27.03.1930
Efri deild: 62. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2038 í B-deild Alþingistíðinda. (2649)
159. mál, greiðsla verkkaups
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Þetta frv. er komið aftur frá Nd., og hefir verið samþ. þar óbreytt að efni til, aðeins hefir verið bætt inn 2 orðum í 3. gr. frv., þannig að þar skuli standa: „verkinu eða verkshluta“. Þetta er aðeins til skýringarauka, en engin efnisbreyt., og hv. d. mun því vafalaust samþ. frv., eins og þegar það lá hér fyrir áður.