12.04.1930
Efri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (252)
1. mál, fjárlög 1931
Jón Þorláksson:
Ég hefi leyft mér að flytja brtt. við 16. gr. 9., viðvíkjandi raforkuveitum til almenningsþarfa. Svo sem sjá má á þskj. 497, XXIII., er hún í tveim liðum. Fer fyrri liðurinn fram á, að burtu falli skilyrði 9. liðs 6. gr., um fimmtungs framlag frá hlutaðeigandi héruðum til rannsóknar raforkumála í landinu. Sama málsatriði var til umr. hér í d. í fyrra, og þótti meiri hl. dm. þá sem ekki væri nauðsynlegt né sanngjarnt að krefja héruðin um sérstök fjárframlög til þessara rannsókna. En það, sem fyrir mér vakti þá eins og nú, er, að ég óttaðist, að slíkt skilyrði mundi valda því, að sjálf rannsóknin yrði ekki eins víðtæk og vera bæri. Það getur sem sé víða staðið svo á, að heppilegast sé að fleiri en ein sýsla komi upp stöð í sameiningu, ef hin bezta tilhögun á að nást í þessum efnum. En nú getur svo farið, að eitt hérað, en annað ekki, vilji leggja fram þetta fé, og yrði í því tilfelli að miða rannsóknina við það héraðið, sem féð leggði fram, en sleppa hinu, sem ekki hefði enn skilið nauðsyn þessara mála. Nú er það augljóst mál, að á þennan hátt verður ekki séð fyrir almennum hagsmunum þjóðfélagsins, svo sem bezt má verða. Nú hefir stj. þegar skipað einskonar n. til þess að hafa slíkar rannsóknir með höndum, samkv. fjárveitingu í yfirstandandi fjárl., og þegar hún er komin á laggirnar, þá er það mjög þýðingarmikið atriði, að hún telji sér ekkert óviðkomandi, sem verða mætti til þess að finna hið haglegasta fyrirkomulag, alveg án tillits til þess, hvort héruðin eru fús til þess að leggja fram fé til rannsóknanna. Skal ég svo ekki fara fleiri orðum um þennan lið brtt. að sinni.
Annar liður till. er um að bæla nýjum lið við 16. gr. 9., um 75 þús. kr. framlag til taugakerfa í raforkuveitum til almenningsþarfa, — utan kaupstaða átti að standa, en það hefir fallið burtu af vangá hjá prentsmiðjunni eða hjá mér, og er það sennilegra, því ég skrifaði till. í flýti. Ég ber þessa till. fram til þess að minna hv. þdm. á þetta langstærsta hagsmuna- og menningarmál sveitanna, sem ennþá bíður úrlausnar að mestu leyti.
Á þinginu í fyrra fluttum við sjálfstæðismenn frv. um að hefja nú á næstu árum nauðsynlegan undirbúning þessara mála, og um að taka ákveðna stefnu um það, að ríkið vilji styrkja þessi fyrirtæki, til þess að jafna aðstöðu þeirra, sem nær búa orkuverunum, og þeirra, sem fjær búa. Allt, sem síðan hefir komið fram í þessum efnum, hefir ótvírætt hnigið að því, að hér sé þessum málum stefnt inn á réttar brautir. Málinu var tekið þunglega af hæstv. stj. og flokk hennar í fyrra, og náði því ekki fram að ganga að því sinni. En nú er svo sterkur skriður kominn á þetta mál, að stj. treystir sér ekki lengur að standa á móti því að öllu leyti, en er nú jafnvel byrjuð að láta framkvæma annan höfuðþátt málsins; hafið undirbúning þeirra rannsókna, sem óhjákvæmilegt er að fram fari áður en langt um líður.
Sumstaðar á landinu eru þessi mál komin það langt áleiðis, að gerðar hafa verið rannsóknir og áætlanir um vatnavirkjanir og veiting orku út um byggðir, og er aðeins beðið eftir loforðum um nauðsynleg framlög úr ríkissjóði til taugakerfanna, og hinsvegar útvegun lánsfjár til framkvæmdanna. Þetta á sérstaklega við um Skagafjörð; þar virðist fundin hin heppilegasta úrlausn þess, hvaða fallvötn skuli taka til virkjunar í þessu skyni, enda hefir verkfræðileg rannsókn og undirbúningur farið fram og er nú að fullu lokið.
Samskonar undirbúningi hefir verið unnið að á suður- og vesturkjálka landsins vegna þeirra héraða, sem aðstöðu hafa til að nota vatnsorku úr Soginu. Efalaust munu fleiri koma á eftir, og þess vegna hefi ég flutt till. um að taka upp í fjárl. 1931 fjárveitingu til þessara mála, til þess að láta það koma skýrt fram, hvort Alþingi hefir þegar skilið nauðsyn þessa máls, og vill nú fara að sinna því af alvöru.
Það hefir nú farið svo um fjárl., að í þessu frv. fyrir 1931 eru gjöldin tveim milljónum króna hærri en í fjárl. 1928, og finnst mér þess vegna, að þegar svo hröð hækkun hefir átt sér stað og tilsvarandi álögur á landsfólkið, þá verði að gera kröfu til þess, að farið verði að sinna að einhverju leyti þeim nýju viðfangsefnum, sem nauðsynlegust verða að teljast. Að vísu eru nokkur ný viðfangsefni tekin upp í fjárl. að þessu sinni og eiga sinn þátt í hækkuninni. Má þar nefna tvo nýja liði við 13. gr., flugferðir og útvarp. Hvað sem kann að mega segja um ágæti þessara nýjunga, má þó óhikað fullyrða, að hvorug þeirra hefir eins mikla og víðtæka þýðingu og veiting raforku út um byggðir og býli landsins, svo fremi að býlin eigi hennar kost við sæmilegu verði. Hvað flugferðirnar snertir, þá tel ég það mjög vafasamt nýmæli að veita 70 þús. kr. til þess að koma þeim á fót, ef svo er álitið, að fyrir þá sök verði fjárveitingar til raforkuveita utan kaupstaða að sitja á hakanum um ófyrirsjáanlegan tíma. Hvað sem segja má um nytsemi flugvélanna, þá hefir þó reynslan sýnt það, að þær hafa ekki enn komið að verulega hagnýtum notum hér á landi, og er þess tæplega að vænta um nánustu framtíð. Þær virðast ekki hafa neina verulega þýðingu fyrir atvinnulífið sem slíkt, nema í tiltölulega fáum tilfellum, svo sem til fiskileita, en fyrir því er séð á annan hátt en með fjárveiting í fjárl. Ég álít það hreina og beina fjarstæðu að taka þessi og fleiri umbótamál upp á arma fjárveitingavaldsins, ef það á að verða til þess, að önnur miklu meiri nauðsynjamál verði látin sitja á hakanum, landi og þjóð til skaða og vansæmdar. Hér er nefnilega um að ræða þá stórfelldustu tilraun til þess að gera landið vistlegra og byggilegra en það hefir verið hingað til, tilraun til þess að gera lífvænlegra að búa í sveitunum og stöðva á þann hátt hinn mikla straum fólks úr sveitum til kaupstaðanna.
Á undanförnum árum hefir það verið sameiginlegt stefnumál framsóknarmanna og sjálfstæðismanna að vinna að viðreisn sveitanna. En mönnum þessum skjöplast sýn, ef þeir halda, að það sé hægt að ganga fram hjá þeim atriðum, sem mestu ráða um, er menn velja á milli sveita og kaupstaða. Ef vinna skal að viðreisn sveitanna á heilbrigðum grundvelli, þá er það höfuðatriðið, að gera verður í einu þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til þess að viðreisnin heppnist. Hitt er fálm að taka sumt, en skilja um leið svo mikið eftir, að nægi til þess að athöfnin mistakist. Þetta virðast menn ekki hafa skilið til hlítar, sem sýnilegt er af þeim kulda og þeirri andúð, sem þetta mál hefir mætt, og ekki sízt af hendi þess flokks, sem sérstaklega þykist bera hag sveitanna fyrir brjósti.
Ég álít rétt, að þingið taki nú þegar ákveðna afstöðu í þessum málum og sýni það ótvírætt, að ekki er ætlunin að láta sitja við núverandi fjárveitingu til rannsókna, heldur taka upp framkvæmdir þar sem staðhættir leyfa, eins fljótt og frekast er unnt.
Ég sé nú fram á það, að ef þessi brtt. mín verður samþ., þá myndi það hafa í för með sér ofurlítinn tekjuhalla í fjárlagafrv., eins og það nú liggur fyrir. En eins og ég álít það alveg þýðingarlaust atriði, hvort tekjubálkurinn í frv. er hækkaður til jöfnunar móti þeim litla halla, 50–60 þús. kr., sem var í frv. eftir 2. umr. hér í hv. d., eins álít ég engu máli skipta, hvort fjárlagafrv., þar sem gjöldin nema 13 millj. kr., er afgreitt með 70 þús. kr. halla eða ekki. Hitt skiptir meiru máli fyrir afkomuna, hvort árferði og stj. eru á þá lund, sem æskilegt er. Tekjuhalli, sem ekki nemur nema örlitlu hundraðsbroti af heildarumsetningunni; er algerlega þýðingarlaus í þessu sambandi. Ég held, að þótt þessi fjárveiting sé ekki stór, þá hafi hún þó þá miklu þýðingu, að með henni sýnir þingið, að það vill taka þetta mál upp til gagngerðrar afgreiðslu, og hefja framkvæmdir þar sem bezt hagar til, í þeirri von að halda þeim áfram eftir efnum og ástæðum í framtíðinni. Mætti þessi afstaða þingsins verða til þess að glæða vonir hjá þeim, sem eru að yfirgefa sveitirnar í vonleysi um það, að þeir tímar renni nokkru sinni upp, er tekið verður að veita orku, ljósi og yl út yfir okkar dreifðu landsbyggðir. Í annan stað gæti þetta orðið til þess að hindra menn í að verja miklu fé til bygginga einkastöðva, sem ekkert liggur fyrir síðar en að verða í veginum fyrir byggðaveitunum, og að verða lagðar niður þegar byggðaveiturnar samt sem áður komast á.
Ég skal svo láta útrætt um þessa till., en get vísað til þeirra umr., sem fram fóru í þessari hv. d. á síðasta þingi um samskonar mál.
Þá á ég ásamt hv. 1. þm. G.-K. brtt. XXIX á þskj. 497, við 18. gr., um lítilsháttar eftirlaun til fyrrv. símastöðvarstjóra C. A. Möllers.
Síminn er ennþá svo ung stofnun, að það má heita, að það sé ekki neitt starfsfólk hans komið í 18. gr. fjárl., þótt svo sé um aðrar hliðstæðar starfsgreinir, svo sem póstmál, vitamál og vegavinnu.
Það er nú orðin föst venja, að þegar opinberir starfsmenn láta af störfum sínum fyrir aldur eða heilsubilun, fá þeir lítilsháttar ellistyrk í 18. gr. fjárl.
Það stendur nú svo á um þennan stöðvarstjóra, að hann hefir gegnt störfum í 14 ár, árin 1914–1928. Hann er nú 71 árs og varð að segja af sér störfum vegna sjóndepru. Hann hafði áður þjónað erlendri verzlun hér á landi, og meðan verzlunin var við lýði, fékk hann lítilsháttar ellistyrk þaðan. Þessi verzlun er nú liðin undir lok, svo að hann nýtur einskis þaðan, og hefir hann því ekkert sér til framfæris.
Okkur flutningsmönnum finnst það nú í beztu samræmi við aðrar gerðir þingsins, að það veiti þessum fráfarna starfsmanni lítilfjörleg eftirlaun, enda hefir hann hin beztu meðmæli frá landssímastjóra til að fá þau. Maðurinn er líka svo til aldurs kominn, að þess er ekki að vænta, að þessi útgjöld hvíli lengi á ríkissjóði.
Þá á ég loks brtt. XXXIV., við 22. gr., um að heimila ríkisstj. að greiða víxilskuldir með áföllnum vöxtum vegna byggingar húss þess, sem nú hefir verið tekið til afnota fyrir vinnuhæli á Eyrarbakka, með allt að 8.600 kr.
Forsaga málsins er, sem kunnugt er, sú, að stofnað var til húsbyggingar þessarar af stj. sjóðs nokkurs, sem til var á Eyrarbakka. Þessi sjóður, sem nefndist spítalasjóður Eyrarbakka, hafði verið stofnaður aðallega af einum hjónum, en ýmsir síðan lagt í hann. Það var á mestu dýrtíðarárunum, sem í þetta var ráðizt. Byggingin varð miklu dýrari en við hafði verið búizt, en hinsvegar brugðust n. fjárvonir þær, sem hún hafði haft, að nokkru. En n. hafði það sér til afsökunar, að tveir af embættismönnum ríkisins, landlæknir og húsameistari, voru með í ráðum. Landlæknir setti fram sínar kröfur til spítalans og húsameistari ákvað, hvernig þær skyldu uppfylltar.
Bygging þessa húss stöðvaðist svo fyrir fjárþröng, þegar húsið var orðið fokhelt. Lánsstofnun sú, sem hafði lagt fram mestan hluta af lánsfé til byggingarinnar, gekk svo að veðinu og var það lagt henni út. Mun það hafa verið Sparisjóður Eyrarbakka frekar en útibúið á Selfossi. Fyrir utan þessa skuld, sem var um 23 þús. kr., hafði n. útvegað nokkurt fé gegn persónulegri tryggingu nm. eingöngu. Þetta voru 2 víxillán, sem með áföllnum vöxtum nema þessum 8.600 kr.
Seinna samdist svo um, að ríkisstj. keypti húsið af Sparisjóði Eyrarbakka, til að gera þar vinnuhæli. Var það þá eign Landsbankans, því að honum hafði verið lagt það út á uppboði.
Nú vita allir, að það, sem þetta hús var keypt fyrir, er aðeins lítill hluti þeirrar fjárhæðar, sem komin var í bygginguna, því að auk þessa lánsfjár, var í það lagður allur spítalasjóður Eyrarbakka, samskotafé og framlag úr ríkissjóði.
Nú er svo ástatt um fyrrv. spítalan. Eyrarbakka, en í henni voru yfirleitt efnaðri menn í því plássi, að líklegt er, að ekki sé nema einn eða kannske tveir þeirra, sem borgunarmenn verða fyrir einhverju. Ef nú verður að ganga að þeim fyrir þessum skuldum eða ábyrgðum, er ekki annað framundan fyrir þeim en gjaldþrot. Mér finnst það því hart, að svo skuli fara um þessa menn yrir það eitt, að þeir hafa verið kjörnir til að gegna trúnaðarstarfi í sínu plássi, þ. e. að vera í stj. spítalasjóðsins. Og þótt ríkissjóður borgi þetta, hefir hann samt fengið góð kaup á þessari eign.
Ég vona því, að hv. þd. fáist til þess að veita stj. heimild til þess að gera þetta. Ég hefi ekki viljað fara fram á meira. Það er nú á valdi hennar að dæma um, hvort þau rök, sem ég hefi hér fært fram, eru svo sterk, að rétt þyki að inna þessa greiðslu af hendi.