12.04.1930
Efri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

1. mál, fjárlög 1931

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég á hér örfáar brtt., sem ég vildi gera grein fyrir. Hv. 5. landsk. hefir flutt brtt. um 3.000 kr. styrk handa Kristni Björnssyni lækni til lokanáms í París. Maður þessi hefir verið erlendis nokkur ár og stundað skurðlækningar sem sérgrein. Læknar hafa álit á honum sem efnilegum skurðlækni, þótt hann sé að vísu lítt reyndur enn. Nú þykir mér nokkur hætta á, að brtt. sú, er hv. 5. landsk. flytur, kunni að falla, vegna þess hve þar er farið fram á háa fjárveitingu. Ég hefi nú flutt varatill. um 1.500 kr. handa þessum manni, og vona ég, að hún verði samþ., ef hin verður felld.

Um Guðmund Bárðarson er það að segja, að hann er sem kunnugt er einn af okkar allra beztu vísindannönnum. Hann hefir undanfarið viðað að sér ýmsum jarðfræðilegum minjum, en ekki unnizt tími til að vinna úr þeim, sökum kennslustarfa sinna. Nú er ætlazt til, að honum verði veitt tóm til þess, og fer brtt. mín fram á, að veitt verði fé til að launa manni, sem kenni grein hans í menntaskólanum á meðan.

Þá hefi ég flutt brtt. um 300 kr. í 18. gr. til Sigríðar Narfadóttur á Gullberastöðum. Hún hefir nú í 30 ár gegnt ljósmóðurstörfum með hinum bezta orðstír og er nú komin um sjötugt. Þetta er alkunn sóma- og myndarkona, sem á þennan styrk fyllilega skilið fyrir vel unnið dagsverk.

Á þskj. 511 hefi ég flutt brtt. um, að Jakob Thorarensen skáld verði hækkaður úr 1.000 kr. upp í 1.200 kr. Er það í samræmi við það, að Stefán frá Hvítadal hefir hækkað upp í 1.200 kr. Hefir verið siður, að þessir menn væru jafnir, enda eru þeir frændur.

Þá hafði ég flutt till. um, að Guðm. Kamban yrði veittar 2400 kr. í 15. gr., þar eð mér þótti þessi höfundur fullungur til að vera í 18. gr. En þar sem d. virðist hafa fallizt á, að svo skuli vera, tek ég þá brtt. aftur.

Þá vildi ég segja nokkur orð um flugmálin. Ég vildi aðeins, að greidd væru atkv. um það á Alþingi, hvort það vill leggja út á þá braut að taka flugmálin að sér sem fastan lið í samgöngukerfi landsins.

Menn taki eftir því, að þetta er E-liðurinn í samgöngumálunum; A-liðurinn er póstmál, B-liðurinn vegamál, C-liðurinn samgöngur á sjó, D-liður vita- og hafnargerðir, og E-liðurinn flugmál. Það er alveg rétt byggt í frv. að slá því föstu, að hér sé landið að taka að sér nýjan lið í samgöngumálakerfinu.

Nú vil ég ekki neita því, að mjög sé æskilegt fyrir okkur, að flugið komi í framtíðinni til greina sem samgöngubót, og það er vegna þess, hve landið er stórt og fólkið fátt. En það er ekki hægt að segja, að flugið sé enn á því stigi, að það geti komið Íslendingum að verulegum notum. Við verðum í þessu máli eins og t. d. í eðlisfræði og efnafræði og ýmsum vísindum, sem byggjast á kostnaðarsömum rannsóknum, að bíða þangað til niðurstöðurnar eru við okkar hæfi. Við höfum ekki gagn af fluginu, fyrr en stórþjóðirnar eru búnar að koma því á það stig, að það sé við okkar hæfi, án þess að við þurfum að vera tilraunadýr.

Það er einn liður í starfsemi Flugfélagsins, síldarleitin, sem er áreiðanlega rétt og Alþingi hefir viðurkennt, með því að tryggja henni vissar tekjur af síldarframleiðslunni. Þetta borgar sig og þar er flugið eins og nú háttar á sinni réttu leið. En yfirleitt hefir það enga verulega þýðingu fyrir okkur, hvort við höfum 1 eða 2 flugvélar til mannflutninga eða póstflutninga, eins og nú standa sakir, því að þessi flutningur verður aðallega að gerast á sjó eða eftir vegunum. Þó að við t. d. fáum flugpóst héðan, yfir Akureyri og til Seyðisfjarðar, þá hefir það ósköp litla þýðingu, meðan samgöngurnar eru annars í sama horfi og fyrr. Hvað skiptir það fólk uppi í Hróarstungu eða Jökuldal, þó að blaðpóstur komi tvisvar í viku til Seyðisfjarðar, ef hann kemur ekki nema mánaðarlega upp á Hérað? Það er ekki til neins að ætla að þrýsta einni grein samgangnanna fram úr öllum hinum. Ég álít því, að það sé í rauninni eðlilegt og gott að styrkja flugvélar til síldarleitar, við það fæst reynsla og framleiðslunni er jafnframt unnið gagn, en um hitt, hvað mikið sé gerandi fyrir, að við séum að gera tilraunir, er það að segja, að þar verðum við að bíða eftir öðrum.

Ég geri að vísu hiklaust ráð fyrir, að till. mínar verði felldar, en ég tel rétt á þessu stigi málsins að greina milli þess, sem er við okkar hæfi, og hins, sem er meira á undan tímanum, miðað við okkar kringumstæður.

Út af brtt. á þskj. 407, sem hv. 3. landsk. flytur, ætla ég að gefa nokkrar skýringar. Hún er við 22. gr., VII. liður:

„Að greiða víxilskuldir með áföllnum vöxtum vegna byggingar húss þess, er nú hefir verið tekið til afnota fyrir Vinnuhæli á Eyrarbakka, með allt að 8600 kr.“

Ég hefði nú haldið, að hv. 3. landsk. væri meiri verslunarmaður en það, að flytja slíka till., því þannig stendur á þessu máli, að þeir menn, sem ætluðu að byggja spítala á Eyrarbakka og gerðu það með lítilli forsjá, byggðu húsið miklu stærra en svo, að þeir hefðu nokkur ráð á að fullgera það. Svo var ýtt á stj., sem þá var, og fengið töluvert meira úr ríkissjóði heldur en samsvaraði framlagi þaðan. En svo stanzaði allt, þegar búið var að leggja í það 120 þús. kr. Það var reynt að fá sýsluna til að taka það að sér, síðan kaþólska trúboðið, en ekkert dugði. Að síðustu varð fyrirtækið gjaldþrota. Landsbankinn hafði veð í húsinu fyrir 20 þús. kr., og hann tekur svo húsið upp í það, sem hann átti hjá skuldunautunum. En þeir, sem þarna töpuðu, voru annarsvegar landið, sem búið var að leggja í þetta marga tugi þúsunda, og svo þeir menn á Eyrarbakka, sem lagt höfðu í þetta.

Með gjaldþrotinu var svo saga spítalamálsins alveg búin, ekki aðeins í lagalegum skilningi, heldur og siðferðislega. Því að landið hafði verið herfilega gabbað, með því að það var lokkað til þess að leggja fram fé að því áskildu, að forgöngumennirnir legðu á móti, sem þeir ekki gátu. Svo kemur landsstj. og kaupir af Landsbankanum hússkrokkinn fyrir það, sem Landsbankinn átti í honum, og ekki meira. Ég tók þá þegar skýrt fram, að mér dytti ekki í hug að semja um kaupin á húsinu, nema það fengist fyrir það, sem Landsbankinn ætti hjá því. Bankinn seldi það svo alveg kvaðalaust. Síðan hefir verið gert við töluverðan part af húsinu og því breytt í fangelsi og vinnuhæli.

Þarna voru tveir aðiljar, sem höfðu tapað, annarsvegar félagið og hinsvegar landssjóður. Landssjóður tekur húsið út úr neyð, til þess að fá eitthvað fyrir sín miklu útlát. Hinn aðilinn hefði eins getað gert það. Ef fél. hefði tekið það fyrir 28 þús. kr., sem það skuldaði Landsbankanum, þá hefði landið ekkert sagt við því. En ég vil alvarlega vara hv. d. við því að samþ. þessa till. hv. 3. landsk., því að hún á hvorki lagalegan og enn síður siðferðislegan rétt á sér. Þessir menn byrjuðu á fyrirtækinu í ráðleysu og lokkuðu landssjóðinn til útgjalda, þótt því hafi verið snúið nokkuð til góðs aftur, með því að taka það til annara nota. En mér hefði aldrei dottið í hug að byggja fangelsi á Eyrarbakka, ef landið hefði ekki átt þessa eign þar, sem menn vildu reyna að bjarga með einhverju móti. Ef ekki hefði verið þessi aðstaða með húsið, hefði ég heldur viljað láta byggja fangelsi eða vinnuhæli á einhverri hverajörð, t. d. austanfjalls.

Þá kem ég að till., sem ég flyt við 22. gr., að stj. sé heimilað að láta reisa vinnu- og hressingarhæli fyrir 30 berklaveika menn að Reykjum í Ölfusi, og taka til þess lán, allt að 50 þús. kr. Ég ætla að útskýra þetta mál lítillega, af því að það er nýtt, og þau gögn, sem ég hefi þar fram að færa, hafa ekki verið lögð fram í þinginu.

Í fyrra heimilaði Alþingi stj. að kaupa 5 jarðir í Ölfusi. Það var viðurkennt, að þar væri geysimikil orka og væri æskilegt, að landið réði yfir þessu eins og t. d. fossunum, en að því leyti, sem nánara var tiltekið af mér um framtíðarnotkun jarðanna, var það aðallega í sambandi við spítala og lækningar.

Í sumar sem leið fekk ég Þorkel Þorkelsson eðlisfræðing til þess að rannsaka nokkuð þessa eign landsins. Hann hefir að vísu ekki lokið þeirri rannsókn, en hann telur, að alls séu þar um 100 hverir, og af þeim hefir fundizt radíum í tveimur, og það er einmitt nærri bænum á Reykjum, þar sem bezt er fallið til byggingar. Hann hefir ennfremur reiknað út, að það hitamagn, sem á hverjum sólarhring kemur nothæft úr þessum 100 hverum, samsvari 50 tonnum af kolum. Hann reiknar þá með hálfri orku. Öll orkan, ásamt gufu, er þá nálægt 100 tonnum.

Þetta er geysimikill auður og tekur langan tíma, þangað til hann er fullnotaður. En það, sem alltaf hefir vakað fyrir mér sem augnabliksþörf fyrir landið, var, hvort ekki væri hægt að nota þessa eign til bjargar í berklaveikismálunum. Þar átti ég við tvennskonar skilning. Annarsvegar að kynni að vera von um, að sjúklingum batnaði betur á þessum stað heldur en á köldum stöðum, en þó sérstaklega, að unnt væri að reka þar spítala ódýrara en nokkursstaðar annarsstaðar á landinu.

Um fyrri liðinn þori ég ekki að segja mikið, því aðallega er það læknisfræðilegt atriði, hvort hverastaðir með gufu, leðju og radíum séu álitlegir til þess að lækna berklasjúklinga. Ég mun ekki fara langt út í þetta, og það því fremur, sem þeir læknar, sem helzt hafa um það hugsað, eru að vissu leyti eins og leikmenn um þetta, því að fræðilegar tilraunir hafa ekki verið gerðar um það hér á landi. En landlæknir, sem hefir manna mesta almenna reynslu í þessum efnum, álítur, að þetta sé mjög líklegt. Síðar mun ég lesa upp það, sem hann hefir skrifað um þetta.

Hitt er aftur alkunna, að í gamla daga, áður en hér voru nokkrir læknar eða berklahæli, þá leitaði heilsulaust fólk til hverastaða, og það voru byggðir húskofar, þar sem fólkið dvaldi og þótti sér batna. T. d. hefir gamalt fólk í Mývatnssveit sagt mér, að brjóstveikt fólk hafi oft farið á þessa staði. Gamlar sagnir eru og um, að lasið fólk hafi komið að Baðstofuhver á Reykjum í Ölfusi, til þess að láta sér batna fyrir brjósti af gufu.

Ég fullyrði ekkert um þetta. En ég bæti aðeins við, að sá maður, sem seldi Reyki, Gísli Björnsson, hefir byggt þarna sumarskála, og þar náði dóttir hans góðri heilsu frá því að vera vanheil af brjóstveiki. Kunningjakonur dóttur hans höfðu líka verið þar við brjóstveiki og þótt sér batna. En þetta er aðeins trú fyrir mér, og ég legg ekki meira upp úr því en annari trú.

En það er fjárhagslega hliðin, sem er meira en trú, og það er vegna hennar, að ég leyfi mér að bera fram þessa till. um að gerð sé tilraun á Reykjum til að koma upp skýli fyrir vinnufærustu sjúklinga hér. Ég ætla nú að lesa upp úr bréfi landlæknis, með leyfi hæstv. forseta:

„Í öðrum löndum, þar sem ég hefi komið, er alstaðar talað um það, að iðjuleysið í heilsuhælunum dragi dáð og dug úr ungu fólki, sem er á batavegi, valdi spillingu. Hvergi mun þetta þó eins átakanlegt og hér á landi, því annarsstaðar er meðaldvalartíminn um sex mánuðir, en hér um eitt ár. Þetta kemur til af tvennu. Annarsvegar er atvinna manna hér yfirleitt erfið, sjómennska eða sveitavinna, miklu minna hér um hæga vinnu en í öðrum löndum. Þess vegna erfiðara að losna við sjúklingana aftur, ef þeir eru ekki albata, og hættara við, að þeim slái niður, þó þeir fari fullfrískir, af því viðbrigðin verða svo mikil frá fullkomnu iðjuleysi yfir í stritvinnu. Hinsvegar er á það að líta, að okkur vantar enn almenna sjúkratryggingu og öryrkjatryggingu, og afleiðingin sú, að berklafólk, sem er í sjúkrahúsum, hálffrískt, hálfvinnufært — það fæst ekki burt úr sjúkrahúsunum, það dvelur þar oft og tíðum miklu lengur en skyldi, til stórkostnaðar fyrir þjóðfélagið.

Mér er óhætt að fullyrða, að hér á landi eru að jafnaði í hælum og sjúkrahúsum á annað hundrað berklamanneskjur, sem ekki þyrftu og ekki ættu þar að vera, og er það hlutfallslega ótvírætt miklu meira en í nokkru öðru landi“.

Þetta er þá fyrsta athugun landlæknis um þetta mál. Síðan lýsir hann ýmsum tilraunum í næstu löndum, sem gerðar hafa verið um slík vinnuhæli. Ég fer ekki út í það, af því að það er of langt frá því, sem hér er til umr. Síðan heldur landlæknir áfram:

„Nú vil ég vekja athygli á því, að hér á landi er fyllsta ástæða til að reyna á einhvern hátt að girða fyrir, að fjöldi af vinnufæru berklafólki lifi í iðjuleysi í sjúkrahúsum landsins á þjóðar kostnað. Verkefnið er afar vandasamt hér sem í öðrum löndum.

En mér virðist líka, sem vert væri að reyna að koma upp berklaþorpi í smáum stíl, því að ríkið á jörð, sem ótvírætt er framúrskarandi hentug til þess konar afnota. Ég á við Reyki í Ölfusi. Þar er landrými mikið, ótal hverir og laugar, næg vatnsorka, auðvelt að koma upp litlu raforkuveri. Það er og víst, að gufan úr sumum hverunum er radíumkennd. Sumir ætla, að hveragufa sé einkar holl fyrir brjóstveikt fólk. Það verð ég að telja órannsakað mál, en sannarlega þess vert, að það sé rannsakað.

Það, sem ég hefi í huga, er þetta, að fá reistan á Reykjum skála, fyrir svo sem 32 berklaveika karlmenn. Húsið má vera af mjög einfaldri gerð, í líkingu við þau hús fyrir einhleypt fólk, sem ég sá í Papworth Hall á Englandi í fyrra. Ég hugsa mér 16 tveggjamannaherbergi, breiðan gang, eldhús, rúmgott búr, baðherbergi, vatnssalerni. Ég hefi rætt þetta mál við húsameistara, og ætlar hann, að reisa megi þess konar hús fyrir um 50.000 kr.

Nú verður spurt: Hvaða vinnu getur berklaveikt fólk fengið á Reykjum, er sé við þess hæfi? Ég tel mjög góðar horfur á því. Jörðin er prýðilega vel fallin til alls konar garðyrkju, en það er sú útivinna, sem bezt er við hæfi berklafólks. Þar mætti og hafa stór vermihús, sem ættu að geta gefið mjög góðan arð. Þar mætti, hygg ég, einnig reka hænsnarækt í stórum stíl með góðum arði. Væri svo til vinnuskáli, þar sem stunduð yrði ýms innivinna, netjagerð, ýmsar smíðar o. s. frv., þá virðist augljóst, að nóg myndi verða um hentuga vinnu bæði vetur og sumar.

Sjúklingarnir eiga að fá sanngjarnt kaup fyrir það, sem þeir vinna, og þeir eiga þá líka að borga með sér. En ég geri ráð fyrir, að meðgjöfin þyrfti ekki að vera há. Rekstrarkostnaður yrði miklu minni en í heilsuhælunum, vonandi ekki meiri en 2½ kr. á dag, kannske enn minni.

Ég lít á þetta sem tilraun. Ég vil ekki neita því, að hún geti að einhverju leyti misheppnast. En eitthvað verðum við að reyna til að komast úr þeim kostnaðarógöngum, sem við nú erum í með berklafólkið.

Reykjavík 11. apríl 1930.

Virðingarfyllst

G. Björnson“.

Af þessu bréfi landlæknis getur hv. d. séð aðalatriðin í þessu máli. Það er öllum kunnugt, að landið borgar nú á hverju ári fram undir 1 milljón kr. í berklakostnað, og þótt gerð sé lítilsháttar tilraun, sem hefir valdið deilum við ýms sjúkrahús landsins, til að reyna að spara, hefir ekki tekizt að draga úr kostnaðinum, heldur aðeins að hindra nokkuð, að hann vaxi eins ört og annars hefði orðið. Kostnaður við berklasjúklinga, sem landið hefir orðið að borga með, hefir farið upp í 10 kr. á dag, en er á Vífilsstöðum tæpar 5 kr., á Kristnesi 4 kr., og ýmis minni sjúkrahús sárkvarta undan því að hafa sjúklinga fyrir 5 krónur á dag.

Það er auðvitað gott, að þjóðfélagið reyni að verjast þessum gífurlega sjúkdómi, og það hefir lagt á sig miklar byrðar til þess. En hvergi sést, að berklaveikin sé farin að minnka. Það má segja, að hún hefði orðið meiri, ef fólkið hefði ekki verið einangrað. En kostnaðurinn vex sem sagt hröðum skrefum. Og eitt er óþægilegt í þessum efnum, og það er, að öll venjuleg sjúkrahús fyllast af berklasjúklingum. Það má heita, að öll sjúkrahús í landinu séu orðin undirlögð fyrir berklasjúklinga, og þau telja sér það gróðaveg, eins og sjá má af grein í Íslendingi eftir Steingrím lækni Matthíasson, sem játar, að sjúkrahúsið á Akureyri hafi grætt mikið á undanförnum árum, en hann heldur, að það gangi ekki sem bezt eftir að dagborgunin er komin niður í 5 kr. En þegar aðgætt er, að 5 kr. á dag gera 1.500–2.000 kr. á ári, og þegar maður athugar hinn mikla fjölda sjúklinga, þá verð ég að segja, að þegar við erum dag eftir dag að deila um, hvort þessi listamaðurinn eða hinn eigi að fá 500 eða 600 eða 1.000 kr., þá væri það undarleg léttúð hjá þjóðinni að hugsa ekki um, hvað það þýðir að taka upp á sína arma hundruð manna að meðaltali í eitt ár og suma lengur.

Ég hefi álitið, að ómögulegt væri að beita berklavarnalögunum með því að kasta berklaveiku fólki út á gaddinn. Það mundi þingið aldrei vilja gera. En að yfirfylla öll sjúkrahús á dýrustu og þéttbyggðustu stöðum er óskynsamlegt, bæði fjárhagslega og heilsufræðilega. En ég get ennfremur sagt, að þær tilraunir, sem núverandi stj., þingið og undanfarandi stj. hafa gert til þess að koma nýju lagi á berklavarnarkostnaðinn, hafa ekki náð neinum verulegum árangri. Enginn, sem ég hefi talað við um þetta mál, hefir séð aðra leið út úr þessum ógöngum, sem landlæknir kallar svo, en að láta sjúklingana vinna undir eftirliti læknis á ódýrum stöðum. Hvað svo sem hv. d. kann að segja um þessa till., þá er ekki enn nein von að geta greitt úr berklaveikismálinu, nema með því að láta þá berklaveiku vera á ódýrari stöðum en Vífilsst.- og Kristneshæli, og þar væru þeir látnir vinna eftir því sem heilsan leyfði.

Í viðbót við það, sem landlæknir hefir sagt, ætla ég að benda á það, að tilætlunin er að byrja með eitthvað á annað hundrað vinnufærra manna, það er fólk, sem er vel rólfært og maður getur gert sér vonir um að geti unnið úti við eða inni á verkstofu.

Þá hefir Gunnlaugur Claessen læknir sagt mér, að hann hafi nýlega komið á nýtízku berklahæli í Sviss. Var það einskonar vinnustofa, kölluð Klinikmanufaktur (heilsuhæli, þar sem er unnið). Þar var lítill rafmagnsmótor við hvert rúm. Eins og kunnugt er, er mikil úrsmíði í Sviss. Sjúklingarnir voru nú látnir vinna við rafmagnsmótorinn, og það jafnvel þó að þeir væru svo veikir, að þeir yrðu að liggja á grúfu og styðjast fram á olbogana. Þessir menn gátu unnið fyrir sér og jafnvel meira sumir.

Þetta var aðeins tilraunahæli, er sýnir, hvernig aðrar þjóðir leitast við að leysa þetta spursmál, en það verður með því að láta þá sjúklinga vinna, sem til þess eru færir.

Mér dettur náttúrlega ekki í hug að gera neina breytingu á heilsuhælunum á Vífilsstöðum og Kristnesi fyrir þetta. Þar eru sjúklingarnir flestir mikið veikir, svo að sumir eru rúmfastir eða aðeins rólfærir, svo það er engin sanngirni, að þeir vinni verulega. En á hælunum í Kópavogi og Hafnarfirði eru á annað hundrað sjúklingar, sem mætti láta vinna nú, ef skilyrði væru til þess. Fyrir þetta fólk borgar ríkið og sýslufélög að minnsta kosti 5 kr. daglega fyrir hvern einstakling.

Í bréfi landlæknis lýsir hann hættunni fyrir fólkið sjálft vegna þeirra snöggu viðbrigða að verða að fara út í hið harða starfslíf, sem er hér á Íslandi. Það, sem vakir fyrir mér og landlækni, er að undirbúa hér þessa tilraunastarfsemi. Við viljum reyna lítinn sumarskála, fyrir svo sem 30 karlmenn, við einhvern hver. Við ætlumst til, að hann verði aðeins ein hæð með gluggum móti suðri og lágt undir þak. Það verður ódýrast að hafa það timburhús, enda ætti það að vera nóg, þar sem hitinn er nægur.

Skálinn yfir 30 menn mun kosta um 50 þús. kr. Verða það rúml. 1.600 kr. á rúm. Þar sem hitinn er ekki við hendina kostar rúmið á nýtízku spítölum venjulega rúmlega 10 þús. kr. Hælið á Kristnesi, sem er vel vandað, kostaði t. d. um ½ millj., og er ekki miðað við nema 50 sjúklinga, þótt stundum séu þar fleiri. Það væri því afskaplegur munur, ef hægt væri að koma þessum kostnaði niður í 1.200–1.500 kr. á rúm.

Læknirinn á Ísafirði er líka óánægður með 5 kr. á dag miðað við rentur og afborganir af dýru húsi, þar sem hvert rúm kostar mikið. Það er því ekkert vit í að vera að reisa dýrt hús í þessu augnamiði meðan þessi aðferð er óreynd.

Á Reykjum, þar sem hægt er að byggja heilsuhæli fyrir 100–200 manns, eru 2 ágætar lindir. Önnur lindin er hver og þarf ekki að leggja pípur úr honum og í skálann nema svo sem 100 m. En um 100 m. þar frá er köld lind, og er þar ágætt drykkjarvatn. Um km. frá þessum sjúkraskála er líka mikið vatnsafl og má þar framleiða rafmagn.

Þar sem skilyrðin eru svo góð, virðist vera möguleiki fyrir því, að hægt sé að gera hús, sem verði ódýrt í rekstri. Á Vífilsstöðum kostar t. d. ljós og hiti 60 aura daglega á hvern sjúkling. Það væri því ekki svo lítill sparnaður, ef hægt væri að færa þann kostnað niður í 10 au. Mjólk er líka allt að því helmingi ódýrari austur í Ölfusi en á Vífilsstöðum. Þá eru einnig líkindi til, að sjúklingar geti unnið þar fyrir sér eða meira.

Af því að ég vil helzt ekki tala aftur um þetta atriði, skal ég geta þess nú, að í sumar skoðaði ég stóran spítala rétt hjá Viburg í Darmörku. Hann var gerður úr timbri og ekki nema ein hæð. Slíkir berklaveikisspítalar eru víða erlendis, og munu íslenzkir læknar hafa heimsótt þá.

Það, sem vakir fyrir landlækni og mér, er það, hvort ekki sé hægt að reisa slíkan spítala á Reykjum, og að dagkostnaður þar verði minni en á Vífilsstöðum, Kópavogi og Hafnarfirði fyrir þá sjúklinga, sem eru svo röskir, að þeir séu vinnufærir. Þá á ennfremur að reyna að venja sjúklingana á að létta undir með sjálfum sér með þann kostnað, sem af dvöl þeirra leiðir.

Ég vil minna hv. þdm. á, að stj. stendur nú varnarlaus uppi. Ef berklaveikum mönnum heldur áfram að fjölga, koma brátt önnur 50 þús., sem þarf að veita úr ríkissjóði. Þessar 50 þús. eru ekki meira en það, sem greitt hefir verið á einu ári fyrir sjúklingana á Herkastalanum í Hafnarfirði. Þetta er aðeins tilraun, sem ekki er víst að heppnist, en hér er svo mikil von til að spara megi berklavarnakostnað allverulega, að ég álít það skyldu mína að leggja það fyrir þessa hv. d., hvort ekki sé hægt að koma berklavarnamálinu út á nýjan grundvöll, þannig að berklavarnakostnaðurinn verði minni, en jafnframt verði hann heppilegri fyrir sjúklingana sjálfa.