12.02.1930
Neðri deild: 22. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (2453)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Sigurður Eggerz:
Af því að þessar ástæður sendiherrans eru svo veigamiklar, vil ég skjóta því til hæstv. forseta og hv. þingdeildar, hvort það sé ekki sjálfsagt að fresta atkvgr. í þessu máli fyrst um sinn. Það eru margir, sem eru þess fullvissir, að sá frestur geti haft ákaflega mikla þýðingu fyrir niðurstöðu bankamálsins. Ég leyfi mér að skora á hæstv. forseta að verða við þessum tilmælum.