27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2022 í B-deild Alþingistíðinda. (2566)

45. mál, háskólakennarar

Frsm. meiri hl. (Héðinn Valdimarsson):

Ég sé, að mótstaða hv. þm. V.-Húnv. er byggð á misskilningi. Laun dócenta sem slíkra eiga alls ekki að hækka úr því, sem nú er, heldur verða þeir aðeins eftir ákveðinn tíma prófessorar og fá þess vegna hærri laun síðar. Þetta kemur því ekkert launalögunum við eða yfirleitt kjörum embættismanna, þar sem bæði dócenta- og prófessoralaun verða óbreytt. Getur hv. þm. því ekki verið á móti frv. af þessari ástæðu.