetta mál á langinn. En ég skil ekki, hvers vegna hæstv. stj. vill koma frv. út úr þessari deild fyrir hádegi á morgun. Og á meðan ég fæ engar skýringar á því, þá vil ég ekki láta það eftir. En fái ég ljósar skýringar á því, þá skal ég vera því fylgjandi. Það getur ekkert verið því til fyrirstöðu að láta rannsóknina byrja, þó að 3. umr. um frv. sé ekki lokið. Það er ekkert annað en fyrirsláttur, ef stj. þykist vera í vafa um, að hún komi frv. í gegnum þessa hv. þd. En hafi stj. einhverjar frambærilegar ástæður til þess að hraða málinu svo mikið, þá skal ég vera búinn að skila minni brtt. fyrir kl. 10 í fyrramálið, þó að ég hafi ekki 8 tíma svefn í nótt.

Annars var tilgangur minn sá, að spyrja hæstv. stj., hvort það sé til nokkurs fyrir mig að bera fram brtt. við frv., þess efnis, er ég gat um í fyrri ræðu minni. (Fjmrh.: Já, það má vel koma henni að með afbrigðum eins og frv.). Ég var ekki að spyrja um leyfi til þess að bera fram brtt., því það er mér auðvitað heimilt,en ég er að spyrja um,hvort hæstv. stj. sé á móti því, sem till. mín fer fram á. Það leiðir af sjálfu sér, að ef á að afgreiða frv. fyrir hádegi á morgun, þá verður það ekki gert nema með afbrigðum, og þau leyfi ég ekki, fyrir mitt leyti, nema brtt. mín fái að komast að líka.