24.02.1930
Efri deild: 33. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2034 í B-deild Alþingistíðinda. (2635)
159. mál, greiðsla verkkaups
Flm. (Jón Baldvinsson):
Með lögum, sem samþ. voru á þinginu 1927, var verkafólki heimiluð ókeypis aðstoð dómara til að ná kaupi sínu. Þetta var í tilteknum atvinnugreinum, en nokkrar voru undanskildar, eins og t. d. algeng sveitavinna, þar sem verkafólk hefir húsnæði og fæði sem hlut úr kaupi sínu. Nú var það ætlunin í raun og veru, að orðið „verkafólk“ tæki einnig til iðnaðarmanna. En vart hefir orðið við það, að ýmsir dómarar landsins hafa skilið þetta svo þröngt, að þeir hafa ekki álitið, að iðnaðarmenn gætu komið undir lögin. Og nú hafa bæði mér og öðrum þm. borizt áskoranir frá þeim mönnum um það, að flytja þá till., að þeir nytu sömu réttinda um aðstöðu til kaups síns og annað verkafólk. Það frv., sem hér liggur fyrir, fer fram á að veita þennan rétt.
Meginhluti laganna frá 1927 er tekinn upp í þetta frv. Ætlazt er til, að þetta nái fyrst og fremst til þeirra iðnaðarmanna, sem vinna hjá öðrum, þ. e. a. s. manna, sem ganga í vinnu hjá meisturum. Þeir eiga rétt á að fá kaup sitt innheimt kostnaðarlaust. Við flm. ætlumst líka til, að frv. nái til manna, sem starfa saman í félagi, einn, tveir eða fáir í samvinnu um verk, sem þeir hafa tekið að sér fyrir ákvæðiskaup eða sumpart tímakaup. Við viljum, að þeir hafi þennan rétt gagnvart þeim, sem fær þá til að vinna, sem sé að ákveða fasta vikulega útborgun á kaupi þeirra.
Sömuleiðis er ætlazt til, að þetta nái til manna, sem vinna með venzlamönnum sínum. Ég þekki marga, sem láta sonu sína læra sömu iðn og þeir stunda sjálfir, og ganga þeir þá í vinnu ásamt þeim. Á sama hátt tekur frv. til iðnnema. Þessi lög eiga að veita þeim sömu réttindi.
Það er ekki ætlazt til, að þetta taki til hinna stóru verktakenda, sem vanir eru að semja um greiðslu á annan hátt, þegar þeir taka að sér að framkvæma einhver fyrirtæki. Aðeins þeir smáu þurfa að hafa. rétt á kostnaðarlausri innheimtu, því að kostnaðurinn yrði of mikill fyrir þá, ef þeir yrðu að fara í málarekstur út af innheimtu á kaupi, sem nemur fáum tugum króna, eða hundruðum í mesta lagi.
Ég vona, að hv. deild taki málinu vel, og mælist til, að því verði vísað til allshn., að lokinni þessari 1. umr. málsins.