15.02.1930
Efri deild: 26. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Jón Þorláksson:
Ég hefi litlu að svara samþm. mínum, hv. 4. landsk., af þeirri ástæðu, að ég hafði annað nauðsynlegra að gera á meðan hann hélt mestan hluta ræðu sinnar heldur en að vera hér í d., og vafalaust hefði hv. þm. sjálfur getað fundið sér þarfara verk að vinna, ef dæma má það, sem ég ekki heyrði, eftir því, sem ég heyrði.
Ég heyrði hv. þm. segja, að erlendir viðskiptamenn vissu, að Íslandsbanki væri ekki seðlabanki, og heyrði hv. þm. fara með þá fásinnu, að hann væri ekki seðlabanki, af því að hann gæfi ekki út seðla. Eftir því hefði enginn seðlabanki átt að vera til í Norðurálfunni fyrstu árin eftir stríðið, þegar þeir voru alltaf að draga inn seðla sína. Þetta er fjarstæða. Seðlabanki er sá banki, sem hefir í umferð seðla, sem eru löglegur gjaldeyrir lands, í stað mótaðra peninga. Það vita menn, að Íslandsbanki er ennþá.
Hv. 4. landsk. var með einhver ummæli um það, að þessi banki hefði verið undir „likvidation“ síðan árið 1921. En það er aðeins leikur með orð. Það er sá geysilegi munur á starfsemi bankans síðan 1921 og þeirri skiptameðferð, sem á að skella á bankann eftir þeirra meðferð, að hann hefir síðan árið 1921 alltaf getað rekið atvinnu, sem var arðberandi fyrir hann sjálfan, og hefir haft á hverju ári ágóða, sem hann hefir getað notað til að greiða með áfallin eða áfallandi töp. En þetta frv., sem hér er á ferðinni, inniheldur engin ákvæði, sem gera búinu mögulegt að reka arðberandi viðskipti. Ég hefi heyrt það hér í d. — ég man ekki, hvort hv. 4. landsk. eða hæstv. fjmrh. sögðu það —, að lagafrv. það, sem var afgr. með afbrigðum hér í gær, hefði ekki þurft, ef búið hefði verið að afgreiða þetta frv. Ég skil ekki hugsanagang þessara manna; það hefði náttúrlega verið mögulegt að setja inn í lagafrv. um skiptameðferð á Íslandsbanka ýms ákv., sem heimila skiptanefnd ýmsa starfsemi, t. d. að lána út fé. En það er ekki gert í þessu frv. Henni er heimilt að taka lán, en einungis til að greiða með skuldir bankans, svo að ég skil ekki, hvað Landsbankinn hefði staðið sig betur við að veita lán án ríkissjóðsábyrgðar, þótt þetta frv. væri orðið að lögum.
Maður heyrir það nú á umr., að það, sem hefir valdið þessum ákaflega fljótfærnislegu aðförum stjórnarflokkanna, að leggja Íslandsbanka á höggstokkinn áður en þeir eru búnir að rannsaka hag hans, það er þessi hugsun, að það geri svo sem ekkert til, af því að hann hafi ekki haft neitt laust fé, nema frá Landsbankanum, og það geti Landsbankinn haft eftir sem áður. Þetta endurtaka þeir sífellt. En tjónið fyrir þjóðfélagið liggur fyrst og fremst í því, að það þarf að innheimta útistandandi skuldir bankans, skuldir, sem nema um 30 millj. króna.
Hv. 4. landsk. rak sjálfan sig í vörðurnar með því að minna á það, að Íslandsbanki hefði á umliðnu ári haft í umferð fjárupphæð, sem hefði numið allri þeirri upphæð, sem hann hefði haft leyfi fyrir hjá Hambrosbanka, og það hefir verið upplýst, að skuldbindingin við Hambrosbanka hafi verið, þegar bankinn lokaði, 85 þús. £, og hvort sem hann hefir átt inni 2 þús. £ áður, þá er þó auðséð, að þar hefir hann haft laust fé upp á 1½ millj. kr.; það hefir ekki farið til afborgana í Privatbankann, því að þangað hafa fallið afborganir af víxlum, er hann hefir haft að tryggingu, og ekkert annað.
Ég skal nú segja bæði hv. 4. landsk. og hæstv. fjmrh. það, að það, að ekki er orðin meiri truflun heldur en er, stafar af því, að menn vona, að það muni verða ráðið fram úr vandræðunum með því, að bankinn verði endurreistur. Þann dag, sem þeim vonum sleppir, byrja vandræðin, en ég vona, að það komi ekki til, heldur að bankinn verði endurreistur áður.
Hv. 4. landsk. var að tala um skeyti frá bankanum um það, að allt væri í lagi. Það er nú löngum svo, að hver bankastjórn verður að segja það, svo framarlega sem hún er ekki við því búin að loka bankanum um leið og hún gefur frá sér annað svar. Þetta er nú svo kunnugt, að það á ekki að þurfa að lýsa því, en annars er óhætt að segja allt, sem satt er og rétt, eftir að búið er að loka bankanum, því að þá geta ummælin ekki orðið til þess að valda þeirri hræðslu, sem leiðir til úttektar á fé úr bankanum. Hv. þm. getur ekki byggt neinn dóm á ummælum mínum um það, hver von sé um að fá nýtt fé til endurreisnar bankanum.
Þá kem ég að hæstv. fjmrh. Hann sagði, að ég hefði ekki sagt neitt, sem nýtt væri fyrir sig í málinu. Mér þykir það ekki nein furða, þar sem hann er sá ráðherrann, sem hefir bankamálin sérstaklega til meðferðar. En þótt eitthvað hafi verið sagt í Nd. áður, tel ég alveg jafnnauðsynlegt að segja það í þessari d., því að ég geng alls eigi út frá því, að þm. þessarar hv. d. hafi alltaf haft kringumstæður til að hlusta á umr. í Nd., og ég geng heldur ekki út frá því, að hæstv. stj. hafi bundið atkv. sinna flokksmanna hér í d., svo að þeir geti ekki lengur hlustað á skynsamleg rok og ástæður og tekið þær til greina.
Hæstv. ráðh. fannst ástæða til að fara meira út í sögu bankans fyrir 1921. Það má um það deila, en mér finnst ekki saga bankans fyrir 1921 eiga sérstaklega við í þessu máli; ég var ekki á þingi fyrir þann tíma, og get lítið sagt um þingmeðferð á málum bankans þá. En út af því, sem hæstv. ráðh. sagði, að bankinn hafi þá bakað sér og þjóðinni tjón, þá get ég þar lagt orð í belg, því að ég hefi framkvæmt nokkrar athuganir um orsakir til verðhruns, sem varð um það leyti. Ég get sagt hæstv. ráðh. það, að það, sem bankinn gaf út of mikið af seðlum, var á ábyrgð íslenzkra stjórnarvalda, því að hann fékk í hvert sinn leyfi þingsins — eða stj. þegar þingið hafði gengið svo frá málunum, að stj. hafði það í sínum höndum —, svo að einnig um þetta geta íslenzk stjórnarvöld ekki losað sig undan því alheimsáliti, að bankinn starfaði einnig í þessu sem opinber stofnun, undir yfirstjórn íslenzkra stjórnarvalda. En eitt, sem mér þótti undarlegt, þegar ég var að rannsaka þessar orsakir, var það, að mér var ómögulegt að finna rök fyrir þessari skoðun, að seðlaútgáfan væri orsök til hrunsins. Mér var ómögulegt að finna það, og var ég þó fulltrúa á, að það væri orsökin, en tölurnar tala svo fast á móti því, að of mikil seðlaútgáfa hafi verið orsökin, svo að ég varð að leita eftir öðrum orsökum, og þær þóttist ég hafa fundið að nokkru. Ég vil ekki telja minn dóm óskeikulan, en það kom alveg í bága við það, sem ég áður hafði ímyndað mér, þegar ég fann, að verðhækkunin hafði alltaf verið á ferðinni á undan seðlaaukningunni. Ef seðlaaukningin hefði framleitt verðhækkun, þá hefði mér ekki þótt það undarlegt,en rannsóknin sýndi hið gagnstæða. Ég vil þó ekki þar með staðhæfa, að mér hafi á nokkurn hátt tekizt að finna allan sannleikann um þetta mál. En mér finnst, að umr. um þetta frv., sem hér liggur fyrir, græði satt að segja ákaflega lítið á því, þótt ég eða hæstv. fjmrh. förum eitthvað út í sögu Íslandsbanka fyrir 1921.
Þá sagði hæstv. ráðh., að Íslandsbanki hefði ekki haldið uppi lánstrausti landsins út á við. Það er þó svo, að Íslandsbanki hefir haft lán frá útlöndum, þessar upphæðir, sem ég nefndi, frá þremur útlendum lánardrottnum: Hambros Bank, Privatbanken og ríkissjóði Danmerkur. Það er nú eitthvað nálægt tíu millj. kr. sem stendur, og upphæðin hefir verið hærri áður. Þessu fé hefir Íslandsbanki veitt inn í landið án nokkurrar ábyrgðar ríkissjóðs. Þess er ekki að vænta af stofnun, sem er skoðuð eins veik og Íslandsbanki er álitinn af hæstv. fjmrh., að hún geti meira en gert hefir verið í þessu efni.
Þá er lánið úr póstsjóði Dana. Það er bæði að vöxtum og afborgunum það hagstæðasta lán, sem Íslendingar hafa nú sem stendur. Frv. það, sem hér liggur fyrir, fer meðal annars fram á það, að eyðileggja þennan lánssamning, svo að það félli í gjalddaga 1. marz, en væri bankinn endurreistur, hefði hann þetta hagkvæma lán áfram.
Um lán Privatbankans er öðru máli að gegna, en það er enginn efi, að þar nást viðunanlegir samningar og kannske hagkvæmir, ef Íslandsbanki verður endurreistur.
Þetta atriði, stöðvun bankans, þýðir það, að hann verður að greiða út úr landinu um 10 millj. kr. Ég er því satt að segja undrandi yfir þeim mönnum, sem eftir allar þessar umr. hafa þrek til þess að segja almenningi það, að þetta sé aðeins færsla yfir á Landsbankann.
Hæstv. fjmrh. sagði, að ekki væri víst, að lánstrausti landsins væri bjargað, þó að ríkið tæki ábyrgð á bankanum. En þetta er nú það, sem bankaráðið fer fram á við það opinbera, og þar fer það fram á það, sem það álítur, að mundi duga. Með þessu greiddi ég atkv. í bankaráðinu, og hv. 1. þm. N.-M., sem einnig er í bankaráðinu og flokksbróðir hæstv. fjmrh., greiddi einnig atkv. með þessari till. þar. Og það er skylda hvers þm. að styðja það, að bankanum sé bjargað, ef hann í raun og veru álítur rétt, að það verði sú endanlega niðurstaða málsins. Að þessari niðurstöðu komst bankaráðið 3. febrúar, fyrsta daginn, sem bankinn var lokaður, þó að ekki væri mikill tími til umhugsunar.
Hæstv. fjmrh. getur ekki hafa dregið þann skilning af orðum mínum; að ég hafi álitið sjálfsagt að fara þessa leið. Þvert á móti; það efna, sem ég álít sjálfsagt, er það, að stj. sú, sem landið býr við, hafi forgöngu þess að ráða fram úr málinu á þann eina hátt, sem viðunandi er, en það er að endurreisa bankann. Hæstu. stj. hefði átt að hafa forgöngu í því að undirbúa till. um það. Það var það eina, sem sjálfsagt var í mínum augum. Um þá staðhæfingu hæstv. ráðh., að það verði tap fyrir ríkissjóð, hvaða leið sem farin er, vil ég segja það, að ég álít hættuminna að endurreisa bankann en loka honum. Ég er ekki sammála hæstv. ráðh. í því, að það þurfi að vera tap fyrir ríkissjóð að gera þær ráðstafanir, sem gera þarf, til þess að von sé til endurreisnar. Allt sýnist benda á það, að ef málum Íslandsbanka er komið þannig, að hann njóti nægilegs trausts, muni hann, þótt fátækur sé, geta haldið áfram að vinna og hafa árlegar tekjur eða arð, sem væri nægur til þess, að enginn, sem nú leggur fé í hann, tapi neinu á því. Ég get satt að segja borið þau rök fram fyrir þessari skoðun minni, að hæstv. fjmrh. og allur hans flokkur og einnig hinn stuðningsfl. stj. hafa haft þetta sama álit á hliðstæðu máli fyrir tveimur árum síðan, undir svipuðum kringumstæðum, að því er snertir hjálpina, en bankinn var annar, Landsbankinn. Þá stóð ekki betur á fyrir Landsbankanum fjárhagslega en fyrir Íslandsbanka nú. Og reikningar Landsbankans sýna, að 1928 hefir verið strikuð út sem töpuð öll sjálfseign hans, innstæðufé ríkissjóðs. Þessi var þá skoðun hæstv. fjmrh. og þingmanna, að Landsbankinn mundi geta komizt áfram gegnum tilveruna án þess að tap yrði af þeirri ríkisábyrgð, sem þá var tekin á bankanum. Bankarekstur er svo arðvænlegur atvinnuvegur, að ef kringumstæður eru til að reka hann og honum er sæmilega stjórnað, eru möguleikar fyrir því að vinna upp töp, sem áfallin eru, og sigla heilu skipi í höfn að lokum.
Þetta er það sama og ég álít nú um Íslandsbanka, en þó geri ég ekki ráð fyrir að bera fram till. um, að nú sé tekin eins víðtæk ábyrgð á Íslandsbanka og ríkissjóður og þingmeirihlutinn lét í té Landsbankanum til handa.
Hæstv. ráðh. segir nú samt, að skoðun yrði fyrst að sýna, að endurreisn bankans sé gerleg. Út af þessu vil ég bera upp þá fyrirspurn til hæstv. ráðh. og vil beiðast þess, að hann svari henni hér á þessum fundi, hvort ekki sé svo, að þeim mönnum, sem nú eru að skoða bankann, hafi verið falið að gefa upp álit sitt um hann með það fyrir augum, að bankarekstrinum yrði haldið áfram, eða gefa álit sitt, hvernig hagur bankans stæði, ef reksturinn héldi áfram. Þegar verið er að afráða, hvort bankinn á að lifa, skiptir það eitt máli, hvernig hann verður ef hann lifir. Það þýðir ekkert að meta, hvað töpin verða mikil, ef bankinn á að deyja. Það kemur fram á sínum tíma, fyrirframmat í því efni hefir enga þýðingu. Ég vonast svo eftir, að hæstv. ráðh. svari þessari fyrirspurn.
Hæstv. fjmrh. tók undir það, að fyrirkomulag bankans, stjórn hans og nafn geri það að verkum, að hann er skoðaður sem opinber stofnun. Löggjöf okkar um tilhögun bankaráðsins er þannig, að það er engin afsökun gagnvart útlendingum, að stj. bankans hafi farið óhönduglega. Það hjálpar ekkert að því er snertir lánstraustið.
Hæstv. ráðh. viðurkenndi ennfremur, að af lokun bankans mundi leiða truflun atvinnuvega í landinu og vildi ekki kannast við ummæli sín frá lokaða fundinum aðfaranótt 2. febrúar, þó að ég skrifaði það eftir honum og hefði það því rétt eftir. Þetta gæti vitað á það, að hæstv. ráðh. sé nú á annari skoðun um það.
Hæstv. ráðh. minntist á símskeytin og sagði, að sér þætti það eðlilegt, að skuldheimtumenn kveinuðu. Það er nú alveg rétt, en ég vil segja það; að það er sérstaklega hættulegt fyrir lánstraust Íslands erlendis, þegar menn eins og forstjóri Hambrosbankans þykist þurfa að kveina undan meðferð á fé, sem hann hefir trúað okkur fyrir. Það er hættulegt af því, að forstjórar Hambrosbanka hafa lyklana að lánstrausti allra Norðurlanda í brezka fjármálaheiminum, og sennilega í Ameríku líka.
Ég veit ekki til að nokkur hlutur réttlæti það að heimfæra símskeytið frá sendiherra okkar í Kaupmannahöfn undir þetta. Ég veit ekki til, að þessi maður beri þar neitt fyrir brjósti nema heill síns föðurlands, sem hann þjónar. Ég vil fullvissa hæstv. ráðh. um það, að ef við Íslendingar ættum fleiri fulltrúa erlendis, t. d. í London, þá værum við búnir að fá fleiri slík skeyti, án þess þau hefðu verið send í eiginhagsmunaskyni, en af því hann er ekki nema einn, verður að taka mikið tillit til þess, sem hann segir.
Þá vildi hæstv. ráðh. rengja tölur, sem ég fór með í sambandi við seðlainndrátt Íslandsbanka. Hann sagði, að það væru ekki 625 þús., heldur 440 þús., sem Íslandsbanki ætti að fá hjá Landsbankanum fyrir hverja millj., sem hann drægi inn af seðlum. Þetta er misskilningur hjá hæstv. ráðh. Lögin segja skýrt til um það, hvað mikið það er. Það eru 5/8 úr millj., sem Landsbankinn á að láta Íslandsbanka fá með því að kaupa af honum góða viðskiptavíxla fyrir 625 þús. kr. í hvert skipti sem Íslandsbanki dregur inn eina millj. af seðlum. Ég hefi því farið alveg rétt með þessar tölur. Ég vildi ekki vekja neinar stælur um það, hvort stj. Landsbankans hefði haft rétt fyrir sér í þessu máli; þess vegna setti ég það fram, eins og landsbankastjórnin áleit það vera, þó að ég sé þar ekki samþykkur um það lagalega atriði. Þessi neitun Landsbankans þýðir það, að starfsfé Íslandsbanka, sem samkv. lögunum átti ekki að þurfa að minnka vegna inndráttar af þessari Í millj., minnkaði um 625 þús., sem Landsbankinn sagðist taka sem afborgun af eldri viðskiptaskuldum. En þó að bankinn breytti þannig einni eign í aðra, þá er það ekki nein hjálp frá Landsbankanum til Íslandsbanka, heldur bara sala á verðmæti fyrir verðmæti.
Hæstv. ráðh. má ekki leggja þann skilning í ummæli mín, sem mér virðist hann gera, að unnt muni v erða að endurreisa Íslandsbanka, án þess að ríkissjóður leggi eitthvað til hans. Hæstv. ráðh. veit það vel, að þær umleitanir, sem nú eru á ferðinni, eru byggðar á þátttöku ríkissjóðs í endurreisn bankans. Í mínum orðum fólst ekkert nema að það væri líklegt, að þátttaka mundi fást annarsstaðar frá án þess að nokkuð væri hægt að fullyrða um það ennþá.
Ég þarf nú ekki meira að svara hv. 4. landsk. þm. og hæstv. fjmrh., en það er eitt atriði ennþá, sem gerzt hefir í þessu máli, sem mér finnst þess vert, að það komi fram. Það getur verið, að það hafi verið skýrt frá því í hv. Nd.; ég veit það ekki, ég hefi ekki fylgzt svo vel með umr. þar.
Að gefnu tilefni frá stj. hafa 2 af bankastjórum Landsbankans látið uppi eindregið álit sitt um það, að nauðsynlegt sé að endurreisa Íslandsbanka og bæri að gera til þess ítrustu tilraunir sem fært þætti. Þriðji bankastjórinn andmælti þessari skoðun meiri hl. bankastjórnar á engan hátt. — Þetta vil ég láta koma fram. Ég tel rétt, að það komi hér fram, þó að það færi að vísu betur á því, að það væri lagt fram á annan hátt en í þingræðu, því að stj. bar skylda til þess að láta það koma fram í gögnum þessa máls.