05.03.1930
Efri deild: 42. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2035 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)
159. mál, greiðsla verkkaups
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Við 1. umr. gerði ég grein fyrir aðalatriðum þessa frv., sem eru þau, að tryggja iðnaðarmönnum sama rétt og verkamönnum var tryggður með l. nr. 55, 31. maí 1927. En hann er aðallega í því fólginn, að þeir geta leitað aðstoðar dómara eða lögreglustjóra til þess að ná því kaupi, sem þeir eiga hjá þeim, sem þeir vinna hjá. Þetta nær aðeins til þeirra einstaklinga, sem vinna hjá öðrum; og smærri atvinnurekenda, sem vinna með venzlafólki sínu eða nemendum.
Allshn. getur í raun og veru fallizt á, að frv. verði samþ. óbreytt, og þótt hún flytji hér 6 brtt. við frv., þá eru það aðeins formsatriði. N. vill færa lögin frá 1902 og 1927 saman og taka þau upp í þetta frv. Allar brtt. n. miða að þessu.
Eins og hv. þm. er kunnugt, voru lögin frá 1902 sett til þess að skylda verzlanir til að borga verkafólki kaup sitt í peningum. Það átti að hætta skuldaverzluninni, sem þá var svo algeng — og er reyndar ekki alveg horfin ennþá — og veita verkafólki þann rétt, að það þyrfti ekki að hlíta því, að fá kaupið greitt með skuldajöfnuði, nema svo hafi áður sérstaklega verið um samið.
Samkv. lögum nr. 55, 31. maí 1927, átti verkafólk að fá kaupið greitt vikulega, nema öðruvísi væri um samið. Sama skyldi gilda um verkkaup fyrir ákvæðisvinnu, nema öðruvísi væri um samið.
Eftir lögunum frá 1927 var verkamönnum einnig heimiluð aðstoð dómara til þess að innheimta kaupið, og þurfti ekki að fara í mál til þess. Það er líka augljóst, að það borgar sig ekki að fara í mál út af einum 70 krónum, jafnvel þótt maður fái sér einhvern málskostnað dæmdan. Þetta voru því þörf ákvæði.
Nú hafa dómarar litið svo á, að lögin frá 1927 taki ekki til iðnaðarmanna, en áskoranir hafa komið frá þeim, að lögin skuli einnig taka til þeirra. Eftir þessu frv. eiga iðnaðarmenn, einnig þeir, sem taka að sér verk og vinna það fyrir ákveðið kaup, að geta leitað aðstoðar dómara til að innheimta kaup sitt. Þetta tekur þó ekki til stórra verktaka, en það gildir gegn þeim.
Ég ætla svo ekki að fara fleiri orðum um frv., en mælist til þess, að brtt. allshn. verði samþ., því þær eru aðeins breyt. að formi til, en ekki efni, þ. e. að hafa öll þessi lög í einu lagi.