07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2066 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
64. mál, vigt á síld
Magnús Jónsson:
Ég skal ekki fara að blanda mér í deilur þessara lærðu manna. En hv. 4. þm. Reykv. hefir hreyft andmælum gegn brtt. vegna þess, að hún samrýmist ekki 4. gr. frv. Það er misskilningur. Í 4. gr. stendur: „Með lögum þessum eru úr gildi numin ákvæði 11. gr. tilsk. um mælitæki og vogaráhöld, frá 13. marz 1925, að því leyti, er þau samrýmast ekki lögum þessum“. Svo framarlega sem síld verður mæld, gilda því ákvæði tilsk., þegar síld er seld eftir máli. En ef þetta skyldi ekki standast gagnrýni lögfræðinga, þá er hægurinn hjá eins og hv. 2. þm. G.-K. benti á, að lagfæra þetta í hv. Ed.