07.03.1930
Neðri deild: 47. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (2529)

68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Frsm. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):

Ég held fast við það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að enginn einasti þm. mundi vera ánægður með þetta frv. (GunnS: Ekki að öllu leyti). Þótt mikill meiri hl. muni greiða því atkv., er ég viss um, að enginn er ánægður með það.

Annars ætlaði ég að snúa mér að hv. 2. þm. G.-K. og þeim orðum, sem hann vék að mér. Því, sem hv. þm. sagði um afstöðu hæstv. stj. til þessa máls, er fyrst og fremst hennar að svara. Hv. þm. var hér að tala fyrir Alþingistíðindin um það, að stj. hefði snúizt á málstað Sjálfstæðisflokksins. Þetta er ekki rétt. Það mætti alveg eins segja, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði snúizt á málstað stj. Það eru einstakir menn úr Framsóknarflokknum, sem koma þessu á með aðstoð Sjálfstæðismanna, réttnefndra Íhaldsmanna.

Þá vildi hv. þm. afsaka villandi upplýsingar, sem bankastjórarnir höfðu gefið um hag bankans áður en bankanum var lokað, t. d. svörin við skeytinu frá Hambrosbanka til Eggerts Claessens bankastjóra. Enginn maður, sem les þetta skeyti og svar Eggerts Claessens bankastjóra, getur sagt, að það sé nokkurt svar. Í skeytinu frá Hambro er sagt, að það gangi óhagstæður orðrómur um bankann og hann álíti, að hlutabréfafallið í Danmörku stafi af því. Beðið um opinber mótmæli. — Eggert Claessen svarar aðeins, að slík hækkun og lækkun verðbréfanna sé algeng, svo ekkert sé við það að athuga. Hann svaraði ekki því, sem mörg hundruð manna vissu, að Íslandsbanki var valtur og reikningarnir rangir um mörg ár. Ég er viss um, að hv. 2. þm. G.-K. hefir lengi vitað, að bankinn var valtur. Hvernig stendur þá á því, að bankastj. Ísl.banka skýra ekki einum stærsta lánardrottni sínum frá þessu, þegar þeir eru spurðir í trúnaði? Ég álít það meira en vítavert, saknæmt. Bankastjórinn gat a. m. k. viðurkennt, að bankinn ætti við örðugleika að stríða, sem gætu leitt til lokunar, ekki sízt þar sem menn vissu, að bankinn hafði ekki greitt dollaravíxilinn mikla, þó komið væri þrjá mánuði fram yfir gjalddaga. Slíkt er ekki talin skilvísi þegar einstaklingar eiga í hlut, hvað þá ef það eru bankar, sem eiga að vera fyrirmynd almennings í peningaviðskiptum. En enginn fékk að vita sannleikann, fyrr en búið var að loka. Og hv. 3. landsk., bankaráðsmaður Íslandsbanka, hefir sagt það blátt áfram í Ed., að undir svona kringumstæðum mætti ekki segja sannleikann fyrr en búið væri að loka. Þannig er „mórall“ þessara manna.

Svo er annað atriði, sem er vítavert, ef satt er, og sem mér þykir undarlegt, ef ekki varðar við lög. Á ég þar við það, sem fullyrt er, að Íslandsbanki hafi látið veð Landsbankans „rýrna“ um 100 þús. kr. Ef þetta er ekki rétt, þá gefst nú hv. þm. Dal. tækifæri til að mótmæla því.

Og fleiri atriði viðvíkjandi stjórn bankans þarf að athuga. Hafi bankastjórarnir eitthvað sér til afsökunar, væri það mjög æskilegt, að það gæti komið fram. En hafi þeir engar ókunnar afsakanir á stj. sinni, eiga þeir að sæta ábyrgð gerða sinna. Það er ekki nóg að leggja bankann niður. Það þarf líka að gera hreint fyrir um hag hans allan og stjórn á undanförnum árum. Það er áreiðanlega heppilegast fyrir alla hlutaðeigendur og nauðsynlegt til að girða fyrir mistök og óstjórn framvegis á peningastofunum í landinu.

Mér þótti það fremur ótrúlegt, sem hv. 2. þm. G.-K. sagði, að margir mundu taka undir þau ummæli hans, að rétt væri að hafa sömu bankastjórana áfram. Lánardrottnar bankans erlendis eru sjálfsagt ekki á sömu skoðun og hann um það atriði. Ég held, að það mundi eyðileggja með öllu lánstraust bankans og landsins erlendis, ef bankastjórar Íslandsbanka yrðu látnir taka við stjórn hins nýja banka.

Þá var sami hv. þm. að tala um, að Útvegsbankinn nýi sé ekki nema smábanki. Jæja, talsverður munur er nú á honum, með 1½ millj. kr. nýja hlutafénu frá ríkissjóði, auk aukningar hlutafjárins frá lánardrottnum, er nemur 6 millj. króna, og Íslandsbanka, sem á 3 millj. kr. minna en ekki neitt hlutafé. Og við Íslendingar erum nú ekki ennþá orðnir svo stórir, að 2½ millj. kr. sé ekki talsvert mikið fé á okkar vísu. A. m. k. eru þær stórfé miðaðar við þær 650 þús. kr., sem hv. þm. Dal. hélt fram, að hefðu getað bjargað Íslandsbanka.

Hv. þm. (ÓTh) gladdist yfir því, að í raun og veru væri nú verið að fallast á frv. hans og hv. 1. þm. Skagf. En ég sé nú ekki margt sameiginlegt með frv. því, sem hér liggur fyrir, og frv. þeirra. Í þeirra frv. er ekki gert ráð fyrir, að þeir, sem eiga inni í bankanum, leggi neitt af mörkum til að endurreisa hann. Þar er aðeins gert ráð fyrir, að einhverjir samningar séu gerðir við lánardrottna bankans erlendis, og síðan tæki ríkissjóður ábyrgð á öllu saman, ekki aðeins siðferðislega, heldur líka lagalega. Svo gerir það ráð fyrir, að fram fari mat á hlutabréfum bankans, og kem ég þá að ummælum hv. 2. þm. G.-K. um mat þetta. Það er sama, hvernig hann reynir að fegra það, og þó hann segist hafa viljað láta matið sýna, að hlutabréfin væru orðin verðlaus. Það vita allir, að íhaldsmenn hafa haldið fram og halda enn fram rétti hinna útlendu og innlendu hlutafjáreigenda. Þess vegna vildu þeir tryggja sjálfum sér rétt til að skipa 2 menn af 5 í matsnefndina og láta svo mann úr miðstjórn síns eigin flokks vera sjálfkjörinn oddamann í henni. Hann afsakar þetta með því, að sá maður, Jakob Möller bankaeftirlitsmaður, hafi áður verið búinn að lýsa því yfir, að hann áliti hlutafé bankans allt tapað.

En þessi sami maður hefir áður framkvæmt mörg möt, og þau hafa getað færzt til á ýmsa vegu og ekkert þeirra þó staðizt rétt yfirmöt. Og ég sé enga ástæðu til að treysta honum til að gera nýtt mat, sem ábyggilegra reyndist en þau fyrri, allra sízt þegar það átti að vera síðasta mat, sem ekki var hægt að búast við neinni endurskoðun á.

Hv. þm. sagði, að þó bankinn hefði verið gerður upp, myndu menn ekki hafa séð annað fært en láta ríkissjóð og Landsbankann gefa eftir veð sitt í Íslandsbanka. En ég vil benda honum á, að það er ekki einu sinni í frv., sem nú liggur fyrir, gert ráð fyrir, að Landsbankinn veiti bankanum neinn stuðning. Og allir vita, hvernig skuld Íslandsbanka við ríkissjóð er til komin, að bankinn fékk hluta af enska láninu til að borga með gamlar skuldir. Er því ekki nema eðlilegt, þó hún sé vel tryggð. Ég skili ekki, að afsakanlegt hefði verið að kasta burtu þessum tryggingum hins opinbera fyrir lánum, sem veitt voru bankanum eftir að hann hefði átt að vera tekinn til gjaldþrotaskipta. Yfirleitt sýnist ekki vel skiljanleg afstaða íhaldsmanna til þessa máls; að þeir skuli nú vilja, eftir alla baráttu gegn því, að ábyrgð væri tekin á þjóðbankanum, að tekin verði ótakmörkuð ábyrgð á Íslandsbanka, sem er einkafyrirtæki, þó hið opinbera skipi nokkra menn í stjórn hans.

Hv. þm. sagði, að hlutafé Íslandsbanka væri erlent fé, sem hingað hefði leitað í góðri trú, og það ætti sama rétt á sér og annað fé. Þetta er nokkurnveginn rétt, þó nú sé 1/3 af hlutafénu íslenzk eign. En það getur aldrei komið til mála að gera bankahlutafénu hærra undir höfði en öðru fé. Það er svo sem ekkert nýtt, þó erlent fé tapist hér eða annarsstaðar. Til dæmis má benda á, að selstöðuverzlanirnar hafa margar tapað hér miklu fé, og t. d. Milljónafélagið forðum. Það er ómögulegt að koma í veg fyrir slíkt, eða á kannske ríkissjóður að borga öll töp, sem útlent fjármagn verður fyrir hér á landi, til þess að vernda lánstraustið? Nei, þá væri áreiðanlega snúið inn á ranga braut.

Um það, sem hv. þm. var að tala um viðvíkjandi vantrausti á stj., get ég sagt það sama og hv. þm. Ísaf. Við erum yfirleitt ekki fylgjandi stj., þó við höfum verið hlutlausir í hennar garð það sem af er, og framkomu hennar í ýmsum málum teljum við ekki verjandi. En hvort við höldum hlutleysinu áfram, getur hann sjálfur reynt, eins og honum var bent á, með því að bera fram vantraustsyfirlýsingu á stj.

Hv. þm. V.-Ísf. minntist nokkuð á sendiherrann. Lækkaði hann nú seglin og kannaðist við, að Sveinn Björnsson hefði ekki komið fram við samningatilraunir fyrir Íslandsbanka sem sendiherra Íslands eða eftir skipun stj., heldur hefði hún aðeins leyft honum að vinna að þeim sem „privat“-maður. Hann þóttist ekki sjá mikinn mun á því, hvort Sveinn Björnsson ynni sem sendiherra eða bara sem Sveinn Björnsson. En auðvitað hefir hann meira vald, þegar hann kemur fram fyrir hönd stj. heldur en sem „privat“maður. Hygg ég það komi á daginn, að allt þetta sendiherrabrölt, sem átti að vera til að undirbúa endurreisn bankans, verði ekki til annars en stórspilla fyrir málinu. Án „privat“-milligöngu Sveins Björnssonar, hv. þm. V.-Ísf. og hv. 3. landsk. væri málið nú komið í góða höfn.

Einstakir bankaráðsmenn hafa látið bjóða hvert boðið öðru betra, og þannig veikt hinn íslenzka málstað gagnvart hinum erlendu lánardrottnum. Hefði eflaust verið betra, að stj. hefði sjálf staðið fyrir öllum samningum þessu máli viðkomandi. Vil ég endurtaka þá ósk, að hæstv. forsrh. sjái um, að öll símskeyti, sem farið hafa á milli sendiherrans og stj. eða bankaráðsmannanna út af bankamálinu, verði birt opinberlega.

Hv. þm. V.-Ísf. minntist á; að hann hefði verið á móti vinnudómi, varalögreglu o. fl. slíkum áhugamálum íhaldsins, og á hann auðvitað þakkir skilið fyrir það. En þá var ekki annað eins fjárhagsmál um að ræða eins og nú. Þá lá ekki á honum slíkur þungi og aðrar eins tilraunir af hálfu íhaldsmanna til að draga hann í sinn dilk eins og nú.

Það, sem við Alþýðuflokksmennirnir höfum alltaf barizt fyrir í þessu máli, er það, að sæmilegur grundvöllur fáist fyrir tryggri peningastofnun handa sjávarútveginum, og að tap ríkissjóðs og þjóðarinnar vegna hruns Íslandsbanka verði ekki þungbærara heldur en nauðsyn krefur. Þetta virðist nú ekki ætla að takast að öllu leyti. Þó er nú gert ráð fyrir að koma á fót sterkum banka, og er það mjög gleðilegt. En við jafnaðarmenn getum ekki fallizt á, að sá nýi banki taki við búi Íslandsbanka og öllu tapinu, sem á því hvílir. En til þess að Framsóknarflokknum gefist tækifæri til að samþykkja brtt. hv. þm. V.-Húnv., sem er til mikilla bóta, án þess að það verði frv. að falli, vil ég bjóða honum fyrir hönd okkar Alþýðuflokksfulltrúanna, að við greiðum atkv. með því, að frv., sem nú liggur fyrir, verði að lögum, ef þeir samþykkja brtt. hv. þm. V.-Húnv. við það. Við erum 3 hér og 2 í Ed., svo þess er enn kostur að lækka tap ríkissjóðs til muna, ef Framsóknarflokkurinn er einhuga um það. Hlutafé til Útvegsbankans hlýtur að fást eins fyrir það, þó þessi breyt. verði samþ. á frv., því loforð um að leggja það fram hafa vist ekki verið öðrum skilyrðum bundin en að ríkissjóður legði fram 3 millj. á móti. Sú 1½ millj., sem ríkið leggur í Útvegsbankann, er því nýtt fé, sem ekki er bundið af þeim loforðum til að taka þátt í tapi Íslandsbanka.

Ef maður gerði ráð fyrir, að það yrði 10% arður af hlutafé bankans, ef hann þyrfti ekki að leggja neitt til að afskrifa gömlu töpin, þá yrðu það um 600 þús. krónur á ári, sem eftir brtt. rynnu til að borga tapið á Íslandsbanka. Greiddist það þá að fullu á 5–6 árum, og væri það góð niðurstaða. Á sama tíma fengi ríkissjóður 750–900 þús. kr. í arð af þeirri 1½ millj., sem hann leggur fram sem hlutafé í Útvegsbankann. Það munaði því talsvert miklu fyrir ríkissjóð, ef þessi brtt. væri samþ., og væri málinu þó engu verr fyrir komið. Ég skýt þessu nú til framsóknarmanna, og er það á þeirra ábyrgð, hvort þeir ganga að því eða ekki.