10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1780 í B-deild Alþingistíðinda. (2417)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Magnús Guðmundsson:
Ég hefi ekki ennþá fengið neinar skýringar á því, hvaða ástæður hæstv. stj. hafi til þess að hraða svo mjög 3. umr. þessa máls. Hæstv. fjmrh. segist ekki geta skipað matsnefndina fyrr en málið sé komið út úr þessari hv. deild. En það er engin ástæða. Ég fyrir mitt leyti vil fá að vita það fyrir 3. umr., hvaða menn eigi að vera í n., og það á ekki að vera neitt launungarmál fyrir þingmönnum.