07.03.1930
Neðri deild: 47. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (2521)

68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Sigurður Eggerz:

Ég hafði ekki ætlað mér að tala hér í dag, en viss orð, sem hafa fallið í hv. deild, koma mér til að standa upp.

Niðurstaða sú, sem nú er að fást í þessu máli, er þannig löguð, að vel má við hana una, og eins og málinu horfði við á tímabili, er mikil ástæða til að gleðjast yfir þessari niðurstöðu. Bæði hv. 2. þm. Rang. og fleiri hafa sýnt fram á það, hversu sterkur sá banki á að verða, sem hér verður starfræktur framvegis í stað Íslandsbanka. Hlutafé „Útvegsbankans“ skv. 2. gr. á að vera 1½ til 2½ millj. kr., en auk þess leggur ríkissjóður Íslandsbanka 3 millj. kr. sem forgangshlutafé, ýmsir aðrir 1½–2 millj. og aðallánardrottnar bankans erlendis leggja fram í hlutafé og tryggingarfé ekki minna en 4½ millj. króna. Ég held því, að um það geti ekki orðið deila, að hér er verið að koma af stað öruggum banka. En af því leiðir aftur það, að þeir, sem eiga inni í Íslandsbanka, fá allt sitt greitt að fullu. Yfir því gleðst ég sérstaklega, og það veit ég, að allir gera. Við samþykkt þessa frv. má vona, að lánstraust landsins, sem þegar hefir beðið mikinn hnekki, verði nú endurreist.

Hér hafa heyrzt raddir um það, að með þessu frv. sé ekki verið að endurreisa Íslandsbanka, heldur stofna annan banka og leggja Íslandsbanka niður. Þetta er nú að vísu formið á frv., sem hér liggur fyrir, en nánari athugun sýnir, að það er Íslandsbanki, sem á að starfrækja áfram. Hlutafé þessa „nýja banka“ á að vera 1½ til 2½ millj. kr. En hvað segir slík smáupphæð, þegar um það ræðir að koma nýju bankafyrirtæki af stað? Vitanlega verður það Íslandsbanki með öllum sínum samböndum, sem verður grundvöllurinn undir Útvegsbanka Íslands. En ef einhverjir gleðjast af því, að hann heiti nýju nafni, og geta notað það til að friða samvizku sína eftir að hafa snúizt á rétt mál, þá er ekkert út á það að setja. Aðalatriðið er það, að nú sýnast horfur á, að bæta megi þann hnekki, er lánstraust þjóðarinnar hefir beðið.

Tilefnið til þess, að ég stóð hér upp, voru annars nokkrar aths. frá hv. 2. þm. Reykv. Í umr. um Íslandsbankamálið hefi ég til þessa ávallt lagt alla áherzlu á að vinna að því, að bankinn verði endurreistur, og að allt, sem unnt er, væri gert til að koma í veg fyrir spjöll á lánstrausti Íslands. Ég hefi aldrei flutt neinar varnarræður fyrir mig eða aðra bankastjóra Íslandsbanka. Enda þurftum við ekkert að verja. Við eigum enga sök á því, hvernig komið er. Við höfum unnið eins og við gátum á móti því, að bankinn þyrfti að loka. En um síðir fór svo, að hin köldu ráð, er bankanum voru ráðin bak við tjöldin, urðu okkur um megn. Og ég býst við, að eins hefði farið fyrir flestum öðrum í okkar stöðum. — Það er ekki neitt nýtt, þótt ég fái nú að heyra hótanir frá hv. 2. þm. Reykv. um sakamálshöfðanir og refsingu. Það hefir verið einskonar hersöngur í sumum stjórnarblöðunum nú um langan tíma, marrið í tukthúsdyrunum. Í hvert skipti, sem hæstv. stj. mislíkar eitthvað, þá er hlaupið til að opna tukthúsdyrnar, og það er eins og innstu óskir sumra aðdáenda hennar séu uppfylltar, þegar þeir heyra braka í hjörunum, Grimmdin í þessum mönnum er ekki lítil. Þeim er ekki nóg að ná stöðunum frá andstæðingum sínum. Nei: Tukthús, tukthús! Það er herópið. Maður kannast við sum af þessum tryggðatröllum, sem nota hvert tækifæri til að níðast á andstæðingunum: — En hvað er það þá eiginlega, sem þeir vilja höfða mál gegn okkur bankastjórunum fyrir? — Það var borið út um bæinn, af mönnum, sem eru kannske ekki alveg óskyldir þeim, sem nú standa með refsivöndinn, að bankinn mundi skulda 10–15 millj. kr. umfram eignir. Þetta flaug út um hverja smugu í bænum. Þá framkvæmdu þeir mat á bankanum Jakob Möller bankaeftirlitsmaður og Pétur Magnússon bankastjóri í Búnaðarbankanum. Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að bankinn mundi eiga fyrir skuldum, ef hann héldi áfram starfsemi sinni. Þar með var rothögg slegið á slúðursögurnar um skuldir bankans. Nú höfðu óvinir bankans ekki nema eitt ráð. Þeir hrópuðu: Hvað er að marka mat þeirra J. M. og P. M.? Þetta eru íhaldsmenn! — Og árásunum á þessa menn linnti ekki. Síðan skipaði landsstj. sína eigin trúnaðarmenn til að meta bankann. Niðurstaða þeirrar matsnefndar var ákaflega lík og nærri hin sama, sé tekið tillit til aths. matsmannanna. Þegar því einn af höfuðfulltrúum jafnaðarmanna metur bankann, kemst hann að nærri sömu niðurstöðu. Þetta er því algert rothögg á þá kenningu fjandmanna bankans, að bankann vanti 10–15 millj. kr. til þess að eiga fyrir skuldum.

En þegar nú þessi draugur var kveðinn niður, þá var næst ráðizt á bankastjórana. Einhvern þurfti endilega að hálshöggva. Fyrst ekki tókst að hálshöggva bankann, þá þurfti þó einhvern að hálshöggva, og þá voru það bankastjórarnir. En ég hefi nú aldrei séð hámark hræsninnar eins skýrt eins og hjá hv. þm., þegar hann var að láta marra í tukthúsdyrunum. Þetta er hámark hræsninnar! Fyrir tveimur árum var Landsbankinn metinn, og eftir því mati var það á allra vitorði, að bankann vantaði miklu meira en Íslandsbanka til þess að hann ætti fyrir skuldum. En hvað var þá gert? Og hvað gerðu fulltrúar jafnaðarmanna þá? Bankastjórar Landsbankans eru hinir sömu menn og þá voru enn í dag. Þeir eru leiðandi menn í fjármálalífi þjóðarinnar. Og til þeirra er enn leitað ráða, og þá einnig um það, hvað gera skuli við Íslandsbanka. En jafnaðarmannaforingjarnir liggja í duftinu, ef minnzt er á bankastjóra Landsbankans. Er það af því, að þeir fá keypta víxla þar? Sömu menn, sem vilja hefja stj. á Landsbankanum hátt til skýjanna, vilja opna tukthúsdyrnar fyrir bankastjórum Íslandsbanka! Er ekki þetta hámark hræsninnar? Tala ærlegir menn á þann hátt? Eða er heiftin búin að blinda svo sýn þessara manna, að þeir séu búnir að gleyma því, sem gerðist fyrir tveimur árum? — Yfirleitt hafa þeir kannske haldið, að þeir hafi sýnt mikla karlmennsku, þegar þeir voru að reyna að drepa Íslandsbanka. En nú hefir stj. tekið þá aðstöðu að leggja til, að bankinn fái að lifa. En hvað gera þá jafnaðarmannaforingjarnir? Jú, hv. 2. þm. Reykv. vítti þetta lítilsháttar, en kom ekki fram með neinar verulegar ákúrur til stj. Það er því auðséð, að stj. á að lifa góðu lífi. Og af hverju? Af því að hv. frsm. jafnaðarmanna mun hafa séð í kíki einn lítinn bankastjóra handa jafnaðarmönnum. Og það er sagt, að auðvaldsdjöfullinn hafi hvíslað því að honum, að þessi bankastj. ætti að fá að launum 24 þús. kr., og að þá hafi hv. þm. bráðnað og vilji síðan í hjarta sínu endilega, að bankinn sé opnaður. — Já, auðvaldsdjöfullinn! Það hlýtur að vera einhver sá versti djöfull, sem til er, þegar þessi miklu karlmenni gleyma sér svona algerlega. Hv. jafnaðarmenn vilja endilega draga mig undir hegningarlögin. En ég verð að segja það, að ef lögin væru eins og þau ættu að vera, þá ættu þau að hafa til hegningarákvæði handa þeim, sem drepa vilja virðingu, sjálfstæði og lánstraust þjóðarinnar út á við og inn á við. Þeir menn ættu að titra og skjálfa fyrir refsiákvæðum laganna, en ekki þeir, sem berjast fyrir, að þessi beiski kaleikur víki frá þjóðinni. En sá dagur kemur, þegar þjóðin hefnir þess, sem misgert hefir verið í þessu máli sem öðrum. Og sá dagur er nær en þá sjálfa grunar. En hver eru svo ákæruatriðin, sem þeir bera fram á hendur bankastj. Íslandsbanka? Hið fyrsta er símskeytið til Hambros upp á þá fyrirspurn, hvers vegna hlutabréf bankans væru að falla í verði. En sú fyrirspurn kom nokkrum dögum áður en bankanum var lokað. Þeirri fyrirspurn var svarað með því einu, sem rétt var, að við vissum ekki orsökina til þess að verðbréfin féllu erlendis, en bentum á, að þau væru að hækka í verði aftur. Þetta var alveg rétt svar. Við vissum ekki ástæðuna. Vegna uppsagnar Privatbankans gat það ekki verið, því það er áreiðanlegt, að hann hefir ekki farið að auglýsa þá uppsögn. Og viðskipti Íslandsbanka við þann banka eru orðin svo löng, að enginn vafi leikur á því, að samningar hefðu tekizt um skuldina, ef Íslandsbanki hefði getað sett fullnægjandi tryggingu.

Þá er það þessi fölsun, sem á að hafa átt sér stað í reikningum bankans. En í aths. þeim við matið, sem stjórnskipaða n. lét frá sér fara, stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „Virðist okkur bókfærsla bankans ljós og óbrotin og bækurnar vel færðar og greinilega. Að sjálfsögðu höfðum við ekki aðstöðu til að fara í neinskonar endurskoðun á þessum stutta tíma, en sú eina aths., sem við gerðum við færslu bókanna, komum við að er jafnaðarreikningurinn er rakinn hér á eftir“. — Ég veit ekki fyrir víst, við hvað matsnefndin á með þessari aths. En líklega er það þó uppfærsla sú, er matsnefndin gerði á skuldum banka vegna gengisreiknings. En í því sambandi vil ég þá minna á það, að í landsreikningnum 1928 er enska lánið frá 1921 uppfært með gengi hvert £ á kr. 21,10. Afleiðingin af því er sú, að hagur ríkissjóðs verður á reikningi kr. 125.561,33 betri en ella. Ja, hvernig fer nú fyrir stj.? Verður tukthúsið opnað fyrir henni? Þarna hefir stj. reiknað gengið lægra en stranglega tekið er rétt. Ætla hv. jafnaðarmenn að ógna stj. með marri í tukthúshurðinni vegna þess arna? En ef þeir gera það ekki, þá skil ég ekki í því, að sú sök verði þung á okkur bankastjórunum fyrir það að hafa reiknað £ á kr. 22,00, þegar stj. reiknar sinn hluta með 21,10 og lætur það koma fram í opinberum reikningum: Ég held, að það þurfi að vanda alveg sérstaklega val á dómara, ef hann á að dæma okkur bankastjórana í tukthús fyrir þessa sök. Mín samvizka er svo góð, að ég get dáðzt að jafnaðarmannaforingjunum, ef þeir geta fundið þann rannsóknardómara, sem gæti dæmt mig í tukthúsið.

Þá er mikið talað um það, að reikningar bankans hafi verið rangir, þannig að þeir sýni betri útkomu heldur en matsnefndin hefir komizt að um hag bankans. Ef reikningar bankans ættu ávallt að vera í samræmi við slíkt mat, þá þyrfti að meta hag bankans mánaðarlega. Og hvernig er þetta svo með aðra banka? Hvernig er með reikninga Privatbankans og hvernig með reikninga Landsbanka Íslands? Haldið þið virkilega, ef þeir bankar væru metnir, að niðurstöður n. mundu ekki verða aðrar en bankareikningarnir sýna? Jú, vissulega! — Þegar Íslandsbanki var metinn, þá var niðurstaðan þegar færð í reikninga bankans. Fyrir tveim árum var Landsbankinn metinn. Hefir sú niðurstaða, sem þá fékkst, verið tekin til greina í reikningum bankans? Nei, það hefir ekki enn verið gert. Eða ég veit ekki til, að það sjáist þar. Ég er ekki í neinum vafa um, að reikningar beggja þeirra banka, sem ég nefndi, sýna ekki rétta spegilmynd af ástandinu eins og það er á hverjum tíma. Það sýna einmitt afskriftirnar. Ég skal fúslega játa, að ég er enginn sérfræðingur í bókfærslu. En ég sé ekki, hvernig þeir menn, sem lofsyngja Landsbankanum í hvívetna, geta vítt aðra banka fyrir nákvæmlega það sama og Landsbankinn gerir. Ég veit því ekki, hvernig þeir fara að því að halda svona ræður eins og þeir gera hér. — Ég sé, að hv. 2. þm. Reykv. hefir enn ekkert lært af meðferð þessa máls hér í þinginu. Fyrir honum er það enn „fiks Idé“ að bankinn þurfi endilega að drepast. Hann gleymir enn, að um leið og bankinn er drepinn, þá er líka lánstraust landsins drepið um leið. Og hv. þm., sem alltaf þykist hafa hina fátæku hjá sér og vera þeirra málsvari, ætti ekki að gleyma þeim 10 þús. fátæku innstæðueigendum, sem hafa trúað bankanum fyrir aleigu sinni. — Yfirskriftin yfir dyrum hv. þm., sú, að hann sé málsvari hinna fátæku, gleymist alveg, þegar um þessa fátæku menn er, að ræða.

Nei, svo harðbrjósta eru þessir svonefndu leiðtogar alþýðunnar, að þeir vilja fyrir hvern mun traðka rétti þessara manna. Og hvernig geta þeir verið leiðtogar alþýðunnar áfram, sem gleyma henni hvenær sem eitthvað örðugt kemur fyrir. Ef jafnaðarmenn réðu hér á þingi, þá vitum við, hvað gert væri. Þá yrði frv. drepið, réttur innstæðueigenda fyrir borð borinn og lánstraust landsins drepið. Og þessir menn leyfa sér að tala stór orð. Það er alveg furðulegt, að þeir skuli leyfa sér að tala slík orð. Það er sannarlega hámark hræsninnar, hvernig þeir leyfa sér að tala í þessu máli!