15.02.1930
Efri deild: 26. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (2471)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Jón Baldvinsson:
Þessi dráttur, sem orðið hefir á því að komast að nokkurri niðurstöðu um þetta Íslandsbankamál, hefir þegar valdið tjóni miklu og truflun í atvinnulífi. Það er ekki efamál, að við hefðum ekki þurft að grípa til þeirra ráða, sem gert var í gær, að samþ. mál við 6 umr. á fáum klukkutímum, ef það hefði verið búið að samþ. það frv., sem hér liggur fyrir. En það tjáir ekki að tala um það. Það er komið, sem komið er, og því er að ræða málið eins og það liggur fyrir.
Hv. 3. landsk. hefir rakið hér nokkuð fyrstu starfsemi Íslandsbanka og síðan sögu þeirrar kreppu, sem bankinn komst í laust eftir 1921. Það munu víst allir sammála um það nú orðið, að það var margt misráðið af þeim mönnum, sem hleyptu Íslandsbanka inn í landið með þeim fríðindum, sem bankanum voru í upphafi veitt. Meðal annars er það, að veita honum þau réttindi að bera heiti landsins í nafni sínu. Sömuleiðis að veita honum þann opinbera styrk — stimpil, sem ýmsir kalla nú — að hafa þingkosna bankaráðsmenn og forsætisráðherra sjálfan sem formann bankaráðs. Þessi mistök hafa sjálfsagt stafað frá því í upphafi, að ófróðir menn um slíkt fyrirkomulag hafa fjallað um málið frá landsins hálfu, en hinsvegar slungnir gyðingar, sem að stofnun bankans stóðu, sem vildu reyna að flækja þingið og ríkisvaldið sem mest við bankann, til þess að vera heldur tryggari, ef illa færi. En með þessu er þó ekki allt upp talið hvað löggjöfina snerti. Það átti líka að leggja niður Landsbank., sem ekki varð af. Það voru líka ýmsum helztu embættismönnum í landinu í upphafi svo að segja gefnar „aktíur“ í Íslandsbanka, til þess að tryggja það, að hann hefði alltaf örugga menn í landinu, sem veittu honum þann stuðning, sem hann þurfti á að halda. Þetta voru ráðin til að tryggja margvísleg fríðindi til handa Íslandsbanka. Í upphafi var ætlazt til þess, að bankinn mætti ekki taka við sparisjóðsfé. En völdin, sem hann hafði tryggt sér með gjafa-„aktíum“ og yfirráðum Alþingis og forsætisráðherra í fararbroddi, þau gerðu það að verkum, að brátt fékk bankinn heimild til þess að taka á móti innlánsfé. Og einmitt þetta er eitt af því, sem nú veldur örðugleikum.
Sem sagt, það hefir verið mikið mein, hvað þessi bankastofnun hefir haft mikil völd hjá ríkisstj., — hvað bankinn gat látið þingið hlaupa fyrir sig hvenær sem hann benti því. Hann var eftirlætisbarn hjá stj. og ráðandi meiri hl. þingsins allt fram til 1920. Aldrei var svo gerð vísbending frá Íslandsbanka, að ekki væri stj. og þing sett í hreyfingu til þess að uppfylla óskir hans.
Það var ekki fyrr en menn vöknuðu við þann vonda draum eftir stríðsárin, að Íslandsbanki hefði hleypt sér langtum lengra en góðu hófi gegndi, komið sjálfum sér í klípu og stórspillt lánstrausti landsins, að menn sáu, að hann hafði haft allt of mikil völd og tök á ráðandi mönnum þjóðfélagsins. En þessi tök hefir hann ekki misst ennþá, eins og komið hefir fram í þessu máli og mun kannske síðar sjást.
Þegar nú svo var komið, að bankinn hafði komið sjálfum sér út í ógöngur og unnið landinu skaða, þá er hiklaust hlaupið undir bagga með því að taka hið mesta ókjaralán, sem nokkurn tíma hefir verið tekið hér á landi, enska lánið 1921. Vextir af því láni voru nær 10%, ég hygg nákvæmlega útreiknað 9,88%. Ráðherrann, sem fór með völd, hv. 1. þm. Skagf., barðist á móti því á þingi 1921, að taka nokkurt lán. En þegar Íslandsbankaklíkan bærði á sér, þá varð hann fús að taka þetta óhentuga lán, sem þurfti að veðsetja tolltekjur landsins fyrir. Þetta lán hefir æ síðan spillt lánstrausti landsins út á við. Hvert sinn sem menn hafa komið út fyrir landsins hönd til þess að fá lán, hafa menn bent á vaxtakjörin og veðsetninguna frá 1921. Borgarstjóri Reykjavíkur fór út til að fá lán fyrir bæinn á síðasta ári, og skýrði frá því, að mesta fyrirstaðan fyrir heppilegum lánakjörum hafi verið ríkislánið frá 1921. Margir aðrir hafa sömu sögu að segja.
Kreppa Íslandsbanka hefir í raun og veru staðið frá 1921. Á þessum árum hefir bankanum stöðugt hrakað. Þótt því þetta frv. verði samþ., þá er það ekki annað en afleiðing af því, sem gerzt hefir á undanförnum tíu árum. Hv. 3. landsk. lýsti þessu réttilega þegar hann sagði frá því, hvernig viðskipti bankans hefðu verið dregin saman á undanförnum árum.
Á þingi 1922 voru samþ. lög, sem heimiluðu ríkisstj. að leggja fram hlutafé í bankann, því að þá var mönnum ljóst, að bankann vantaði eigið fé, ef hann ætti að geta haldið áfram, en ekki dragast saman. Síðan hafa orðið stjórnarskipti, en hvorki framsóknarstj. né íhaldsstj. hafa talið sér fært að leggja fram hlutafé í Íslandsbanka. Þessi lög um hlutafjárauka voru enn í gildi, þegar hv. 3. landsk. var fjmrh. Þá voru ágæt ár og peningaráð mikil; og hann vildi láta skína í það, að lánstraust landsins hefði þá verið mjög endurvakið undir sinni fjármálastjórn. Hann hafði heimildina, en hann treysti sér ekki til þess að leggja fram féð til bankans.
Það verða nú sjálfsagt nokkur traustsspjöll við lokun Íslandsbanka. En það, sem við eigum að meta í þessu máli, er það, hvort lánstraustsspjöllin verða meiri við það að taka ótakmarkaða ábyrgð á bankanum eða við að gera hann upp. Fyrir lánstraust landsins í náinni framtíð — og lengra fram — er það að sjálfsögðu slæmt, ef ákveðið er að taka ábyrgð á skuldbindingum banka með yfir 35 millj. króna veltu. Ef búið er að ákveða að taka ábyrgð á sparifénu og talað er um sem sjálfsagðan hlut að ábyrgjast erlendar skuldir, þá eru komnar um 20 millj. kr. Og þá er sjálfgert að taka ábyrgð á þeim 10 millj., sem eru hjá Landsbankanum og hjá ríkissjóði. Þótt þessar ábyrgðir verði teknar svona inn í smáskömmtum, þá kemur allt í sama stað niður að lokum. Þá verður að taka sérstaka ábyrgð á seðlunum, eins og gert er ráð fyrir í frv. stj., og eru þá flest kurl komin til grafar.
Ef þetta mundi ekki geta spillt lánstrausti landsins, að við bindum okkur þennan bagga, sem við áreiðanlega verðum að bera mjög mörg ár, þá veit ég ekki, hvað mun geta spillt því. Við sjáum, að bankahrun hafa átt sér stað annarsstaðar, t. d. í nágrannalöndunum. Í Noregi fór forsætisráðherrann bak við þingflokkana til þess að bjarga banka frá að loka. Í þá ráðstöfun fóru milli 20 og 30 millj. króna. Einu ári seinna verður þessi banki að loka. Og það var aðeins fyrir harðfengi íhaldsblaðanna og flokks þessa manns, að hann var ekki dreginn fyrir lög og dóm. Flokkurinn varði hann sem mögulegt var. Þegar þetta mál var til umr. í Noregi og annarsstaðar, fannst mönnum alveg skökk leið farin og lánstrausti landsins spillt með því að leggja fram peninga í banka, sem engin vissa var fyrir, hvort væri lífvænlegur eða ekki.
Það hefir oftast verið svo, að bankar reynast verr við reikningsskil heldur en mat hefir bent til. Nægir í því efni að vísa til þess, hvernig Landmandsbanken reyndist þegar farið var að gera hann upp. Í fyrstu var tap hans áætlað nokkrir tugir millj., en reyndist mörg hundruð. Það er því ærin áhætta fyrir þetta ríki að ætla sér, að lítt rannsökuðu máli, að ganga í ótakmarkaða ábyrgð fyrir banka, sem á ekki lengri tíma en síðan 1921 hefir tapað minnst 17 millj. kr. Á því má ljóslega sjá, hversu hrap bankans hefir verið geysilegt, jafnvel nú á síðustu árunum, sem hafa verið veltiár til lands og sjávar. Að þingið hefir ekki reynzt ginkeypt fyrir allsherjarábyrgð eða geysistórum fjárframlögum til Íslandsbanka, er því sízt að furða. Hitt er ofurskiljanlegt, að erlendir fjármálamenn segi, að lánstraust landsins sé í veði, ef þeir fái ekki greitt það, sem þeir eiga hjá bankanum. Mig furðar ekki á því, þótt Hambro, sem á kannske hálfa millj. hjá Íslandsbanka, og Bödtker, sem er umboðsmaður margra skuldheimtumanna bankans, vilji báðir reyna að koma þeirri trú inn hjá Alþingi, að í rauninni sé lánstraustið í voða. Við verðum að líta á hvatir þær, sem liggja að baki þessum skeytum. Við verður því að taka slíkum orðsendingum með hæfilegri varúð. Vitanlega er lánstrausti landsins hnekkt að einhverju leyti með lokun Íslandsbanka, en þar með er alls ekki sagt, að við værum nokkru bættari, þótt við færum að, demba yfir okkur ábyrgð, sem við ekki getum séð út yfir, hversu stór er, né hvort við erum menn til að bera hana.
Hv. 3. landsk. reyndi að telja mönnum trú um, að Íslandsbanki væri erlendis álitinn sem opinber stofnun. Þetta er ekki rétt, nema að mjög litlu leyti. Það kann að vera nafnið Íslandsbanki, og svo að ríkið hefir þessa menn í bankaráðinu, en hinsvegar vita það allir erlendir viðskiptamenn bankans, að Íslandsbanki er ekki seðlabanki lengur og að hann er að draga inn seðla sína. Sömuleiðis vita þeir nákvæmlega, að bankinn er einkafyrirtæki, hlutafélag, og að engin kvöð hvílir á ríkinu um að ábyrgjast hann, enda þótt það kjósi þessa menn í bankaráðið, eða þótt bankinn heiti þessu nafni, sem aldrei skyldi verið hafa.
Hv. 3. landsk. hélt því fram, að Íslandsbanki tapi meiru fé í skiptameðferðinni heldur en ef hann hefði fengið að halda áfram sem sjálfstæður banki með auknu hlutafé og ríkisábyrgð. Það er rétt að athuga þetta nokkuð nánar. Við skulum aðeins athuga sögu þessarar stofnunar frá því 1921. Þó að því hafi ekki verið lýst yfir opinberlega, þá vita það allir nú, að síðan 1921 hefir bankinn verið í „likvidation“. Þessu verður ekki á móti mælt, enda hefir jafnvel Eggert Claessen viðurkennt það. Það, sem bankinn hefir tapað undir þessari „likvidation“, er um 17 millj. kr. Það sýnist því vera kominn tími til þess að gera bankann endanlega upp. Það er ekki rétt hjá hv. 3. landsk., að það þurfi nauðsynlega að innheimta skuldir Íslandsbanka á 3–4 árum; erlendis tekur slíkt venjulega töluvert lengri tíma. T. d. veit ég um banka, sem var 10 ár í „likvidation“. Þess vegna þarf ekki að ganga mjög hart að mönnum, enda væri það óráðlegt, því það yrði þess valdandi, að minna yrði úr eignum bankans. Hitt er sjálfsagt, að gefa mönnum kost á hæfilegum frestum til þess að greiða skuldir sínar.
Hv. 3. landsk. gerði mikið að því að hræða okkur með lánstraustsspjöllum erlendis. Hann bar okkur í því efni saman við Grikki, þegar þeir tóku lán handa veðbanka sínum, um líkt leyti og hv. 3. landsk. tók lán handa veðdeildinni hér. Við samanburð á lántöku Íslands og Grikklands má geta þess, að viðskiptalíf Grikkja var truflað vegna styrjaldar og landið sokkið mjög í skuldir vegna hernaðarbrölts; en það vill svo vel til, að ég man vel eftir því eftir frásögnum í blöðunum, þegar Grikkir tóku þetta lán, sem hv. 3. landsk. var að tala um; það var boðið út, og eftir 2–3 klst. var búið að skrifa sig fyrir öllu láninu, og meira til.
Nú hefir það gengið svo til undanfarin ár, að allt eigið fjármagn Íslandsbanka hefir verið fast, en það lausa fjármagn, sem hann hefir haft undir höndum, hefir verið frá Landsbankanum. Ný lán úr Íslandsbanka hafa undantekningarlaust verið frá Landsbankanum. Íslandsbanki hefir því í rauninni engu nýju fjármagni getað veitt til atvinnulífsins nú hin síðustu árin. Í byrjun síðasta árs átti bankinn um 2.000 sterlingspund inni í Englandi, en á árinu hefir hann stofnað stóra skuld þar og flutt til Danmerkur til greiðslu á skuldum. Engir peningar hafa á árinu komið inn fyrir tilstilli Íslandsbanka. Starfsfé hans hefir allt verið fyrir endurkeypta víxla í Landsbankanum, auk dálítilla sparisjóðsinnieigna. Ég vil spyrja hv. 3. landsk., hvaða nýtt fé bankinn hafi haft. Annars hygg ég, að það ætti ekki að vera mikil eða tilfinnanleg röskun, meðan verið er að tilfæra viðskipti Íslandsbanka og koma þessum málum í betra horf. Þótt togarafélög þau, sem hingað til hafa notið Íslandsbanka um veltufé, gætu ekki öll haldið áfram, þá er enganveginn víst, að það sé stöðvun bankans að kenna. Þau geta verið svo stæð, að þau þurfi sjálf endurreisnar við, og mér er kunnugt um eitt slíkt félag, sem nú hefir um skeið verið unnið að að endurreisa. En þótt slík stöðvun fyrirtækja, sem illa eru stödd, komi fyrr en ella vegna stöðvunar bankans, þá vegur það ekki sem nein röksemd í þessu máli. Ég býst því við, að þegar öll kurl koma til grafar, muni viðskiptatruflunin ekki verða eins geigvænleg eins og hv. 3. landsk. vill halda fram, sérstaklega að því athuguðu, að starfsfé Íslandsbanka hefir verið frá Landsbankanum, eins og ég hefi getið um. Landsbankinn getur því alveg eins veitt þessu sama fé beint inn til atvinnufyrirtækjanna, en ef um truflun verður að ræða, þá er það því að kenna, að Alþingi hefir ekki afgr. þetta mál nógu fljótt og röggsamlega, og að ég ekki tali um, ef lengi dregst enn að taka endanlega ákvörðun í þessum málum.
Hv. 3. landsk. var vongóður um það, að takast mætti að útvega bankanum nýtt forgangshlutafé. Ég er nú satt að segja fremur lítið trúaður á þessar björtu vonir þeirra manna, sem að bankanum standa. Þeir hafa nú verið bjartsýnir áður, og oft umfram raunverulegar ástæður. Mér er sagt, að á fimmtudaginn áður en bankinn lokaði hafi bankastjórnin jafnvel verið svo bjartsýn á hag bankans, að hún hafi sent Hambrosbanka svarskeyti þess efnis, að allt væri í stakasta lagi; en þá voru menn erlendis orðnir órólegir um bankann vegna verðfalls hlutabréfanna. Mér þætti annars vænt um, ef hv. 3. landsk. vildi lesa þetta skeyti upp líka, úr því hann er svo óspar á að lesa skeyti hér í deildinni. Ennfremur hefi ég heyrt, að bankastjórarnir í Íslandsbanka hafi haft lík ummæli við einn stóran innieiganda, sem var orðinn órólegur út af innieign sinni í bankanum. Þessar yfirlýsingar benda ekki til þess, að það sé endilega sjálfsagt að taka trúanlegt, þótt sagt sé, að úr öllu muni rætast fyrir bankanum. Og þótt hv. 3. landsk. fullyrði þetta einnig, þá mun ég þó taka slíku með hæfilegri varúð, því það hefir hingað til ekki farið eftir.
Eitt atriði var það í ræðu hv. 3. landsk., sem ég skildi ekki fyllilega. Hann talaði um, að Íslandsbanki hafi lækkað seðlaskuld sína við Landsbankann um 625 þús. kr. (JÞ: Ekki seðlaskuld, heldur yfirdrátt). Já, en mér skildist á hv. þm. Dal., að Landsbankinn hafi neitað að kaupa, en í skýringu hv. 3. landsk. ætti þá að felast það, að Landsbankinn hafi tekið við þessu fé, en notað það til þess að lækka seðlaskuldina. (JÞ: Það er skýring Landsbankastjóranna).
Ég álít, að hraða þurfi afgreiðslu þessa máls sem allra mest, og get tekið undir með hæstv. fjmrh., að málið þurfi ekki að athugast í nefnd. Ef málið er dregið mjög á langinn umfram það, sem þegar er orðið, álít ég það mjög háskasamlegt. Hinsvegar er mér kunnugt um það, að hv. 3. landsk. vill seinka afgreiðslu þess sem mest, bæði með því að neita um afbrigði og á annan hátt. Ef nú málið yrði sent til n., myndi hann vitanlega reyna að tefja málið eftir beztu getu, t. d. með því að skila ekki nál. fyrr en seint og síðar meir, eins og þeir höfðu það í hv. Nd., og þegar málið kæmi á dagskrá aftur, myndi hann að sjálfsögðu reyna að seinka því enn með því að neita um afbrigði. Það verður að hraða málinu sem allra mest, enda ættu menn nú að hafa tekið afstöðu til málsins, svo að ekki er eftir neinu að bíða, nema því einu, að enn meira tjón og truflun hljótist af hinni seinu afgreiðslu málsins.