12.03.1930
Efri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2032 í B-deild Alþingistíðinda. (2620)

248. mál, embættisveiting Jóns Emil Ólafssonar

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Með lögum frá 1911 er þeim kandídötum, sem tekið hafa embættispróf erlendis, bannað að fá embætti hér á landi 5 árum eftir að háskólinn hefir tekið til starfa. Þeir menn íslenzkir, sem tekið hafa erlendis embættispróf seinna, geta ekki komið til greina við embættaveitingar hér á landi, nema með sérstökum lögum. Ég veit til, að einusinni áður hefir verið veittur slíkur réttur, Sveinbirni Högnasyni á Breiðabólsstað, og var eins ástatt um hann og mann þann, er ræðir um á þskj. 248.

Allshn. Ed. hefir borizt erindi um þetta frá Jóni Ólafssyni lögfræðingi. Fylgja þessu erindi hans ýms skjöl og vottorð, og hefir n. kynnt sér þau, þar á meðal skipunarbréf Jóns Ólafssonar sem „Sekretær í Kbh. Magistrat“, meðmæli skrifstofustjóra í „Magistraten“, meðmæli 2 málafærslumanna í Kbh., meðmæli Jóns Ásbjörnssonar og Sveinbjarnar Jónssonar, meðmæli Guðm. Ólafssonar formanns Málaflutningsmannafélags Íslands, og svo að lokum umsögn lagadeildar háskólans, og hún er því heldur hlynnt, að þessi undanþága frá lögum verði veitt. Ætla ég að leyfa mér að lesa upp það, sem lagadeildin segir um þetta, enda verður það sennilega þyngst á metunum, með leyfi hæstv. forseta:

„Með það fyrir augum, að umsækjandinn hefir verið hér búsettur nál. 4 árum og haft með höndum lögfræðisstörf undir handleiðslu ágætra lagamanna, telur deildin verjandi að veita honum umbeðin réttindi, en vill jafnframt láta þess getið, að einungis þegar mjög sérstaklega stendur á, getur verið viðlit að veita slíkar undanþágur“.

N. hefir sem sagt tekið þetta erindi til greina og flutt það í frv.formi og vill mæla með því, að hv. d. samþykki það.

Ég álít ekki, að frv. þurfi að fara til n. aftur. Það er svo einfalt mál, en vænti þess, að það geti gengið áfram viðstöðu- og mótstöðulítið.