24.03.1930
Efri deild: 59. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2040 í B-deild Alþingistíðinda. (2662)

195. mál, fiskveiðasamþykktir og lendingarsjóðir

Frsm. (Halldór Steinsson):

Með lögum um fiskiveiðasamþykktir og lendingarsjóði frá 14. nóv. 1917 er sýslunefndum heimilað að semja reglugerðir um ýmislegt, sem varðar útgerð á opnum róðrarbátum og mótorbátum. Nú hafa slíkar samþykktir komizt á á nokkrum stöðum, reyndar fáum, en það hefir nú sýnt sig, að á þeim stöðum hafa bátarnir stækkað ár frá ári, svo að á þessum stöðum, sem samþykktir gilda fyrir, eru margir bátar stærri en 30 smálestir. En þar sem það er í sjálfu sér eðlilegast, að slíkar samþykktir nái til allra báta á samþykktarsvæðinu, er þetta frv. komið fram, að breyta stærðarákvæðinu, 30 smálestir, þannig að framvegis sé miðað við 60 smálestir. Það er þess vegna aðeins örlítil breyt. til samræmis við lögin og til þess að hægt sé að beita þeim við alla báta, sem stunda sjó þar, sem samþykktin nær yfir.

Sjútvn. hefir gert örlitla breyt. á frv. frá því, sem það kom frá hv. Nd., til samræmis. Nd. ætlaðist til, að gerð væri breyt. á 1. gr. frv., en n. var það ljóst við yfirlestur laganna, að sama kemur einnig fram í 6. gr., og er því nauðsynlegt til samræmis að gera brtt. við báðar þessar greinar. Þess vegna leggur n. til, að bæði í 1. og 6. gr. laganna komi fyrir „30 smálestir“ orðin „60 smálestir“.

Ég hygg, að ekki þurfi að skýra þetta nánar, það er svo einfalt og ljóst.