09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2083 í B-deild Alþingistíðinda. (2774)

158. mál, skráning skipa

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég get látið mér nægja stutta aths. að þessu sinni, en vildi snúa mér lítillega að hv. 1. þm. Skagf., og voru það aðallega tvö atriði í ræðu hans, sem ég ætla að svara. Hann benti á, að þótt þessi lög yrðu sett, gæti sama vanrækslan átt sér stað hjá sýslumönnum með að tilkynna þær breyt., sem yrðu á skráningu, en þar sem skipaskoðunarmaðurinn er alltaf á ferð og flugi, ætti hann að geta heimsótt þá og gengið ríkt eftir, að þeir framkvæmdu þessa skyldu sína. Ennfremur sagði hv. þm., að þetta starf væri ekki launað í ráðuneytinu, í það minnsta hefði það ekki verið svo í hans ráðherratíð, en mér skildist hinsvegar á hæstv. fjmrh., að fyrir verkið væri greidd nokkur þóknun, svo að hér er þá ekki að ræða um annað en flutning milli skrifstofa, en aukakostnaður verður sama og enginn við þessa breyt.

Ég vil taka það fram í sambandi við það, sem hv. þm. Borgf. sagði, að þegar ég átti tal við skipaskoðunarmanninn, þá sagði hann mér, að sá maður, sem þetta starf hefði með höndum, myndi vinna við það svona tvo tíma á degi hverjum, í það minnsta yrði það svo fyrst um sinn. Ég veit, að hv. þm. ber mér það eigi á brýn, að ég fari með ósannindi, en ef skipaskoðunarstjóri hefir haft önnur ummæli við hv. þm., þá ber honum ekki saman við sjálfan sig, því að við mig sagði hann, að þetta myndi engan aukinn kostnað hafa í för með sér annan en þann, sem leiddi af auknu húsrými.

Það má vel vera, að of lítið fé sé ætlað til skipaskoðunarstjóra í fjárlögum, en ég veit, að hv. þm. Borgf. er mér sammála um það, að aðalatriðið í þessu máli er að sjá svo um, að sem öruggust skip verði höfð á sjónum, og að nokkuð sé leggjandi í sölurnar fyrir það. Eftirlitið með þessu er hinsvegar orðið svo mikið starf, að ég hygg, að skipaskoðunarstjóri vilji fá mann sér til aðstoðar til að sinna því. Að endingu vil ég leggja áherzlu á það, sem ég tók fram áðan, að þetta starf á miklu betur heima hjá skipaskoðunarstjóra en að blanda því saman við óskyld störf uppi í stjórnarráði, og með því er fengin betri trygging fyrir, að það verði vel af hendi leyst.