12.04.1930
Efri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

1. mál, fjárlög 1931

Jón Jónsson:

Ég ætla aðeins að gera örstutta aths. út af þeim umr., sem farið hafa hér fram í hv. d., að ósanngjarnt sé að greiða ekki styrkinn til stúdenta í erlendri mynt. Ég vil mótmæla þessu sem fjarstæðu, því að í 14. gr. er ekkert um það talað, að þetta skuli gert, en hvað viðvíkur fé til sendiherra og konungs, þá eru skýr ákvæði um það, að það skuli greitt með gengisviðauka. Mér virðist þetta því liggja ósköp opið fyrir og engin ástæða sé til að fjölyrða um slíkt.