07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2066 í B-deild Alþingistíðinda. (2746)

64. mál, vigt á síld

Ólafur Thors:

Ég hefi að vísu ekki athugað þetta, sem hv. 4. þm. Reykv. var að minnast á, en ég hygg þó, að það þurfi ekki að koma í bág hvað við annað. Ég sé ekki, að neitt sé því til fyrirstöðu, að notuð séu t. d. 160 lítra mál, ef kaupandi og seljandi koma sér saman um það. En brjóti þetta nokkuð í bág við tilgang frv., þá mun hv. Ed., geta lagfært það.