12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (27)
1. mál, fjárlög 1931
Haraldur Guðmundsson:
Það, sem gaf mér tilefni til að standa upp, voru ummæli hv. frsm. um IX. brtt á þskj. 260, þar sem lagt er til, að veittar séu 10.000 kr. til að reisa lofttalstöðvar á Ísafirði og Horni. Hv. frsm. gat þess, að. fjvn. hefði engar upplýsingar fengið um það, hversu því máli væri varið. Þetta er alveg rangt. Þetta efni var einmitt rætt á fundi fjvn. Hv. þm. N.-Ísf. kom á fund n. með bréf og gögn máli þessu viðvíkjandi. En hv. frsm. mun ekki hafa verið á þeim fundi. Veldur það sennilega þessum misskilningi hans. Ég skal ekki endurtaka það, sem ég hefi sagt um nauðsyn þessara stöðva. En hv. frsm. sagði, að lítið gagn væri að því vegna veðurfregna að byggja stöð á Horni nema skip væru norður eða vestur í hafi til að fá fregnir frá. Þetta er rangt og stafar eflaust af því, að hv. frsm. hefir ekki kynnt sér málið. Það er mikil bót að því að fá fréttir frá andnesjum, samanborið við það að fá þær eingöngu innan úr fjörðum, eins og t, d. á Eyri í Skutulsfirði. Til viðbótar þessu skal ég geta þess, að sjútvn. Nd. hefir í dag sent fjvn. bréf, þar sem sjútvn. í e. hlj. mælir með þessu og gerir þetta að sinni till. Með leyfi hæstv. forseta vil ég leyfa mér að lesa kafla úr því bréfi: . . „Nefndin er þess fullviss, að umræddar stöðvar myndu auka öryggi fyrir lífi manna á sjónum, því með þeim myndu fást ábyggilegri veðurskeyti frá þessum hluta landsins en nú er völ á, sem þar af leiðandi hefði í för með sér ábyggilegri veðurspár frá veðurstofunni fyrir landið allt. .
Nefndin væntir því, að háttvirt fjárveitinganefnd sjái sér fært að mæla með þeirri tillögu um fjárveitingu, sem þegar er komin fram í þessu skyni“.
Ég sé svo enga ástæðu til að segja meira um þetta. En ég vil endurtaka það, að ég trúi ekki öðru en að hv. þdm. samþ. þessa till. Með þessum kr. 10.000 er hægt að tryggja miklum mun betur en nú er líf, öryggi og atvinnu 450–500 sjómanna.
Ég hefi allríka tilhneigingu til að ræða við hv. frsm. um skólagjöld. En af vorkunnsemi við hann og stólana mun ég láta það ógert að sinni.