12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (26)
1. mál, fjárlög 1931
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Ég hefi ekki miklu að svara fyrir hönd fjvn. gagnvart þeim ummælum, er fram hafa komið frá hv. þm. gegn till., sem hún hefir flutt, og get ég því verið mjög stuttorður.
Hæstv. fjmrh. tók undir þau ummæli, sem ég flutti fyrir hönd nefndarinnar um aðsjálni í fjármálum. Ég get því verið ánægður með ummæli hans hvað það snertir.
Hæstv. ráðh. þótti óþarfur 8. liður 12. gr. Ég hefi gert grein fyrir því, hvers vegna n. flutti þessa hækkunartill., sem er um utanfararstyrk héraðslækna. Landlæknir taldi þá fjármuni, sem til þess voru ætlaðir, of lága upphæð, enda sýnir það sig, að sá styrkur hefir ekki hrokkið að undanförnu. Sumir héraðslæknar, sem hafa farið utan til að afla sér frekari þekkingar, sérstaklega í nýjungum í læknavísindum, hafa ekki getað fengið neinn styrk. N. er algerlega á máli landlæknis í þessu efni. Hún hyggur, að þessum fjármunum sé vel varið.
Þá drap hæstv. fjmrh. á það, að réttara mundi að láta bíða frekari fjárveitingu en stjfrv. gerir ráð fyrir til lagninga nýrra síma. Ég geri nú ráð fyrir því, að mörgum héruðum þyki símalagningar dragast nógu lengi, þótt ekki sé lagt minna fé til nýrra síma en fjvn. gerir ráð fyrir. Svo er annað atriði, sem skiptir engan veginn litlu máli, en það eru fastir starfsmenn við símalagningar. Ef svona lítið yrði lagt til síma þetta ár, mundu margir þeirra verða að fá sér aðra atvinnu. Ef svo væri lagt miklu meira til síma næsta ár, þá þyrfti að fjölga mönnum við það aftur, en þá er óvíst, að hægt sé að fá þessa gömlu starfsmenn aftur. Margir þessara manna hafa verið áratugum saman við þetta starf og vinnst því miklu betur en óvönum mönnum. Það væri því beint fjártjón fyrir landið að sleppa þeim og verða svo að taka óvana menn í staðinn. Ef ekki er hægt að leiða rök að því, að ríkissjóður geti ekki lagt þetta mikið til síma, held ég, að ekki sé hyggilegt að hafa fjárveitinguna miklu minni en fjvn. leggur til, meðal annars af þessum orsökum, sem ég hefi nú minnzt á.
Þá drap hæstv. fjmrh. á brtt. n. við 13. gr. E., um bryggjugerðir og lendingarbætur. Mér virtist hæstv. ráðh. ekki finna að þessari brtt. hvað fjárhæðina snerti, heldur fyrirkomulagið á þessari greiðslu. Hæstv. ráðh. sagði, að tæplega mundi hægt að inna þessa greiðslu af hendi nema með því að draga frá öðrum framkvæmdum, en ég hygg, að ef farið verður eftir till. n., þurfi ekki að koma til þess.
Þá minntist hæstv. ráðh. á, að hyggilegra mundi vera að veita eina upphæð í þessu skyni og veita svo einstökum héruðum styrk af því fé, þegar þau gætu sýnt það og sannað, að þau hefðu fjárhagslega getu til að leggja fram það fé, sem tilskilið er á móti styrknum úr ríkissjóði. En ég vil geta þess, að samkv. till. n. á ekki að veita neinu héraði þennan styrk, nema það færi sönnur á, að það hafi fjárhagslegan styrk til að koma verkinu í framkvæmd. Ríkisstjórnin skal einnig hafa samþ. áætlun, sem gerð hefir verið, og hafa umsjón með verkinu. Eftir þessum till. er það augljóst, að enginn styrkur verður veittur fyrr en vissa er fengin fyrir því, að héraðið hafi fé fyrir hendi til þessara framkvæmda.
Nefndinni fannst því, eftir því sem málavextir stóðu til, að heppilegra væri að fara þessa leið. Hún treysti sér ekki til að gera upp á milli þessara héraða, svo að öruggt væri, að ekkert þeirra væri beitt misrétti. Hitt sá n., að ómögulegt var að veita svo háan styrk sem víða var farið fram á til bryggjugerða og lendingarbóta; það voru allt of mikil útgjöld.
Það, sem helzt kynni að standa þessum framkvæmdum í vegi, væri ef til vill það, að fljótlega þyrfti að inna þær af hendi, en héraðið gæti ekki aflað nægs fjár á svo skömmum tíma. En þegar héraðið á vísan styrk úr ríkissjóði, þá ætti varla að koma til þess, þegar líka er að ræða um þær framkvæmdir, sem héraðinu eru bráðnauðsynlegar.
Hv. þm. N.-Ísf. tók í sama strenginn um þetta. Mér virtist það vera hans skoðun, að ef aðeins ein upphæð væri veitt, mundi það verða auðsótt í þinginu, að ríkissjóður tæki ábyrgð á fé því, sem héruðin eiga að leggja á móti framlaginu úr ríkissjóði, en slíkum ábyrgðum er n. algerlega mótfallin.
Ég held, að ég þurfi ekki að fara fleiri orðum um það, sem kom fram viðvíkjandi till. fjvn.
Skal ég þá með nokkrum orðum víkja að brtt. hv. þdm.
1. brtt. á þskj. 260 er frá fulltrúum jafnaðarmanna hér í hv. deild og fer fram á að fella niður liðinn um skólagjöld. Meiri hl. fjvn. er á móti því, að þessi liður sé felldur niður, ekki af því, að ríkissjóð muni þetta svo miklu, heldur af því, að það sýnist sanngjarnt, að nemendur frá efnuðum heimilum hér borgi skólagjald, alveg eins og menn verða að gera úti um land. Þeim, sem ekki hafa efni á að greiða skólagjaldið, verður endurborgað það, svo að þetta kemur aðeins niður á þeim, sem sæmilega eru stæðir. Held ég, að það sé ekki rétt, sem fram hefir verið haldið, að þá nemendur, sem ætlað er að greiða þetta gjald, muni mikið um það.
2. brtt. á sama þskj, er frá hv. 1. þm. Skagf., um hækkun á gjöldunum til viðurværis í Vífilsstaðahæli. Um þessa brtt. get ég verið mjög fáorður. Fjvn. vissi ekki, í hverju þessi hækkun átti að vera fólgin, fyrr en hv. þm. gaf upplýsingar um það áðan. Hafa nefndarmenn óbundin atkv. um þessa brtt.
3. brtt. á þskj. 260 er frá hv. þm. Dal. og er um að hækka fjárveitinguna til Vesturlandsvegar úr 40 þús. í 70 þús. kr. Ég get vel búizt við, að það sé rétt hjá hv. þm., að héraðsbúum þyki einkar æskilegt að fá þennan veg lagðan á svo skömmum tíma, sem ráð er fyrir gert með brtt. En þess er að minnast, að mörg héruð hafa orðið að bíða lengri tíma eftir samgöngubótum heldur en þetta, þótt Vesturlandsvegur yrði 3–4 ár á leiðinni ennþá. Sumir vegarspottar, sem þó hafa ekki kostað nema fáar þús. króna, hafa ekki aðeins þurft að bíða nokkur ár, heldur áratugi. — Mér finnst einnig, að 35 þús. kr., sem fjvn. vill leggja til þessa vegar, sé sómasamleg upphæð á einu ári. Því að þess ber og að gæta, að landsmönnum í heild er gerður vafasamur greiði með því að veita mjög háar upphæðir í einu til framkvæmda. Vegna hinna miklu opinberu framkvæmda síðastl. sumar fór svo, að fólk vantaði til framleiðslunnar, einkum í sveitum. Þetta finnst mér mjög athugavert, og það eru a. m. k. ekki gerandi gyllingar til þess að fá fólkið frá aðalatvinnuvegunum í góðærinu. Fjvn. leggur því, að öllu athuguðu, eindregið á móti þessari brtt. hv. þm. Dal. — Út af bréfi því, sem hv. þm. talaði um, að hæstv. atvmrh. hefði borizt um að flýta þessum vegi, vil ég segja, að mér dettur ekki í hug að rengja frásögn hv. þm. Dal., en ég hlýt að láta í ljós undrun mína yfir slíkum skrifum. Var talað um, að meiri hluti vegarins yrði gerður í sumar, en í gildandi fjárlögum eru veittar til hans 20 þús. kr. Áætlaður kostnaður er hinsvegar 90 þús. kr., svo að fjárveitingin nær ekki langt. Vona ég, að ekki verði horfið að því ráði að eyða svo miklu umfram fjárveitinguna, og tel ég það enda alls ekki heimilt. Held ég, að þetta hljóti að vera eitthvað málum blandað.
4. brtt., sem hv. þm. V.-Húnv. flytur, er í tveim liðum. Hinn fyrri er um 15 þús. kr. til Húnavatnssýsluvegar, en hinn síðari um að fella niður fjárveitinguna til Vatnsskarðsvegar. Sagði hv. þm., að Húnavatnssýsluvegur hefði lengi orðið útundan, þótt langt væri síðan menn fóru að tala um að leggja hann, enda væru á þessum slóðum hinar verstu torfærur. Einnig hafði hv. þm. það eftir vegamálastjóra, að ef eitthvað ætti að taka af fjárveitingunni til heiðavega, þá teldi hann minnst saka að fella niður Vatnsskarðsveg. En vegamálastjóri lagði þó ekki með þessu. — Ég hefi áður lýst þeirri skoðun minni, að ég tel meiri nauðsyn að bæta samgöngur í byggðum en að kosta til fjallvega og heiðavega, sem ekki þarf til að flytja nauðsynjar að héraðinu. Fjvn. hefir óbundin atkv. um þessa brtt.
5. brtt. er frá báðum þm. Rang. og hv. 3. þm. Reykv. og fer fram á 12 þús. kr. tillag til Fjallabaksvegar í Rangárvallasýslu. Hv. 1. flm. (EJ) gat þess, að hér væri um sýsluveg að ræða. En nú er það venjan að taka ekki upp í fjárlög sérstakar fjárveitingar til einstakra sýsluvega, heldur að veita eina upphæð, sem vegamálastjóri hefir síðan úthlutað milli sýslufélaganna. Hv. þm. lýsti því, hve vegur þessi væri slæmur og erfiður í viðhaldi og hver nauðsyn væri orðin að taka hann í þjóðvegatölu. Efa ég ekki, að hann hafi þarna haft mikið til síns máls. Sagði hann, að till. um þetta lægi nú fyrir hv. samgmn. Út af þessu vil ég beina því til hv . þm. (EJ), að hann láti ekki á sér standa að herða á hv. samgmn. að skila áliti um breytingar á vegalögunum sent fyrst. Það er óneitanlega hart, hvernig þessi hv. nefnd leggst á málin þing eftir þing. Hvert þingið eftir annað er vegalagabreytingunum vísað til hennar í þingbyrjun, en hún kemur aldrei með nál. fyrr en í þinglokin. Ef þessu á að halda áfram, er ekki annað sýnt en að hv. deild verði að fara að taka málið af nefndinni og ræða það án þess að fá nokkurt nál. — En svo að ég snúi mér að afstöðu fjvn. til þessarar brtt., þá treystir meiri hluti n. sér ekki til að mæla með henni, vegna venju þeirrar, er til þessa hefir verið fylgt um framlög til sýsluvega og ég gat um áðan.
6. brtt. hleyp ég yfir að sinni, þar sem ég er sjálfur flm. hennar.
7. brtt. er flutt af hv. þm. Borgf. og er um 4.000 kr. styrk til Þorsteins Þorsteinssonar á Húsafelli, til að reisa þar gistihús. Hv. flm. drap á ástæðurnar fyrir þessari styrkbeiðni: lítilfjörleg húsakynni og stórlega aukin umferð, sérstaklega síðan bílfært varð um Kaldadal til Þingvalla og Reykjavíkur. Taldi hann mikla nauðsyn að koma þarna upp góðum húsakynnum, svo að húsbændurnir gætu tekið eins vel á móti gestum og skap þeirra stendur til. Efa ég ekki, að hv. þm. hefir skýrt rétt frá í öllum atriðum og að þessi beiðni hefir við mikla sanngirni að styðjast. En hv. þm. fór að nefna til samanburðar styrk þann, er bóndanum á Ásólfsstöðum var veittur í svipuðum tilgangi. En þótt ég viðurkenni sanngirni brtt. hv. þm. Borgf., verð ég að segja, að öðruvísi stóð á um Ásólfsstaði. Nauðsynin var miklu meiri þar, sakir þess, að umferðin þar er margföld á við Húsafell. — Að endingu vil ég aðeins minna hv. þdm. á það í sambandi við þessa brtt., að verði hún samþ., verður óhjákvæmilegt að sinna mörgum samskonar beiðnum frá öðrum stöðum, þar sem eins er ástatt. Annars hefir fjvn. óbundin atkv. um þessa brtt.
Næsta brtt. á þessu sama þskj., hin 8., er frá hv. þm. N.-Ísf. og fer fram á að hækka liðinn til nýrra símalagninga um 20 þús. kr. og til vara um 12.500 kr. Fylgja aths. um það, hve þessu fé skuli varið. Fjvn. leggur á móti bæði aðaltill. og varatill. hv. þm. Í þeirri upptalningu, sem landssímastjóri lét í té, er ekki getið um nýjar línur á þessum stöðum. Hv. þm. hafði raunar eftir landssímastjóra, að það hefði verið af vangá, að þessar línur urðu ekki með, en um það hafa fjvn. ekki komið nein boð frá honum. Það hefir nú lengi verið venja, að Alþingi hefir lítil afskipti haft af því, hvaða símalínur lagðar eru hverju sinni, en látið hæstv. landsstj. og landssímastjóra ráða mestu um það. Sér fjvn. ekki ástæðu til að brjóta þá venju um þessar símalinur.
9. brtt. á þskj. 260, frá hv. þm. Ísaf. o. fl., er um 10 þús. kr. til að reisa lofttalstöðvar á Ísafirði og Horni. Ég minnist ekki, að neinar upplýsingar um þetta hafi legið fyrir fjvn., og hefir hún því ekki getað athugað það. Hv. þm. gat um það, hversu veðurspár hefðu viljað bregðast, og var svo að skilja á honum, sem þessar stöðvar gætu orðið til að bæta eitthvað úr því, ef þeim yrði komið upp. Um þetta skal ég ekkert segja. En þegar nýmæli eins og þetta er á ferðinni, finnst mér ekki mega minna vera en að fjvn. séu gefnar upplýsingar um málið. Það er auðvitað gott til þess að hugsa, ef lofttalstöðvarnar geta komið að öllum þeim notum, sem hv. þm. Ísaf. talaði um. En ég er nú ekki alveg viss um, að notin verði eins mikil og sumir gera sér í hugarlund. Skilst mér, að ef þessar stöðvar ættu að geta gefið fullkomnar upplýsingar, þyrftu þær að standa í stöðugu sambandi um veðurfregnir frá skipum bæði norður og vestur í hafi. Annars skal ég ekki fjölyrða um þetta mál. Orð hv. þm. Ísaf. hygg ég að sé það eina, sem fjvn. hefir heyrt um þetta mál á Alþingi. Hv. þm. vitnaði m. a. í álit Jóns Eyþórssonar veðurfræðings máli sínu til stuðnings. Ég geri ráð fyrir, að hann hafi einhverja trú á, að þetta megi koma að liði, og það er ekki nema eðlilegt, að hann fylgi hverri nýbreytni, sem getur orðið stofnun hans til góða. — Hv. 1. þm. S.-M. tók undir um þörfina á lofttalstöðvum á Vestfjörðum og bætti því við, að samskonar stöðvar þyrfti að reisa á Austurlandi, t. d. Papey. Þótt einhver rök megi sjálfsagt finna fyrir þeirri þörf, þá hygg ég, að sú stöð eigi þó miklu minni rétt á sér en Vestfjarðastöðvarnar.
Þá er 10. brtt., sem fram er borin af hv. 2. þm. G.-K. og fer fram á styrk til bryggjugerðar í Grindavík. Hv. þm. hefir átt tal um þessa bryggjugerð við nefndina, og er honum það kunnugt, að hún gat ekki gert till. um þessa fjárveitingu sakir þess, að ekki hafði komið álit hreppsbúa um það, hvort þeir yfirleitt kærðu sig um að fá þessa bryggju og á þessum stað. Nú hefir hv. þm. aflað sér álits einhverra manna þarna sunnan að, en það hefir ekki komið fyrir fjvn. Efa ég í sjálfu sér ekki, að hv. þm. hafi farið rétt með þetta, en það sýnist vera það minnsta, sem hægt er að heimta, að fjvn. fái öll gögn í hendur áður en hún á að mæla með brtt. um stór fjárútlát. N. hefir að sjálfsögðu ekki haft neina ástæðu til að láta þessa einu bryggju mæta afgangi, en eins og ég sagði, gátum við ekki borið fram brtt. um fjárveitingu til hennar, meðan við vissum ekki einu sinni, hvort hreppsbúar óskuðu eftir henni. Frá öllum öðrum hafa borizt skriflegar óskir, og hina sömu kröfu verður að gera hér, ef fjvn. á að geta fylgt brtt. hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh: Lætur hv. fjvn. sér nægja símskeyti frá hreppsnefndinni?). Ég býst við því, ef það er sæmilega greinilegt. Annars eru svo tíðar samgöngur hér suður með sjó, að það ætti að mega takast að koma bréfi frá Grindavík til Reykjavíkur. En þar sem þessar óskir eru ekki fram komnar, vildi ég helzt, að hv. þm. tæki brtt. aftur til 3. umr. Er það ekki af því, að ég vilji bregða fæti fyrir málið, heldur til þess, að það fái betri undirbúning. Ég viðurkenni fyllilega, að þessi bryggjugerð á rétt á sér.
Þá er aðeins eftir ein brtt., frá hv. þm. Barð. Hún kom svo seint fram, að fjvn. hefir ekki haft tækifæri til að ræða hana. Skal ég því ekkert um hana segja að svo stöddu.