07.03.1930
Neðri deild: 47. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (2537)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Hannes Jónsson:
Hv. 1. þm. Skagf. sagði nú síðast í ræðu sinni, að brtt. mín mundi leiða til þess, ef hún yrði samþ., að kippa fótunum undan frv. Ég veit ekki, hvernig hv. þm. getur sagt annað eins og þetta án þess að færa nokkur rök fyrir því. (MG: Ég var búinn að því áður). Ég vil þá benda á það, sem ég hefi áður fært rök að, að þó þessi brtt. verði samþ., þá verður fullnægt öllum þeim skilyrðum, sem sett voru fyrir framlögum hlutafjárins, og þar á meðal því aðalatriði, að ríkissjóður leggur fram 3 millj. króna með sömu áhættu og annað hlutafé. Skilyrðunum er hvergi breytt að öðru en því, að ríkissjóður leggur samkv. þessu frv. 1½ millj. kr. meira til hins nýja banka en farið var fram á eða gert ráð fyrir, þegar hlutafénu var lofað. Er það nú ósanngjarnt, að vextirnir af þessari 1½ millj. kr. fari til ríkissjóðs? Ef Íslandsbanki hefði verið endurreistur á þann hátt, sem hinir nýju hluthafar ætluðust til, þá hefði hann þurft að fá 1½ millj. kr. lán af handbæru fé, og það hefði hann vitanlega ekki getað fengið vaxtalaust. Og ég held, að hv. 1. þm. Skagf. hefði ekki veitt bankanum vaxtalaust lán.
Ég held, að það sé alveg ástæðulaus ótti hjá hæstv. fjmrh., að frv. komist ekki í gegnum Ed., þó að þessi brtt. verði samþ. hér, því að það hlýtur að vera öllum hv. þdm. svo ljóst, að hér er ekkert vikið frá þeim skilyrðum, sem sett voru fyrir söfnun hlutafjárins. Og ekki ætti það að spilla fyrir, þó reynt væri að tryggja ríkinu vexti af því hlutafé, sem það leggur í bankann fram yfir það, sem um var talað meðan verið var að safna loforðum um hlutafé hjá innstæðueigendum.
Hv. þm. Ísaf. hefir áður bent á það, að af framlögum ríkissjóðs til bankans af enska láninu verður ríkissjóður árlega að greiða 360 þús. kr., er þá reiknast sem aukin útgjöld frá því, sem nú er. Þar við bætast vextir af láni til þess að leggja 1½ millj. kr. í Útvegsbankann, þannig að hin árlega vaxta- og afborganabyrði ríkissjóðs af þessum fjárframlögum til bankans eykst um ½ millj. króna.
Það er þess vegna ekki ástæðulaust að tryggja ríkissjóði a. m. k. vexti af þessu nýja framlagi — 1½ millj. kr. Því fremur, sem ýmsir fylgismenn frv. hafa í ræðum sínum hér í þd. í dag talað svo mikið um, hvað bankinn yrði öflugur með þessu nýja hlutafé, og næstum því óþarflega sterk stofnun.
Hv. 2. þm. G.-K. kom með ýms reikningsdæmi til þess að sýna, hvað brtt. mín væri ósanngjörn. En ég verð að játa, að ég skyldi ekki vel þá reikningsfærslu hans. Hv. þm. gengur út frá því, að bankanum séu tryggðar 6 millj. kr. í hlutafé, enda mun það vera nálægt sanni; og að tap Íslandsbanka sé 3½ millj. kr. samkv. niðurstöðu matsnefndarinnar. (ÓTh: Nei). Jú, hv. þm. reiknaði með þessu hvorutveggja og komst að þeirri niðurstöðu, að tapið væri 58% af framlögum hinna nýju hluthafa. Þetta er ekki fjarri því að vera rétt reiknað. Hann benti ennfremur á, að Íslandsbanki ætti útistandandi í lánum ca. 32 millj. kr. Og svo fer hv. þm. aftur að reikna með þessum gefnu tölum og kemst að þeirri niðurstöðu, að ef bankinn væri gerður upp nú með sama tapi fyrir þá innstæðueigendur, sem ætla að kaupa hlutafé í bankanum, þá yrðu töp bankans að vera 18 millj. kr. — og finnst honum slík niðurstaða ósennileg, sem vonlegt er. Á þennan hátt þykist hann vilja sýna, hvað brtt. mín sé nærgöngul við hlutafjáreigendur.
Ég vil nú benda hv. þm. á, að með því að reikna þetta dæmi upp eftir því, sem frv. er nú, án nokkurra breytinga frá mér, þá verður ekki ýkjamikill munur á niðurstöðunni. Hlutaféð má þá telja 7½ millj. kr., og sé gengið út frá tapi samkv. matinu, 3½ millj. kr., myndi tap á hlutafénu nema 47%, sem þá hefði sömu afleiðingar fyrir hlutafjáreigendur eins og bankinn væri gerður upp nú, eftir hin nýju hlutafjárframlög, með 15 millj. kr. tapi. Vill hv. þm. viðurkenna, að tapið verði svona mikið, ef bankinn yrði gerður upp nú? Þetta er þó reiknað nákvæmlega eftir þeirri formúlu, sem hann gaf. — Ef hv. 2. þm. G.-K. heldur fast við útreikning sinn, þá verður hann að játa, að miklu meira tap á Íslandsb. sé lagt til grundvallar þessu frv. en hann hefir hingað til viljað kannast við. Hinsvegar skal ég játa, að ég legg ekkert upp úr þessum útreikningi hv. þm., af því að hann er byggður á röngum grundvelli og hefir því ekkert gildi. Það, sem þýðingu hefir í þessu máli, er þetta: að ef arði af öllu hlutafénu yrði varið til afborgana á töpum bankans, og til þess þyrfti t. d. 4 ár, þá þyrfti eftir minni till. 5 ár til þess að vinna tapið upp með Íslandsbankahlutafénu einu saman. Hlutföllin milli þessara tveggja leiða eru þá eins og 4:5 hvað snertir tímalengd til afborgana á töpunum. Hitt get ég látið liggja á milli hluta, hvað tap Íslandsb. í raun og veru er; hvernig sem um þá niðurstöðu fer, breytast ekki þessi hlutföll.
Hv. 1. þm. Skagf. var í síðustu ræðu sinni að leiðrétta það, sem ég hafði sagt, að hann hefði talað nokkuð djarflega í framsöguræðu sinni fyrir hönd n. Vera má, að það hafi farið framhjá mér, að hann hafi sagzt tala frá sínu eigin brjósti, en ekki fyrir hönd n. En mér þótti rétt að gera aths. við ræðu hans, af því að hún var röng í ýmsum atriðum. Hann sagði, að stöðvun Íslandsbanka væri hið eina bankahrun hér á landi, en jafnframt hélt hann því fram, að bankinn væri enn lifandi. — Hann hefir sjálfsagt haft í huga orðtækið: „maðurinn lifir, þótt hann deyi“, og tjáir ekki að þrátta við hann um slíka hluti. Þó að bankinn hrynji og hætti störfum, þá lifir hann eftir sem áður. Ég veit ekki, hvernig er hægt að fara með Íslandsbanka, svo að hv. þm. telji hann eigi alltaf lifandi.
Það verður ekki annað sagt en að brtt. mín hafi fengið fremur kaldar viðtökur hér í d. En hvernig sem um hana fer, þá sætti ég mig við það, að margir þdm. hafa lýst því yfir, að þeir álitu hana til bóta. En ég verð að taka undir það með hv. 1. þm. Skagf., að ég skil ekki, hvers vegna ekki má samþykkja brtt., fyrst hún er álitin að vera til bóta, né hvaða ástæða er til þess að ætla, að fylgismenn stj. í Ed. verði henni andvígir.
Ég vænti þess, að hæstv. fjmrh. geti talið flokksmönnum stj. í Ed. trú um það, að þessi brtt. megi ganga fram. Hv. frsm. jafnaðarmanna hefir lýst fylgi þess flokks við brtt. Og ef fulltrúar þessara tveggja flokka beita sér fyrir brtt., þá treysti ég því, að hún verði samþ. í báðum deildum.