15.02.1930
Efri deild: 26. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2027 í B-deild Alþingistíðinda. (2588)

50. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Ég gat þess við 2. umr. þessa máls, að eftir að n. hafði skilað áliti sínu, bárust henni 2 umsóknir til athugunar milli umr.

Nú hefir n. athugað þessar umsóknir og meðfylgjandi skjöl og leggur til, að þær verði samþ., eins og brtt. á þskj. 111 ber með sér. Fleira hefi ég svo ekki að segja fyrir n. hönd.