07.03.1930
Neðri deild: 47. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (2535)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Bjarni Ásgeirsson:
Það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um mitt innræti og hvatir þær, sem réðu minni framkomu í opinberum málum, er ekkert til að undrast yfir. Þetta hlaut svo að vera hjá honum. Vitanlega verður hann að gera ráð fyrir sama „moral“, sem stjórni öðrum, eins og fyrir löngu er landskunnugt að stjórnar öllum gerðum þessa hv. þm. En út af því, sem hann sagði um mín mök,við íhaldið, þá get ég viðurkennt, að það út af fyrir sig gerir engan að meiri manni að rugla reitunum saman við þá menn. En þó er það nú þannig, að það kám, sem maður fær á sig frá þeim, verkar á mann eins og sápa á móti þeim pólitíska óþrifnaði, sem stafar af mökum við hv. 2. þm. Reykv. og hans líka.