01.02.1930
Neðri deild: 11. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (2546)
42. mál, rafmagnsdeild við vélstjórnaskólann
Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég flutti þetta frv. á þingi í fyrra, eftir ósk nokkurra manna og félaga í bænum, en með því að það kom of seint fram, náði það ekki afgreiðslu. Nú ætti ekkert að hamla framgangi þess, enda mælir öll sanngirni og skynsamleg rök með því, að gerðar séu af hálfu ríkisins ráðstafanir til þess að veita almenna fræðslu í rafmagnsfræði. Rafmagnsnotkun hefir vaxið gífurlega á síðustu árum hér á landi, og eru miklar líkur til þess, að hún aukist enn meir á næstu árum. Þeir, sem ætla að leggja þessa iðn fyrir sig, verða nú að leita til annara landa, en slíkt er býsna kostnaðarsamt, vegna ferðakostnaðar og einkum vegna þess, að menn þurfa að læra hið erlenda tungumál til nokkurrar hlítar áður byrjað er á námi. Ég er ekki í minnsta vafa um, að nægileg aðsókn fengist að þessari skóladeild, því árlega bætast að jafnaði 10–12 menn við rafvirkjastéttina í landinu. Almenningur hefir enga tryggingu fyrir, að raflagningar séu vel af hendi leystar, nema skólalærðir menn hafi þær með höndum. Það virðist eðlilegt að hafa þessa kennslu í sambandi við vélstjóraskólann, vegna þess að rafmagnsvélar eru nú að heita má í öllum skipum og vélgæzla stórra rafstöðva á landi krefst mikillar kunnáttu í rafmagnsfræði. Einsætt er, að landið verður að bera kostnaðinn af þessari kennslu, eins og öðrum landsskólum. Um aukakostnaðinn vil ég aðeins vísa til grg., sem gerir ekki ráð fyrir honum meiri en 10 þús. kr., og er það vitanlega miklu minna en ef sett væri á fót sérstök kennslustofnun í þessum greinum.
Ég vil svo að lokum mælast til þess, að frv. verði vísað til hv. menntmn. að lokinni þessari umr.