12.02.1930
Neðri deild: 22. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):
Áður en gengið er til atkv. leyfi ég mér að gera, að till. minni, að málinu verði frestað. Óska ég atkvgr. um þetta í hv. deild. Ég bar fram þessa ósk við þann forseta, sem var rétt áðan í forsetastóli, af þeim ástæðum, að Sveinn Björnsson sendiherra hefir sent fulltrúum í bankaráði Íslandsbanka skeyti, þar sem hann segir, að hann þori ekki að fullyrða, að samþykkt þessa frv. valdi ekki örðugleikum í samningaumleitunum. Hann var spurður um þetta atriði. Legg ég því til, að umr. og atkvgr. verði frestað um óákveðinn tíma.